„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mun taka langan tíma að vinna okkur úr þessari kreppu

„Kostn­að­ur­inn verður veru­legur. Það mun taka langan tíma að vinna okkur úr þess­ari kreppu.“ Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, á upp­lýs­inga­fundi núna fyrir hádegi þegar næstu aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna efna­hags­á­hrifa kór­ónu­veirunnar voru kynntar.

Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt þrjár til­lögur um stuðn­ing við launa­fólk og fyr­ir­tæki. Markmið þeirra er að draga úr þeim skaða sem umfangs­miklar upp­sagnir og fjölda­gjald­þrot valda þannig að stað­inn verði vörður um rétt­indi launa­fólks á sama tíma og stuðlað verði að kröft­ugri við­spyrnu efna­hags­lífs­ins.

Fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir umfangs­miklu tekju­tapi verður gef­inn kostur á að sækja um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti til að tryggja rétt­indi launa­fólks og koma í veg fyrir fjölda­gjald­þrot fyr­ir­tækja. Hluta­starfa­leiðin verður fram­lengd til hausts með breyt­ingum og settar verða ein­fald­ari reglur um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja sem miða að því þau geti kom­ist í skjól með ein­földum hætti.

Hlutastarfaleiðina mikilvægasta aðgerðin

Katrín segir hluta­starfa­leið­ina hafa nýst vel en 35 þús­und manns hafa skráð sig á bætur á móti skertu starfs­hlut­falli, um 14 þús­und koma úr ferða­þjón­ust­unni.

Katrín segir ein­hverja gagn­rýni hafa komið upp síðan úrræðið var kynnt. „En það breytir því ekki að þetta er mik­il­væg­asta aðgerðin sem við gátum gripið til,“ sagði Katrín.

„Þessi stuðn­ingur mun skipta ferða­þjón­ust­una veru­legu máli, ekki síst Icelandair.“

Ferða­þjón­ustan hefur kallað eftir frek­ari aðgerðum síðan fyrstu tveir aðgerð­ar­pakkar rík­is­stjórn­ar­innar voru kynntir. Aðspurð hvort að þessi þriðji pakki muni nýt­ast fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ust­unni, og var sér­stak­lega spurt út í Icelandair, sagði Katrín: „Þessi stuðn­ingur mun skipta ferða­þjón­ust­una veru­legu máli, ekki síst Icelandair.“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra voru á fund­inum ásamt Katrínu til að svara spurn­ingum fjöl­miðla.

Þórdís Kolbrún tók undir með Katrínu eftir fund­inn og sagði að þessi nýi aðgerða­pakki muni koma sér vel fyrir fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustinni, að þau séu ekki öll í sömu stöðu en með pakk­anum sé boðið upp á ýmsa val­kosti.

Katrín kynnti þessar þrjár aðgerðir á fund­inum:

1.Hluta­starfa­leið verður fram­lengd en hefði að óbreyttu fallið úr gildi þann 1. júní nk. Afkoma tug­þús­unda launa­fólks hefur verið varin frá því að leiðin tók gildi en ljóst er að efna­hags­horfur hafa breyst umtals­vert á þeim rúma mán­uði sem lið­inn er frá gild­is­töku hennar. Hluta­starfa­leiðin verður því fram­lengd án breyt­inga með 25% lág­marks­starfs­hlut­falli út júní en lág­markið hækkar í 50% í júlí. Leiðin verður í boði til 31. ágúst. Sækja þarf um fram­leng­ingu leið­ar­innar og skil­yrði fyrir þátt­töku verða end­ur­skoðuð.

2.Settar verða tíma­bundið ein­fald­ari reglur um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja. Byggt verður á núgild­andi grunn­reglum en breyt­ingar miða að því að fyr­ir­tæki geti kom­ist í skjól á ein­faldan hátt á meðan verið er að meta stöðu þeirra og uns meiri vissa fæst um fram­tíð­ar­horfur. Breyt­ingar lúta m.a. að skil­yrðum fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar, beiðni og umfjöllun um hana, tíma­frestum, heim­ildum til ráð­staf­ana og rift­unar- og van­efnda­heim­ildum við­semj­enda.

3.Í því skyni að tryggja rétt­indi launa­fólks og forða gjald­þrotum eins og kostur er verður fyr­ir­tækjum gef­inn kostur á að sækja um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti. Stuðn­ing­ur­inn verður í formi greiðslu að hámarki 633 þús.kr. á mán­uði í allt að þrjá mán­uði auk orlofs og ein­skorð­ast við fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir að lág­marki 75% tekju­falli og sjá fram á áfram­hald­andi tekju­fall að minnsta kosti út þetta ár. Áætlað er að um fjórð­ungur fyr­ir­tækja hafi orðið fyrir slíku tekju­tapi. Hámarks­hlut­fall stuðn­ings rík­is­ins verður 85%. Starfs­menn skulu eiga for­gang til starfs þegar starf­semi hefst að nýju og halda til­teknum áunnum rétt­indum. Sett verði nán­ari skil­yrði, til að mynda um rekstr­ar­hæfi fyr­ir­tækis, fyrir aðild að þessu úrræði og um end­ur­kröfu­rétt. Leiðin er í boði frá 1. maí til 30. sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnaghagsmál

Stýrivextir áfram 9,25 prósent – Lakari horfur í ferðaþjónustu ein af ástæðunum
Innlentefnaghagsmál

Stýri­vextir áfram 9,25 pró­sent – Lakari horfur í ferða­þjón­ustu ein af ástæð­unum

Stýri­vöxtum Seðla­banka Íslands verður haldið óbreyttum í 9,25 pró­sentum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans. Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri til­kynnti í morgun að Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hafi ákveðið að halda stýri­vöxtum áfram í 9,25 pró­sentum. Fram kemur í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar að verð­bólga hafi auk­ist eilítið frá síð­asta fundi hennar eftir að hafa minnkað fram eftir ári. „Und­ir­liggj­andi verð­bólga er enn...
Rebekka Guðleifsdóttir: „Hvenær gera Íslendingar alvöru uppreisn gegn þessu andskotans rugli?“
Innlentefnaghagsmál

Rebekka Guð­leifs­dóttir: „Hvenær gera Íslend­ingar alvöru upp­reisn gegn þessu and­skot­ans rugli?“

Ljós­mynd­ar­inn Rebekka Guð­leifs­dóttir skrif­aði gríð­ar­lega vin­sæla færslu á Facebook í gær en henni hefur verið deilt yfir 1100 sinnum. Í færsl­unni gagn­rýnir hún Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóra „og allt hitt ríka og fína sið­blinda fólkið“ sem kemur sér í valda­stöður á Íslandi. Færslan er löng og harð­orð og end­ur­speglar sístækk­andi óánægju í sam­fé­lag­inu vegna efna­hags­á­stands­ins á Íslandi en Seðla­banka­stjóri ákveð enn...
Skapandi leigjendur komi með tillögur að leiguverði
Innlentefnaghagsmál

Skapandi leigj­endur komi með til­lögur að leigu­verði

Þann 10. júní gefst áhuga­sömum kostur á að skoða hús­næði sem Reykja­vík­ur­borg leigir út fyrir skap­andi verk­efni. Húsnæðið er í Gufunesi, Bryggju­hverfi og í Skerja­firði og sam­tals er um rúm­lega 9.000 fer­metra að ræða. Á vef­síðu Reykja­vík­ur­borgar segir að við val á leigj­endum verði sér­stök áhersla lögð á skap­andi greinar og það að byggja upp og efla nýjar atvinnu­greinar og...
Þjóðin situr uppi með Icelandair
Innlent

Þjóðin situr uppi með Icelandair

Útlit er fyrir að íslenska þjóðin sitji uppi með Icelandair-flug­fé­lagið og það komi alfarið í hennar hlut að bjarga því frá falli. Nú þegar á almenn­ingur stóran hluta í flug­fé­lag­inu í gegnum eign­ar­hluti líf­eyr­is­sjóð­anna. Allt stefnir í að fólkið í land­inu eign­ist enn meira í gegnum skuld­breyt­ingu lána stóru rík­is­bank­anna sem nú þegar hafa lánað flug­fé­lag­inu í kringum 20 millj­arða...
Þrír sinna eftirliti með lánveitingum og skila skýrslu til Bjarna
Innlent

Þrír sinna eft­ir­liti með lán­veit­ingum og skila skýrslu til Bjarna

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd veit­ingar við­bót­ar­lána lána­stofn­ana með rík­is­á­byrgð. Í nefnd­inni eru þau Einar Páll Tamimi, for­maður, Kristrún Heim­is­dóttir og Ásta Dís Óla­dóttir. Eft­ir­lits­nefnd­inni er ætlað að hafa almennt eft­ir­lit með fram­kvæmd lán­veit­ing­anna til fyr­ir­tækja sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­tapi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Þetta kemur fram á...
350 milljónir í stuðning við einkarekna fjölmiðla
Innlentefnaghagsmál

350 millj­ónir í stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla

Rík­is­stjórnin hyggst styðja við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla með 350 millj­óna króna fram­lagi vegna þess mikla tekju­taps sem miðl­arnir hafa orðið fyrir sam­hliða minnk­andi umsvifum í hag­kerf­inu. Þetta kemur fram á vef mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins Þer segir að verið sé að vinna að reglu­gerð um úthlutun stuðn­ings­ins. Gert er ráð fyrir því að fjöl­miðlar sæki um stuðn­ing með form­legum hætti og...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins