„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Verður „afskaplega erfitt“ að fara aftur af stað án Icelandair

Verður „afskaplega erfitt“ að fara aftur af stað án Icelandair
Inga hefur áður sagt að henni þyki gámur­inn við Land­spít­al­ann vera frekar von­laust úrræði til að takast á við COVID-19 hér á landi.

Jón Karl Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Icelandair og sér­fræð­ingur í flug­rekstri, ræddi fram­tíð ferða­þjón­ust­unnar hér á landi í sam­tali við morg­un­út­varp Rásar 1 og 2 í morgun. Hann sagði algjöra óvissu ríkja.

„Maður veit ekk­ert. Maður hefur á til­finn­ing­unni að eng­inn viti neitt,“ sagði Jón þegar hann er beð­inn um að spá í fram­tíð­ina. Hann sagði stöð­una sem upp er komin vera eitt­hvað sem eng­inn gat séð fyrir. Hann lýsti henni sem „óraun­veru­legri“.

Mikið hefur verið fjallað um um hvort ríkið eigi að koma inn í mynd­ina og aðstoða flug­fé­lagið Icelandair í gegnum þá rekstr­ar­erf­ið­leika sem félagið glímir við. Aðspurður hvað honum finnst sagði Jón: „Ég held að ríkið verði að koma ein­hvern veg­inn inn, í ein­hverju formi. En ég held líka að hlut­hafar þurfi að skoða hvort að þeir vilji koma inn og bjarga verð­mætum.“ Hann sagði val­kost­ina sem eru í boði vera „vondur, verri, verstur“.

„En ég held líka að hlut­hafar þurfi að skoða hvort að þeir vilji koma inn og bjarga verð­mætum.“

Hann bætti við að það yrði sárt að sjá eignir líf­eyr­is­sjóða lands­ins í Icelandair hverfa.

Hann ssagði Icelandair hafa verið vel und­ir­búið og hafa átt fjár­magn til að halda sér gang­andi í ákveð­inn tíma áður en far­ald­ur­inn skall á af fullum þunga. „Það er að hjálpa þeim í dag. En auð­vitað klár­ast það [fjár­magnið] ein­hvern tím­ann.“

Fullkomið tekjuleysi og algjör óvissa

Hann sagði stóru spurn­ing­una vera hversu lengi ástandi varir. Hann telur mik­il­vægt að ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækin í land­inu verði til staðar þegar ferða­menn fara að streyma aftur til lands­ins en benti á að eng­inn viti hvenær það verður.

Hvað fram­tíð Icelandair varðar sagði Jón: „Við getum alveg séð þá sviðs­mynd fyrir okkur að fyr­ir­tækið þurfi að lúta í lægra haldi. En þá verður afskap­lega erfitt að fara aftur af stað.“

Jón sagði að nú sé bara að bíða og sjá hvenær landa­mæri opni aftur en að óvissan sé mikil. Staðan sé erfið á meðan beðið er og á sama tíma verða ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki fyrir „full­komnu tekju­leysi“ að hans sögn.

Hann er þó von­góður um að ferða­þjón­ustan á Íslandi verði fljót að ná sér svo lengi sem ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækin verði til staða þegar far­ald­ur­inn er geng­inn yfir. Hann sér fyrir sér að ferða­menn muni vilja koma hingað til lands þar sem fámennt og víð­feðmt land muni hljóma vel í eyrum fólks þegar það fari að bóka sér utan­lands­ferðir aftur.

„Ég trúi því að fólk verði orðið ferða­þyrst þegar þetta er yfir­staðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélögin

Play flýgur í sólina til Orlando
Innlentflugfélögin

Play flýgur í sól­ina til Orlando

Flug­fé­lagið Play hefur flug til Orlando þann 30.sept­em­ber næst­kom­andi og hafa þau þegar opnað fyrir miða­sölu. Kemur fram í til­kynn­ingu frá flug­fé­lag­inu að flogið verði til Orlando International flug­vall­ar­ins þrisvar sinum í viku en verður Orlando fjórði áfanga­staður Play í Banda­ríkj­unum. Býður Play einnig upp á flug til Boston, Baltimore og New York. Flug­fé­lagið bætti við sig nýja áfanga­staðnum vegna...
Tíu flugvéla floti hjá Play í kortunum
Innlentflugfélögin

Tíu flug­véla floti hjá Play í kort­unum

Flug­fé­lagið Play hyggst nota sex flug­vélar í sumar en hefur félagið skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um leigu á A321 flug­vél og þannig tryggt sér í heild­ina tíu vélar. Play hefur flug til Banda­ríkj­anna í apríl og verður nýja flug­vélin til­búin til afnota fyrir þann tíma. Kemur þetta fram í til­kynn­ingu frá Play og fjall­aði Morg­un­blaðið um málið. Miðasala til Banda­ríkj­anna fer...
PLAY til New York daglega – ódýrasta flugið til Evrópu
Innlentflugfélögin

PLAY til New York dag­lega – ódýrasta flugið til Evrópu

Flug­fé­lagið PLAY mun hefja í dag miða­sölu á flug­ferðum til New York í Banda­ríkj­unum. PLAY mun fljúga dag­lega til New York Stewart International en verður það eina flug­fé­lagið með milli­landa­flug frá þeim flug­velli. Flug­fé­lagið náði hag­stæðum samn­inum við flug­völl­inn sem er tölu­vert mikið minni en þeir sem nú er flogið til á svæð­inu. Þar með ná þau að bjóða upp...
Forstjóri Play: Við munum bjóða betur en Icelandair og þeir hafa augljósar áhyggjur af því
Innlentflugfélögin

For­stjóri Play: Við munum bjóða betur en Icelandair og þeir hafa aug­ljósar áhyggjur af því

Arnar Már Magn­ús­son, for­stjóri hins boð­aða Play, segir aug­ljóst að Icelandair hafi miklar áhyggjur af inn­komu flug­fé­lags­ins. Það sé heldur ekk­ert skrítið því rekst­ar­módel þess fyrr­nefnda sé mun hag­kvæmara og því komi Play til með að bjóða betri verð. Þetta segir Arnar í ljósi full­yrð­inga Boga Nils Boga­sonar, for­stjóra Icelandair, um að hér á landi sé aðeins pláss fyrir eitt...
Krafa um gjaldþrotaskipti Play: „Okkur þykir leitt að Bogi hafi valið að fara þessa leið“
Innlentflugfélögin

Krafa um gjald­þrota­skipti Play: „Okkur þykir leitt að Bogi hafi valið að fara þessa leið“

Einn af stofn­endum Play flug­fé­lags­ins hefur farið fram á gjald­þrota­skipti félags­ins. Krafa þess efnis var lögð fram í morgun fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness. Lögð var fram krafa um gjald­þrota­skipti flug­fé­lags­ins Play fyrir Héraðs­dómi Reykja­ness í morgun. Þetta stað­festi Arnar Már Magnús­son, for­stjóri fé­lags­ins í sam­tali við Mark­að­inn. Krafan var lögð fram af Boga Guð­munds­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra sölu-og mark­aðs­sviðs fé­lags­ins, sem hlaut...
Innlentflugfélögin

„Starfs­menn Icelandair hafa unnið þrek­virki“

Icelandair flug­fé­lagið fær bættan stærstan hluta þess tjóns sem fyr­ir­tækið varð fyrir vegna kyrr­setn­ingar Boeing 737 MAX flug­vél­anna. Sam­komu­lag við flug­véla­fram­leið­and­ann hefur náðst. Þá hafa stjórn­endur Icelandair einnig náð sam­komu­lagi við alla kröfu­hafa félags­ins og við­ræður við íslenska ríkið um rík­is­á­byrgð á lánum eru langt komnar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu en þar segir að Icelandair losni undan...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins