„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Von í vísindunum

Von í vísindunum
|Pró­fess­or­inn Andrew Sewell

Hjarta­sjúk­dómar eru langal­geng­asta dán­ar­or­sök meðal þjóða heims og á Vest­ur­löndum fylgir krabba­mein fast á eftir. En sem betur fer ber­ast reglu­lega fregnir af nýj­ungum í lækna­vís­ind­unum sem vekja vonir um nýjar með­ferðir við ill­vígum sjúk­dómum, aukin lífs­gæði og lengra líf til handa sjúk­lingum.

Ein meðferð við öllum krabbameinum?

Vís­inda­menn við Cardiff Uni­versity hafa upp­götvað nýja teg­und T-frumu sem hefur vakið vonir um eina með­ferð við öllum krabba­meinum. T-eitilfrumur eru nýjasta vonin í bar­átt­unni gegn krabba­meini en algeng­asta með­ferðin, CAR-T, gengur út á að fjar­lægja ónæm­is­frum­urnar úr lík­am­anum, gera breyt­ingar á þeim sem eru sniðnar að hverjum sjúk­lingi fyrir sig, og koma þeim aftur fyrir til að finna og drepa krabba­meins­frumur. Hingað til hafa T-frumu­með­ferð­irnar aðeins gagn­ast gegn fáum teg­undum krabba­meins og tak­mörk­uðum hóp sjúk­linga en nú segj­ast vís­inda­menn­irnir hafa upp­götvað nýja teg­und T-fruma sem búa yfir nema (TCR) sem ber kennsl á og drepur flestar teg­undir krabba­meins­fruma en lætur heil­brigðar frumur í friði.

Hefð­bundar T-frumur „skanna“ yfir­borð ann­arra fruma og ráð­ast gegn þeim sem gefa frá sér afbrigði­leg prótein. Hingað til hafa með­ferðir gengið út á að nem­inn á T-fru­munum beri kennsl á svo­kall­aða HLA-sam­eind en hún er ólík milli ein­stak­linga. Nýja T-fruman nemur hins vegar og „les“ sam­eind­ina MR1, sem er á yfir­borði allra fruma lík­am­ans og eins hjá öllum. Vís­inda­menn­irnir telja að MR1 sendi skila­boð til ónæm­is­kerf­is­ins þegar eitt­hvað er bogið við frumur, sem verður til þess að T-fruman ræðst á við­kom­andi frumur og grandar þeim. Til­raunir á músum og krabba­meins­frumum utan manns­lík­am­ans hafa gefið góða raun og T-fruman sannað ágæti sitt gegn fjölda krabba­meina, m.a. þeirra sem eru algeng­ust á Íslandi; blöðru­háls­kirtil­skrabba­meini, brjóstakrabba­meini og ristil­krabba­meini.

Pró­fess­or­inn Andrew Sewell, t.h., leiðir rann­sókn­arteymið.

Vonir eru bundnar við að hægt verði að hefja próf­anir á mönnum fyrir árs­lok en áður þarf að tryggja öryggi með­ferð­ar­innar. Hún mun ganga út á að taka blóð úr sjúk­lingnum, ein­angra T-frumur lík­am­ans, umbreyta þeim til að þær nemi MR1, rækta þær og fjölga þeim, og koma aftur fyrir í sjúk­lingnum. Vís­inda­mönn­unum hefur þegar tek­ist að sýna fram á að T-frumum sjúk­linga sem þjáð­ust af húð­krabba­meini mátti umbreyta til að nema MR1 og nota til að drepa krabba­meins­frumur úr öðrum sjúk­lingum. Próf­an­irnar voru gerðar á rann­sókn­ar­stofu, utan lík­am­ans, en gefa vís­bend­ingu um að hægt verði að virkja T-frumur úr einum sjúk­lingi til að lækna annan sjúk­ling.

„Það er mjög erfitt að heim­færa svona nið­ur­stöður upp á það sem myndi ger­ast í manns­lík­am­anum,“ segir Gunnar Bjarni Ragn­ars­son krabba­meins­læknir um nið­ur­stöð­urnar. Hann hvetur til hóf­legrar bjart­sýni. „Þetta er vissu­lega áhuga­vert og ein grunn­rann­sókn sem bætir við okkar þekk­ing­ar­grunn sem gæti nýst til að bæta með­ferð krabba­meina. Það er þó langt frá því að hægt sé að lofa því að þetta sé ein­hver lausn. Fyrst þarf að reyna þetta í mönnum og það gefur oft mjög ólíkar nið­ur­stöður,“ segir hann. Vegurinn frá rann­sókn­ar­stof­unni sé langur.

Nýtt vopn gegn vonda kólesterólinu

Bresk heil­brigð­is­yf­ir­völd hyggj­ast leggja í for­dæma­lausa rann­sókn með þátt­töku almenn­ings, sem felur í sér að ein­stak­lingum sem eru í mik­illi áhættu á að fá hjarta­á­fall eða heila­blóð­fall verður boðið lyfið inclisiran en rann­sóknir hafa sýnt að það getur minnkað veru­lega magn slæma kól­ester­óls­ins í blóð­inu á nokkrum vikum. Inclisiran hefur ekki verið sam­þykkt til almennrar notk­unar, hvorki í Evrópu né Banda­ríkj­unum, en bresk yfir­völd áætla að 40 þús­und manns gætu fengið því ávísað innan ramma sam­starfs­verk­efnis NHS og lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Novartis.

Hjarta­sjúk­dómar eru helsta dán­ar­or­sök þjóða heims.

Heil­brigð­is­ráð­herr­ann Matt Hancock segir vonir standa til að átakið verði til þess að bjarga 30 þús­und manns­lífum næsta ára­tug­inn.

Slæma kól­ester­ólið getur safn­ast upp innan æða lík­am­ans, þrengt þær og aukið lík­urnar á hjarta­á­falli og heila­blóð­falli. Inclisiran „þaggar niður í“ gen­inu PCSK9, sem verður til þess að lifrin tekur meira slæmt kól­esteról úr blóð­inu og brýtur niður. Rann­sóknir á vegum European Society of Cardiology hafa sýnt fram á að lyfið getur helm­ingað magn slæma kól­ester­óls­ins í blóð­inu á nokkrum vikum og breska heil­brigð­is­ráðu­neytið áætlar að notkun inclisiran gæti komið í veg fyrir 55 þús­und hjarta­á­föll og heila­blóð­föll á ári, fyrir hverja 300 þús­und ein­stak­linga sem nota það.

Millj­ónir manna út um allan heim taka nú þegar inn svokölluð statín­lyf, sem minnka magn slæms kól­ester­óls í blóð­inu. Þau virka hins vegar mis­vel og hafa ýmsar auka­verk­anir. Þá hefur inclisiran þann kost að það er gefið með sprautu tvisvar á ári, í stað dag­legrar inn­töku.

Lyf helmingar líkurnar á brjóstakrabbameini

Í des­em­ber sl. var greint frá því að lyfið anastrozole, sem helm­ingar líkur kvenna á því að fá brjóstakrabba­mein, héldi áfram að virka löngu eftir að inn­töku er hætt. Lyfið hamlar fram­leiðslu estróg­ens, sem örvar vöxt margra brjóstakrabba­meina en er aðeins gefið konum eftir tíða­hvörf þar sem það virkar ekki hjá yngri konum.

Anastrozole er skráð í sér­lyfja­skrá Lyfja­stofn­unar sem lyf við brjóstakrabba­meini en erlendis hefur það verið rann­sakað sem fyr­ir­byggj­andi með­ferð fyrir konur í áhættu­hóp.

Eldri rann­sóknir leiddu í ljós að anastrozole minnk­aði lík­urnar á brjóstakrabba­meini um helm­ing þau fimm ár sem konur tóku lyfið en eft­ir­fylgni með 3.800 konum leiddi í ljós að töl­fræðin var nán­ast óbreytt sjö árum eftir að inn­töku var hætt.

Á Bret­landi hafa heil­brigð­is­yf­ir­völd mælst til þess frá 2017 að konur í áhættu­hóp, m.a. vegna fjöl­skyldu­sögu um brjóstakrabba­mein, taki lyfið í for­varn­ar­skyni. Aðeins um 10% þeirra sem til­heyra þessum hóp hafa nýtt sér lyfið. Eitt áhyggju­efni hefur verið lang­tíma­á­hrif og annað auka­verk­anir en rann­sókn leiddi í ljós að 75% kvenna á anastrozole héldu áfram inn­töku þrátt fyrir auka­verk­anir, nán­ast sama hlut­fall og fékk lyf­leysu.

Tamox­ifen er annað lyf sem hefur verið gefið til að draga úr lík­unum á brjóstakrabba­meini en á meðan anastrozole minnk­aði lík­urnar um 49% á 12 ára tíma­bili, var sama hlut­fallið 28% fyrir tamox­ifen. Á Bret­landi er tamox­ifen dýr­ara en anastrozole en það hefur þann kost að gagn­ast konum fyrir tíða­hvörf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lyf

Steinunn Ólína stýrir ráðstefnu um kannabis: „Plantan er hrein snilld og gjöf til fólksins”
Innlent

Steinunn Ólína stýrir ráð­stefnu um kanna­bis: „Plantan er hrein snilld og gjöf til fólks­ins”

„Þađ er löngu kom­inn tími til ađ viđ end­ur­hugsum þetta og leyfum full­orđnu fólki ađ ráđa því svo­lítiđ sjálft hvernig þađ linar sínar þján­ingar,” segir Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, leik­kona og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóđandi, í nýjasta þætti Hamp­kasts­ins, umræđu­þætti Hamp­fé­lags­ins, en Steinunn Ólína mun í næsta mán­uđi stýra tveggja daga ráđ­stefnu, Hampur til fram­tíđar, sem haldin verđur í Salnum í Kópavogi. Hún...
Lyf við ADHD ófáanlegt í 23 daga: „Ótrúlegt að ég skuli vera uppistandandi“
Innlentlyf

Lyf við ADHD ófá­an­legt í 23 daga: „Ótrúlegt að ég skuli vera uppi­stand­andi“

Lyfið Elvanse, sem ávísað er við ein­kennum athygl­is­brests og ofvirkni, hefur verið ófá­an­legt hér á landi síðan í lok jan­úar. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins sem sér um dreif­ingu á lyf­inu segir fram­leiðslu­brest hafa orðið og að fyr­ir­tækið taki stöð­una alvar­lega. Í sam­tali við Mannlíf lýstu nokkrir ein­stak­lingar, sem taka lyfið að stað­aldri, þeim óþæg­indum og í sumum til­fellum alvar­legu ein­kennum sem skort­ur­inn...
Læknirinn Guðmundur Karl ákærður fyrir ólöglega lyfjadreifingu – Fjöldamálsögn í farvatninu
Innlentlyf

Lækn­ir­inn Guð­mundur Karl ákærður fyrir ólög­lega lyfja­dreif­ingu – Fjölda­mál­sögn í far­vatn­inu

Guð­mundur Karl Snæ­björns­son sér­fræð­ingur í heim­il­is­lækn­ingum hefur verið kærður af Lyfja­stofnun vegna gruns um að hann hafi dreift lyf­inu Ivermectin á Íslandi og að hann hafi uppi áform um að setja lyfið saman hér á landi og koma því á markað. Guð­mundur Karl hefur í kjöl­farið verið yfir­heyrður af lög­regl­unni. Guð­mundur Karl hefur tjáð sig um notkun á lyf­inu Ivermectin...
Ólöf Tara: „Þyngdarstjórnandi lyf hafa í för með sér slæmar aukaverkanir“
Innlentlyf

Ólöf Tara: „Þyngd­ar­stjórn­andi lyf hafa í för með sér slæmar auka­verk­anir“

Svo virð­ist sem nýtt æði hafi gripið um sig hér á landi en það er að sprauta sig með syk­ur­sýkis­lyf­inu Saxenda dag­lega í þeim til­gangi að létt­ast. Íslenskur áhrifa­valdur sagði fylgj­endum sínum frá þessu „undra­efni“ sem kom bylgju af stað meðal kvenna. Lyfið er aftur á móti lítið rann­sakað og virð­ist geta valdið alvar­legum auka­verk­unum. Auðvitað þurfa sumir á lyf­inu...
Tara um nýjasta megrunaræðið á Íslandi: „Lyfjameðferðir gegn offitu er harmsaga“
Innlentlyf

Tara um nýjasta megr­unaræðið á Íslandi: „Lyfja­með­ferðir gegn offitu er harm­saga“

Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir, félags­ráð­gjafi og for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu, um hefur litla sem enga trú á lyf­inu Saxenda og notkun þess í megr­un­ar­skyni hér­lendis. Hún segir að rauna hafi allar lyfja­með­ferðir gegn offitu verið harmsa­ögu. Svo virð­ist sem nýtt æði hafi gripið um sig hér á landi en það er að sprauta sig með syk­ur­sýkis­lyf­inu Saxenda dag­lega í þeim til­gangi...
Tískulyfið Saxenda – Langflestir fréttu af lyfinu frá Telmu
Innlentlyf

Tísku­lyfið Saxenda – Lang­flestir fréttu af lyf­inu frá Telmu

Mannlíf fram­kvæmdi óform­lega könnun á meðal not­enda Saxenda-lyfs­ins sem fólk hefur sprautað sig með til að létt­ast. Nið­ur­staða leiddi í ljós að áhrif Thelmu Hilm­ars­dóttur áhrifa­valds, eru slá­andi. Frétt Mannlífs um þetta lyf vakti mikla athygli. Mannlíf hafði sam­band við 65 ein­stak­linga sem eru á eða hafa verið á lyf­inu og flokk­ast ekki innan þessa ákveðna ramma sem gef­inn er...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“