„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lýsa áhyggjum af ástandinu innan Slökkviliðs Fjarðabyggðar

Lýsa áhyggjum af ástandinu innan Slökkviliðs Fjarðabyggðar

„Það ríkir mikið aga­leysi innan slökkvi­liðs­ins, bak­tal er gríð­ar­legt og það er illa og allt of oft of seint tekið á málum sem upp koma,“ segir Gísli Þór Briem, fyrr­ver­andi liðs­maður Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar í fram­haldi af umfjöllun Mannlífs um kvörtun vegna ein­eltis innan slökkvi­liðs­ins. Hann er ekki einn um þá full­yrð­ingu, það virð­ist vera áhyggju­efni margra íbúa sveit­ar­fé­lags­ins að starfs­manna­mál slökkvi­liðs­ins séu í ólestri og Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir, fyrr­ver­andi liðs­maður Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, er langt því frá sú eina sem lagt hefur fram kvörtun til vinnu­eft­ir­lits­ins vegna slíkra mála.

Gísli Briem.

Viðtal Mannlífs við Andreu Björk í síð­asta tölu­blaði hefur vakið mikil við­brögð. Margir hafa haft sam­band við rit­stjórn­ina og þakkað fyrir umfjöll­un­ina, staðan innan slökkvi­liðs­ins hafi lengi verið íbúum Fjarða­byggðar áhyggju­efni. Fyrr­ver­andi liðs­maður slökkvi­liðs­ins segir ein­elti og bak­tal grass­era á vinnu­staðnum og þrátt fyrir margar kvart­anir sé ekk­ert gert í mál­inu.

„Ég var sam­tíða Andreu Björk í slökkvi­lið­inu í nokkrar vikur, hún tók við starf­inu mínu þegar ég hætti sum­arið 2017, en saga hennar kom mér ekk­ert á óvart,“ segir Gísli Þór Briem, fyrr­ver­andi liðs­maður Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, í sam­tali við Mannlíf. „Það ríkir mikið aga­leysi innan slökkvi­liðs­ins, bak­tal er gríð­ar­legt og það er illa og allt of oft of seint tekið á málum sem upp koma, þau eru látin grass­era afskipta­laust og valda að lokum miklum sær­indum fyrir þá sem í þeim lenda. Slökkvi­liðs­stjóri hefur sagt að hann vilji að málin leys­ist af sjálfs­dáðum. Fleiri en Andrea hafa hrak­ist úr vinn­unni hjá slökkvi­lið­inu vegna ein­eltis en það virð­ist ekki breyta neinu.“

Sagt að þau væru að misskilja hlutina

Andrea Björk lýsti því í við­tal­inu að slökkvi­liðs­stjór­inn, Guð­mundur Helgi Sig­fús­son, hefði kallað hana á sinn fund til að ræða áreitið sem hún hefði kvartað undan og sagst ætla að gera eitt­hvað í mál­inu en ekk­ert hafi gerst og hann hafi síðan ekk­ert kann­ast við það sam­tal þegar boðað var til sátta­fundar milli hennar og þess aðila sem harð­ast gekk fram í áreit­inu. Gísli segir slíkt ekki koma sér á óvart.

„Það virt­ist ekki vera nein ein regla sem farið var eftir, heldur nokk­urs konar henti­stefna í hvaða far­veg málin fóru. Munn­legir samn­ingar héldu ekki og fljót­lega fór að bera á því að ekki var alltaf sagt satt og oft talað um að við „mis­skildum“ hitt og þetta,“ segir Gísli.

„Þetta ágæta fólk skuldar að mínu mati mörgum afsök­un­ar­beiðni.“

„Mér finnst aðal­vanda­málið vera vöntun á afger­andi stjórn­anda. Þegar þetta atvinnu­lið var stofnað á sínum tíma var mik­ill metn­aður í öllum til þess að búa til gott og fag­legt slökkvi­lið sem ég tel að það sé, það er gott mennt­un­ar­stig innan liðs­ins og það fær mikið lof í sam­fé­lag­inu fyrir störf sín út á við. Það vant­aði hins vegar töl­vert á sam­stöðu innan liðs­heild­ar­innar, þótt flestar vaktir gengju vel.“

Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir, fyrr­ver­andi liðs­maður Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, er langt því frá sú eina sem lagt hefur fram kvörtun til vinnu­eft­ir­lits­ins vegna ein­eltis innan liðs­ins. Mynd / Auðunn Níelsson Mynd / Auðunn Níelsso

Stjórnvöld Fjarðabyggðar skulda mörgum afsökunarbeiðni

Gísli segir ríg milli hátt­settra starfs­manna setja mark sitt á and­rúms­loftið á slökkvi­stöð­inni.„Þegar liðið var stofnað komu að stjórnun þess þrír yfir­menn, það er að segja slökkvi­liðs­stjóri, aðstoð­ar­slökkvi­liðs­stjóri og elda­varna­eft­ir­lits­maður,“ útskýrir hann. Tveir þeir síð­ast­nefndu höfðu verið slökkvi­liðs­stjórar með tölu­verða reynslu, nýi slökkvi­liðs­stjór­inn hins vegar var tækni­fræð­ingur starf­andi hjá sveit­ar­fé­lag­inu en hafði enga menntun slökkvi­liðs­manns. Hann hafði komið nálægt sjúkra­flutn­ingum og hafði ein­hverja reynslu af rekstri, en ég ætla ekki lengra út í þá sálma. Við fórum fljót­lega að verða varir við að ein­hver tog­streita var á milli þeirra þriggja, alla vega til að byrja með, og fengum svo líka að heyra það frá þeim er lengra leið og þeir töl­uðu hver um annan á nei­kvæðan hátt. Þetta varð, að mínu mati, til þess að menn sýndu þeim ekki nægi­lega virð­ingu í fyrstu og einnig vant­aði fasta sjórnun á hóp­inn. Ég benti oft á að það vant­aði skýr­ari stjórn, hvort sem mönnum lík­aði það betur eða verr. Það voru til dæmis aldrei skip­aðir neinir varð­stjórar á vakt­irnar þannig að það var aldrei skýrt hver réði og hverjum bæri að hlýða í útköllum. Sem var mjög baga­legt. Ég tel að með því að skipa varð­stjóra hefði mátt kom­ast hjá mjög mörgum leið­indum sem hafa ekki bara kostað sveit­ar­fé­lagið mikla pen­inga, heldur líka sært þá aðila sem þegar hafa hrökkl­ast úr starfi eða verið sagt upp. Þess má að lokum geta að sum þess­ara mála end­uðu inni á borði sveit­ar­stjórnar og eins var reynt að hafa sam­band við kjörna full­trúa á þeim tíma sem ég var þarna, en án árang­urs. Svo virð­ist sem stjórn­sýsl­unni hafi lítið fund­ist til um þetta eða ekki viljað vekja athygli í sam­fé­lag­inu og ákveðið að láta sem ekk­ert væri að og styðja sinn mann í einu og öllu. Þetta ágæta fólk skuldar að mínu mati mörgum afsök­un­ar­beiðni.“

Trúnaðarmaður vinnustaðarins meðal gerenda

Auk fjölda tölvu­pósta og sím­tala frá fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­mönnum Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar og almennum íbúum sveit­ar­fé­lags­ins, þar sem lýst er miklum áhyggjum af ástand­inu innan slökkvi­liðs­ins og hvernig for­ystu­fólk sveit­ar­fé­lags­ins taki á þeim málum, hefur Mannlíf undir höndum afrit af kvört­unum sem starfs­menn Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar hafa sent Vinnu­eft­ir­lit­inu og Lands­sam­bandi slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna. Þar koma fram nokkurn veg­inn nákvæm­lega sömu umkvört­un­ar­efni og Andrea Björk sagði frá í við­tal­inu við Mannlíf og byggði sína kvörtun á, en í við­tal­inu sagði hún meðal ann­ars:

Viðtal Mannlífs við Andreu Björk í síð­asta tölu­blaði hefur vakið mikil við­brögð. Margir hafa haft sam­band við rit­stjórn­ina og þakkað fyrir umfjöll­un­ina, staðan innan slökkvi­liðs­ins hafi lengi verið íbúum Fjarða­byggðar áhyggju­efni.

„Það var alveg sama hvað ég gerði, það var mikið grín­ast með það á stöð­inni hvað ég væri van­hæf. Ég var sökuð um að reyna að koma mér undan erf­iðum æfingum í nám­inu með því að velja mér félaga sem væri sterkur svo ég þyrfti ekk­ert að gera og svo fram­vegis. Ég var meira að segja sökuð um að hafa tábrotið mig vilj­andi í lík­ams­rækt til að sleppa við erf­iðu æfing­arnar. Það gekk eig­in­lega bara allt út á það hjá þessum aðilum að finna eitt­hvað á mig. Ég til dæmis óskaði eftir sál­gæslu eftir mjög erfitt útkall og það þótti afskap­lega fyndið og mik­ill aum­ingja­skapur.“

Í einni skýrslu þar sem slökkvi­liðs­maður í Slökkvi­liði Fjarða­byggðar skil­greinir umkvört­un­ar­efni sín vegna ein­eltis fyrir Vinnu­eft­ir­lit­inu og Lands­sam­bandi slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna segir:

Hringt á fyrr­ver­andi vinnu­stað og fengið upp­lýs­ingar um hans getu og hvaða við­ur­nefni hann gengi undir. Gert mikið grín að við­ur­nefni.
Baktal að öllu leyti. Reynt að finna eitt­hvað sem þol­andi gæti hafa gert vit­laust og hann tek­inn fyrir í baktali. Honum er kennt um allt sem er ekki gert rétt, ger­endur láta aðra starfs­menn vita að þol­andi er óhæfur.

Andrea Björk lýsir því einnig hvernig yfir­menn hennar hafi tekið á kvört­unum hennar:

„Ég var búin að senda yfir­manni yfir­manns míns, það er að segja þáver­andi starfs­manna­stjóra Fjarða­byggðar, póst um ástandið og setj­ast á fund með honum og ræða málið. Nátt­úr­lega var öllu fögru lofað og talað um hvað það væri frá­bært að hafa konu í stétt­inni og að hann ætl­aði að gera allt til þess að laga stöð­una. Ég ítrek­aði erindið nokkrum sinnum við starfs­manna­stjóra Fjarða­byggðar en smám saman hætti hann svara og sam­skiptin fjör­uðu út án þess að nokkuð væri gert. Þannig að þetta var bara orðið ókleift fjall sem ég réði ekki við.“

Í kvörtun ann­ars liðs­manns Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar segir:
Ítrek­aðar ábend­ingar og kvart­anir til yfir­manna vegna ein­eltis og baktals sem ger­endur stunda ítrekað. Gert lítið úr ábend­ingum og ekk­ert gert í mál­inu.

Í skýrsl­unni eru ger­endur nafn­greindir og fram kemur að annar þeirra er örygg­is­trún­að­ar­maður á vinnu­staðnum og því ekki unnt að leita til hans sem trún­að­ar­manns til að reyna að leysa málið. Einnig kemur fram að trún­að­ar­maður stétt­ar­fé­lags starfs­manns­ins njóti ekki trausts hans og því engin hjálp í honum heldur. Starfs­menn slökkvi­liðs­ins upp­lifi því engan stuðn­ing innan vinnu­stað­ar­ins og fái ekki lausn sinna mála hjá stjórn­endum í bæj­ar­fé­lag­inu.

Sjá einnig: Flúði slökkvi­liðið vegna áreitis: „Ég óskaði eftir sál­gæslu eftir mjög erfitt útkall og það þótti afskap­lega fyndið og mik­ill aum­ingja­skapur“

Slökkviliðsstjóri hefur ekki tjáð sig um málið

Guð­mundar Helgi Sig­fús­son, slökkvi­liðs­stjóri. Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar:

Mannlíf hafði sam­band við slökkvi­liðs­stjóra Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, Guðmund Helga Sig­fús­son, og leit­aði við­bragða hans vegna máls­ins. Guð­mundur hafði ekki svar­aði erind­inu þegar blaðið fór í prentun.

Hér að neðan er tölvu­póstur sem var sendur á hann:

Sæll aftur Guð­mundur,
við erum með smá­við­bót við það sem fram kom í við­tal­inu við Andreu Björk í blað­inu á föstu­dag­inn. Rætt við fleiri fyrr­ver­andi liðs­menn Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar og vitnað í kvart­anir til Vinnu­eft­ir­lits­ins í áþekkum málum o.s.frv.
Þar kemur fram að ein­elti sé við­var­andi vanda­mál innan slökkvi­liðs­ins og að stjórn­endur liðs­ins og bæj­ar­fé­lags­ins geri lítið til að taka á slíkum málum.
Viltu tjá þig eitt­hvað um þær full­yrð­ingar eða viltu halda þig við fyrra svar um að þér sé ekki heim­ilt að tjá þig um mál ein­stakra starfs­manna?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

slökkviliðið

Slökkviliðið kallað út til að ná brotnu loftneti af þaki
Innlentslökkviliðið

Slökkvi­liðið kallað út til að ná brotnu loft­neti af þaki

Nokkuð mikið var að gera hjá slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins und­an­farin sól­ar­hring sam­kvæmt færslu sem það setti inn á sam­fé­lags­miðla í morgun. Alls voru sjúkra­bílar kall­aðir út 116 sinnum og sinnti næt­ur­vaktin 42 af þeim útköllum. „Hálku­slys, brjóst­verkir, krampar, fólk að slást og slasa hvort annað, fæð­inga­flutn­ingur, kvið­verkir og svo margt annað var meðal þess sem við sinntum í nótt.“ Þá voru...
Ung börn ein heima þegar eldur blossaði upp í íbúð í Laugardalnum
Innlentslökkviliðið

Ung börn ein heima þegar eldur bloss­aði upp í íbúð í Laug­ar­dalnum

Mikill eldur bloss­aði upp í einu her­bergi í íbúð á Hall­gerð­ar­götu á Kirkju­sandi í Laug­ar­dalnum fyrr í dag en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá slökkvi­lið­inu voru ung börn ein heima. Þrátt fyrir það slas­að­ist eng­inn en her­bergið er sagt verið mikið skemmt og vinnur slökkvi­liðið nú að reykræst­ingu á vett­vangi en búið er að slökkva eld­inn. Ekki liggur fyrir um elds­upp­tök að...
Eldur kviknaði í iðnaðarhúsi í Hafnarfirði í nótt – Partýglaðir borgarbúar höfðu hátt í heimahúsum
Innlent

Eldur kvikn­aði í iðn­að­ar­húsi í Hafn­ar­firði í nótt – Partýglaðir borg­ar­búar höfðu hátt í heima­húsum

Íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru í miklum partýgír í nótt en áber­andi mik­ill fjöldi hávaða­kvart­ana barst lög­reglu vegna sam­kvæma í heima­húsum í nótt, að því er fram kemur í dag­bók lög­reglu. Rétt fyrir hálf þrjú í nótt barst til­kynn­ing um inn­brot í heima­húsi í mið­borg­inni en málið er enn í rann­sókn. Í Hafn­ar­firði var öku­maður stöðv­aður grun­aður um að keyra fullur....
Íbúi í miðbænum festist í póstkassa
Innlentslökkviliðið

Íbúi í mið­bænum fest­ist í póst­kassa

Íbúi í miðbæ Reykja­víkur mátti reiða sig á hjálp frá slökkvi­lið­inu í gærkveldi. Íbúinn hafði séð póst­send­ingu til sín í póst­kass­anum. For­vit­inin bar ein­stak­ling­inn ofur­liði en í stað þess að sækja lyklana sína að kass­anum ákvað hann að reyna að fiska upp send­ing­una með fing­urnum. Hann stakk hönd­inni full­langt inn með þeim afleið­ingum að hún fest­ist í lúgu kass­ans. Slökkvi­liðið...
Sendiferðabíll í ljósum logum í Skerjafirði – Eldsupptök óljós
Innlentslökkviliðið

Sendi­ferða­bíll í ljósum logum í Skerja­firði – Elds­upp­tök óljós

Fyrr í dag stóð sendi­ferða­bíll í ljósum logum í Skerja­firði og lagði mik­inn reyk yfir hverfið. Einn bíll frá slökkvi­lið­inu var sendur á svæðið til að slökkva eld­inn. Mannlíf hafði sam­band við Slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að spyrja út í málið. „Þetta er lít­ill sendi­ferða­bíll sem kvikn­aði í og gerði svona mik­inn reyk. Við erum búin að slökkva, erum að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins