„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Baka með osti, vorlauk og sinnepi

Hér kemur upp­skrift að góm­sætri böku með osti, vor­lauk og sinn­epi.

Baka með osti, vorlauk og sinnepi

Í þessa böku var not­aður port salut-ostur en það má skipta honum út fyrir annan bragð­minni ost, t.d. havarti eða brie. Eins má nota harðan ost en þá er betra að rífa hann með grófu rifjárni frekar en að sneiða hann.

Búa má til skel­ina deg­inum áður og geyma hana óbak­aða í form­inu í kæli í 1 dag eða geyma hana óbak­aða í frysti í allt að þrjá daga. Ef skelin er tekin beint úr fryst­inum þá er best að gera ráð fyrir lengri tíma við bakst­ur­inn.

Bökuna má bera fram heita eða kalda. Upp­skriftin gerir u.þ.b. 8 sneiðar

Skel

190 g hveiti
120 g smjör, kalt og skorið í ten­inga
½ tsk. salt
½ dl kalt vatn

Setjið allt hrá­efnið í mat­vinnslu­vél og látið hana vinna í stuttum slögum þar til blandan er orðin kornótt og minnir á grófa brauð­mylsnu. Setjið deigið í stóra skál. Bætið köldu vatni saman við í skömmtum og blandið því saman við með hönd­unum, ef deigið er mjög þurrt gæti þurft meira kalt vatn.

Setjið plast­filmu yfir skál­ina og setjið í kæli í a.m.k. 30 mín. Hitið ofn í 180°C og smyrjið 25 cm bök­un­ar­form með skelja­mynstri og sáldrið hveiti yfir. Takið deigið úr kæli og setjið á hveitist­ráðan flöt og látið standa við stofu­hita í nokkrar mín­útur.

Sáldrið hveiti yfir deigið og byrjið að fletja það út með köku­kefli, ef það er mjög hart er gott að berja það með kefl­inu og halda áfram að fletja út þar til það verður u.þ.b. 3 mm að þykkt. Leggið deigið yfir bök­un­ar­formið og þrýstið deig­inu inn í kant­ana, skerið umfram deigið frá. Setjið skel­ina í kæli í 10-15 mín. svo að smjörið í deig­inu harðni aftur, þá eru minni líkur á að skelin skreppi saman í ofn­inum.

Takið bök­una úr kæli, notið gaffal til að stinga í botn­inn, leggið bök­un­ar­pappír yfir og farg ofan á (t.d. þurrk­aðar baunir). Bakið í miðjum ofni í 15-20 mín., takið þá fargið og papp­ír­inn af og bakið í 5-8 mín. til við­bótar eða þar til skelin er orðin fal­lega gyllt á lit­inn.

Fylling

500 ml rjómi
3 egg
3 eggja­r­auður
½ tsk. salt
½ tsk. pipar
1 msk. dijon-sinnep
150 g port salut, eða annar ostur, skor­inn í sneiðar
4 vor­laukar, snyrtir og skornir langsum

Lækkið hit­ann á ofn­inum í 170°C. Hrærið saman rjóma, egg, eggja­r­auður, salt og pipar. Smyrjið sinn­ep­inu yfir botn­inn á skel­inni, raðið sneidda ost­inum yfir botn­inn síðan vor­lauknum og hellið rjóma­blönd­unni yfir.

Umsjón / Nanna Teits­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður