„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

17% leikfangaslíms ekki í lagi

17% leikfangaslíms ekki í lagi
Mynd / Úr safni

Nýleg könnun Neyt­enda­stofu sýnir að 17% leik­fangaslíms er ekki í lagi, en af 211 slíkum sem skoðuð voru, reynd­ust 37 inni­halda of hátt magn boron. Neyt­enda­stofa fylgdi eftir evr­ópsku sam­starfs­verk­efni sem gert var árið 2019 þar sem skoðað var öryggi leik­fangaslíms.

Fulltrúi Neyt­enda­stofu kann­aði mark­að­inn á leik­fangaslími og skoð­aði um 80 teg­undir, merk­ingar og umbúðir. Til­gangur verk­efn­is­ins var að sann­prófa inni­halds­lýs­ingar leik­fangaslíma. Eitt af efn­unum í flestum slímum er boron. Mark­miðið var að athuga hvort of mikið magn væri af boron í slímum, en eit­urá­hrif af völdum efn­is­ins geta verið mjög hættu­leg.

Í frétt á vef Neyt­enda­stofu er tekið fram að leik­fangaslím er mis­mun­andi að þykkt. Hættan við leik­fangaslímið, sem er vin­sælt meðal barna, er að oft er blandað efni í slímið sem heitir boron. Ef boron inni­hald fer yfir ákveðin mörk skap­ast hætta. Of mikið boron inni­hald í leik­fangaslími seytlar í gegnum húð. Þetta hefur það að verkum að leyfi­legt boron inni­hald í þykku slími (galdra­leir) er meira en í blautu slími.

Hámarks­gildi borons í blautu slími er 300 mg/kg en í galdra­leir eru mörkin 1200 mg/kg þar sem leir­inn seytlar ekki eins auð­veld­lega í húð­ina.

Nokkur sýnishorn yfir hættumörkum

Neyt­enda­stofa safn­aði saman níu sýn­is­hornum af leik­fangaslími og sendi í prófun. Fjögur þeirra féllu því boron inni­hald umræddra slíma var yfir hættu­mörkum. Óhætt er að segja að nið­ur­stöð­urnar séu áhyggju­efni því 44% sýn­is­horn­anna voru dæmd hættu­leg. Nið­ur­stöður próf­ana voru sendar til sölu­að­ila og hafa þeir brugð­ist við með inn­köll­unum og förgun umræddra vara.

Nið­ur­stöður þess­arar skoð­unar fyrir Evrópu voru svip­aðar þeim á Íslandi. Lang­hæsta gildi sem mæld­ist í þess­ari könnun var að finna í sýni sem tekið var í Noregi. Varan sem nýtur þessa vafa­sama heið­urs heitir „Flabby funny slime“. Í því sýni mæld­ist boron inni­hald 6030 mg/kg eða um 20 falt hámark.

Neyt­enda­stofa beinir eft­ir­far­andi til­mælum til neyt­enda:

*Þegar leik­föng eru keypt handa börnum er mik­il­vægt að hafa í huga að kaupa aðeins leik­föng sem eru CE merkt. Fólk ætti einnig að hafa í huga að það er til urm­ull af fölsuðum leik­föngum og eft­ir­lík­ingum.
*Fólk ætti ekki að búa til leik­fangaslím heima hjá sér því efnin sem not­uðu eru til slím­fram­leiðslu eru bein­línis hættu­leg og lítið þarf út af bera til að gera skemmti­legt slím hættu­legt. Dæmi eru um sjúkra­húsinn­lagnir á Íslandi vegna heima­gerðs leik­fangaslíms

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins