„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kjúklingur með eplasídergljáa

Kjúklingur með eplasídergljáa

Gaman er að leika sér með epla­bragð og nota epla­síder í mat­reiðslu, áfengan eða óáfengan. Hér er upp­skrift að góðum kjúklingi sem til­valið er að gera um helgar eða þegar gesti ber að garði. Við setjum perlu­lauk og epla­bita með honum í ofn­inn en til þess að fá smá­bit í með­lætið er gott að bíða með u.þ.b. helm­ing­inn af lauknum og eplunum og setja með þegar u.þ.b. 30 mín. eru eftir af eld­un­ar­tím­anum.

Kjúklingur með eplasídergljáa

fyrir 4

1 stór kjúklingur
rjóma­osta- og hnetu­fyll­ing (sjá­upp­skrift)
1 lítið epli, skorið í báta
2 msk. sítrónu­safi
4-6 hvít­lauks­geirar, afhýddir
1 msk. ólífu­olía
gróft sjáv­ar­salt
nýmal­aður svartur pipar
1-2 epli skorin í grófa báta
10-12 rauðir perlu­laukar, afhýddir

Hitið ofn í 190°C. Skolið kjúkling­inn vel að utan og innan og þerrið með eld­hús­pappír. Losið skinnið var­lega frá bring­unum og leggj­unum og setjið rjóma­osta­fyll­ing­una undir skinnið eins mikið og hægt er án þess að rífa gat. Ef ein­hver afgangur er af fyll­ing­unni er hún sett inn í fugl­inn ásamt epla­bitum sem hefur verið velt upp úr sítrónusafa, látið einnig hvít­lauks­geirana inn í fugl­inn.

Makið olíu utan á kjúkling­inn og stráið ríf­lega af salti og pipar á hann. Ef tími er til er gott að láta kjúkling­inn standa í kæli yfir nótt en þá er betra að sleppa salt­inu þar til rétt áður en hann fer í ofn­inn. Notið grillpinna eða slát­ur­garn til þess að loka fugl­inum vel.

Setjið hann í eld­fast mót og raðið hluta af eplunum og lauknum í kring. Eldið í 1 ½ klst. Setjið rest­ina af eplunum og lauknum saman við síð­ustu 30 mín­út­urnar af eld­un­ar­tím­anum. Penslið kjúkling­inn með epla­gljá­anum þegar hann er tekin úr ofn­inum.

Rjómaosta- og hnetufylling

1 dl val­hnetur, saxaðar
150 g rjóma­ostur
50 g feta­ostur, mul­inn
2 msk. hun­ang
4-6 lauf fersk salvía, smátt söxuð
lauf af 2 tímí­an­greinum

Blandið öllu vel saman.

Eplagljái

1 flaska (330 ml) Sommers­byepla­síder
1 msk. púð­ur­sykur

Setjið allt saman í pott og sjóðið þar til u.þ.b. ½ dl er eftir af vökv­anum og blandan verður síróps­kennd.

Ef kjúkling­ur­inn er far­inn að brúnast of mikið er gott að setja álp­appír yfir hann, hluta eld­un­ar­tím­ans. Til þess að sjá hvort kjúkling­ur­inn er eld­aður í gegn er gott ráð að stinga prjóni inn í hann á milli bringu og læris, ef vök­vinn sem lekur út er glær ætti kjúkling­ur­inn að vera full­eld­aður.

Umsjón / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Mynd / Hákon Davíð Björns­son
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

epli

Jólalegt sætabrauð
Mannlífið

Jólalegt sæta­brauð

Mikil hefð er fyrir epla-stru­del í Aust­ur­ríki og Þýska­landi og bjóða flest kaffi­hús upp á þetta dásam­lega sæta­brauð. Þunnt stökkt deig með krydd­aðri epla­fyll­ingu, borið fram með vanillusósu eða ís, getur ekki klikkað. Margir halda að erfitt sé að búa til stru­del en það er mik­ill mis­kiln­ingur og tekur ekki langan tíma. Þeir sem elska epli, kanil og vanillusósu ættu því ekki að láta þessa fram hjá sér fara.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður