„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Langar að vera fyrirmynd fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á iðnnámi“

Gunn­laugur Arnar Ingason, bak­ari og konditor, er nýkom­inn úr námi í sögu­frægu konditori í Kaup­manna­höfn og er nú að und­ir­búa opnun veislu­þjón­ustu í hús­næði við Flata­hraun 31 í Hafn­ar­firði. Í nýjasta tölu­blaði Gest­gjafans, 3. tbl. 2020, gefur hann okkur upp­skriftir að mak­rónum og glæsi­legri tertu og að því til­efni skelli hann í Instagram-leik í sam­starfi við Gest­gjafann.

„Langar að vera fyrirmynd fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á iðnnámi“

„Í til­efni þess að nýi Gest­gjaf­inn er kom­inn út og ykkar maður er í blað­inu er ég með gjafa­leik á Instagram-síð­unni minni, undir not­anda­nafn­inu @gulliarnar, í sam­starfi við Gest­gjafann. Í vinn­ing eru tvær netá­skriftir af Gest­gjaf­anum í heilt ár og tvær mak­rón­u­öskjur frá mér,“ segir Gunn­laugur.

Til að taka þátt þarf að elta @gulliarnar og @gestgjafinn á Instagram og merkja þann vin sem þú vilt deila vinn­ingnum með í athuga­semd við færsl­una sem Gunn­laugur er með á síð­unni sinni. Dregið verður sunnu­dag­inn 22. mars.

View this post on Instagram

🎁 GJAFALEIKUR 🎁 Í til­efni þess að nýji Gest­gjaf­inn er kom­inn út og ykkar maður er í blað­inu hef ég ákveðið í sam­starfi með gest­gjaf­anum að vera með gjafa­leik. Í boði eru tvær netá­skriftir af gest­gjaf­anum í heilt ár og tvær makkar­ón­u­öskjur frá mér ♻️🎂 Regl­urnar eru ein­faldar: 1. Followaðu mig og @gestgjafinn á Instagram 2. Taggaðu vin sem þú villt deila vinn­ingnum með Dregið verður úr leiknum á sunnu­dag­inn 22.mars 🥰🧁

A post shared by Gunn­laugur Ingason (@gulliarnar) on Mar 14, 2020 at 5:23am PDT

Myndrænt til að vekja áhuga

Áherslur Gunn­laugs eru fyrst og fremst að fram­leiða hágæða vörur úr fyrsta flokks hrá­efni. Hann er fullur af eld­móði og hug­myndum úr nám­inu og langar að gera meira af því sem sést og þekk­ist erlendis.

„Ég legg mikið upp úr því að sýna hrá­efn­inu og vör­unni sem ég er að vinna að virð­ingu og gefa ferl­inu til að fram­leiða full­komna vöru þann tíma sem hún krefst. Ég hef fundið fyrir miklum áhuga fólks að fá nýj­ungar í bak­arís- og tertuflór­una á Íslandi. Það sem er í tísku og sést mikið á Instagram, sér­stak­lega hjá þeim sem eru stærstir í brans­anum, eru glaze-aðar mir­ror-tertur svo­kall­aðar. Rúlluð deig, sér­stak­lega croissant og vín­ar­brauð sem eru í mik­illi sókn og sjást í alls konar útfærslum. Í dag snýst allt mikið um liti og útlit og ég hef orðið var við að vör­urnar þurfa að vera mynd­vænar til að vekja áhuga. Einnig er við­skipta­vin­ur­inn orð­inn með­vit­að­ari um það hrá­efni sem notað er og alltaf er meiri vit­unda­vakn­ing fyrir góðu hand­verki og gæða­hrá­efni meðal almenn­ings. Mér finnst þetta skemmti­leg þróun að taka þátt í, að fram­leiða bragð­góðar og á sama tíma fal­legar vörur þar sem list­rænt frelsi fær að njóta sín.“

Stórar mak­rónur úr smiðju Gunn­laugs með ferskum berjum á milli. Mynd/Hallur Karlsson

Brennandi ástríða fyrir faginu

Fram undan hjá Gunn­laugi er heims­meist­ara­keppni í köku­gerð fyrir 25 ára og yngri í Taívan. „Upp­haf­lega átti keppnin að fara fram 10.-13. mars en vegna Covid-19 er búið að tíma­setja keppn­ina 28. júlí – 3. ágúst.“

Gunn­laugur seg­ist hepp­inn að vinna við sitt stærsta áhuga­mál en frá fyrsta degi í bak­arí­inu hefur hann haft brenn­andi ástríðu fyrir fag­inu. „Mig langar að vera fyr­ir­mynd fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á iðn­námi og sýna fram á þau tæki­færi sem í boði eru. Mig langar til þess að gera bakstur sýni­legan á Íslandi og sýna fólki hvað það er margt skemmti­legt í boði í þessu fagi. Ég er mjög sýni­legur á Instagram undir nafn­inu @gulliarnar þar sem ég leyfi fólki að skyggn­ast bak við tjöldin og sýni frá flestum hliðum bakst­urs­ins.“

Gunn­laugur skreytir glæsi­lega tertu en upp­skriftin að henni er í nýjasta tölu­blaði Gest­gjafans, 3. tbl. 2020. Mynd/Hallur Karlsson

Tryggðu þér áskrift að Gest­gjaf­anum í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður