„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Baunir en ekki saltkjöt – daðrað við hefðina og hollustuna

Á sprengideg­inum er hefð fyrir salt­kjöti og baunum og mörgum finnst gaman að gæða sér á þessum þjóð­ar­rétti Íslend­inga. Fyrir þá sem ekki borða kjöt eða vilja breyta til er hægt að nýta dag­inn í að gera góm­sæta öðru­vísi mál­tíð úr baunum enda eru þær mjög hollar, trefj­a­ríkar og góðar.

Baunir en ekki saltkjöt – daðrað við hefðina og hollustuna

Grænar linsubaunir með ristuðu grænmeti og geitaosti

fyrir 3-4
Þetta salat er gott eitt og sér eða sem með­læti með öðrum mat. Það geym­ist vel í kæli í
allt að þrjá daga.

½ butt­ernut-grasker, skorið í ten­inga
2 stórar gul­rætur, skornar í sneiðar
1 rauðrófa, skorin í ten­inga
2 msk. ólífu­olía
1 tsk. salt
100 g geita­ostur eða feta­ostur, skor­inn í bita
250 g puy-linsu­baunir eða grænar linsu­baunir
1 lár­við­ar­lauf
stein­selja til skrauts

Hitið ofn­inn í 200°C. Setjið grasker, gul­rætur og rauðrófu á stóra ofn­skúffu og veltið upp úr ólífu­olíu og sáldrið salti, hyljið með álp­appír. Bakið í ofn­inum í 20 mín­útur. Takið þá úr ofn­inum og fjar­lægið álp­app­ír­inn og bakið áfram þar til græn­metið hefur eld­ast í gegn og er orðið fal­lega gyllt eða í u.þ.b. 30 mín.

Setjið til hliðar og látið kólna. Sjóðið linsu­baun­irnar ásamt lár­við­ar­laufi í potti ásamt 2 lítrum af vatni. Lækkið hit­ann þegar suðan kemur upp og látið malla í 20-30 mín. eða þar til baun­irnar hafa eld­ast í gegn en hafa samt enn þá smá­bit. Sigtið vatnið frá og hendið lár­við­ar­lauf­inu. Setjið baun­irnar í skál.

Vinaigrette
½ dl rauð­vín­sedik
2 tsk. dijon-sinnep
½ tsk. salt
1 dl ólífu­olía

Hrærið saman edik, sinnep og salt. Pískið síðan ólífu­ol­í­una saman við þar til allt hefur sam­lag­ast. Veltið linsu­baun­unum upp úr helm­ingnum af vinaigretteblönd­unni. Blandið ristaða græn­met­inu og ost­inum var­lega saman við. Smakkið og bragð­bætið með vinaigrette og salti. Setjið sal­atið á stóran disk og stráið stein­selju yfir.

Taílensk linsu­bauna­súpa og Grænar linsu­baunir með rist­uðu græn­meti og geita­osti. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Taílensk linsubaunasúpa

fyrir 3-4

1 msk. ólífu­olía
1 laukur, saxaður
2 msk. rautt kar­rímauk
2 stilkar sítrónu­gras, marðir
rif­inn börkur og safi af 1 límónu
250 g rauðar linsu­baunir
1 dós (400 ml) kókos­mjólk
1 tsk. salt
ferskur kórí­ander eftir smekk
10 snjó­baunir, skornar á ská í sneiðar (má sleppa)
1 rautt chili-aldin, skorið í sneiðar (má sleppa)

Hitið ólífu­olíu í potti yfir með­al­háum hita og steikið lauk­inn þar til hann er far­inn að gyll­ast. Hrærið kar­rím­aukið vel saman við. Bætið sítrónu­grasi, límónu­berki, linsu­baunum, salti og kókos­mjólk saman við. Hellið 500 ml af vatni yfir og náið upp suðu, lækkið síðan hit­ann og látið hæg­sjóða í 20-30 mín­útur eða þar til linsu­baun­irnar eru orðnar mjúkar.

Hendið sítrónu­gras­inu og maukið súp­una þar til hún er orðin alveg kekkja­laus. Skreytið með kórí­ander, snjó­baunum og chili-ald­ini.

Umsjón / Nanna Teits­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir/Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

baunir

Ljúffengar linsubaunabollur með kryddaðri jógúrtídýfu
Mannlífið

Ljúf­fengar linsu­bauna­bollur með krydd­aðri jógúr­tí­dýfu

Linsu­baunir eru hrá­efni sem brýtur upp á marga mögu­leika ásamt því að vera mein­hollar og seðj­andi. Ólíkt þurrk­uðum baunum þarf ekki að láta linsu­baun­irnar liggja í bleyti. Gott er samt að skola þær fyrst og róta í gegnum þær ef það skyldu leyn­ast smá­steinar í pok­anum. Linsu­bauna­bollur með krydd­aðri jógúr­tí­dýu gerir u.þ.b. 20 bollur 200 g brúnar eða rauðar linsu­baunir...
Notaleg næringarbomba – Chili sin carne
Mannlífið

Notaleg nær­ing­ar­bomba – Chili sin carne

Það er lítið mál að útbúa nota­legan „huggu­mat“ (eins og hug­takið comfort food hefur svo skemmti­lega verið þýtt yfir á íslensku) sem gleður bæði sál­ina og mag­ann yfir dimm­ustu vetr­ar­mán­uð­ina. Hér upp­skrift að einum slíkum rétti. Notaleg nær­ing­ar­bomba – Chili sin carne fyrir 4 Hér er chili sin carne (chili án kjöts) sem stenst kjöt­út­gáf­unni fylli­lega snún­ing. Því vill stundum...
Bragðgóð baunabuff
Mannlífið

Bragðgóð bauna­buff

Bauna­buff eru hollur og góður matur sem er t.d. gott að eiga í frysti og grípa til þegar lít­ill tími er til stefnu. Baunir hafa hátt prótín­hlut­fall og eru stút­fullar af nær­ing­ar­efnum og trefjum. Þær eru ódýr matur og því vel til þess fallnar að drýgja t.d. pott­rétti og súpur. Nið­ur­soðnar baunir eru þægi­legur kostur þegar tím­inn er naumur en það er miklu ódýr­ara að leggja þurrk­aðar baunir í bleyti, sjóða þær og skipta þeim niður í hæfi­lega skammta og frysta. Þannig er fljót­legt að grípa til þeirra þegar á þarf að halda. Linsu­baunir þarf ekki að leggja í bleyti, þær eru því eins­konar skyndi­baunir sem er mjög hent­ugt að nota með litlum fyr­ir­vara.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður