„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Krist­inn gefið upp alla von um að réttlæti sé að finna í réttarsalnum

Krist­inn gefið upp alla von um að réttlæti sé að finna í réttarsalnum
Kristinn Hrafns­son. Mynd / EPA

Krist­inn Hrafns­son rit­stjóri Wiki­Leaks og vinur Julian Assange, stofn­anda WikiLeaks, segir erfitt að fylgj­ast með vini sínum í rétt­ar­höldum þar sem fram­sals­beiðni Band­ríkja­manna yfir hon­um er tek­in fyr­ir.

„Það er þung upp­lifun að sitja á palli í rétt­ar­höldum og horfa á Julian Assange í gler­búri, við hlið tveggja fanga­varða að reyna af veikum mætti fylgj­ast með mál­flutn­ingi um fram­tíð sína – lík­leg­ast um líf og dauða,“ skrifar Kristinn meðal ann­ars í færslu á Facebook.

Rétt­ar­höldin hófust á mánu­dag í rétt­ar­sal við hlið­ina á Belmarsh örygg­is­fang­els­inu í London.

„Þetta er rétt­ar­salur fyrir hryðju­verka­menn og stór­glæpa­menn. Á degi eitt, á mánu­dag var hann hand­járn­aður 11 sinnum, ber­stríp­aður í lík­ams­leit tvisvar sinnum, settur í 5 mis­mun­andi bið­klefa og þegar hann fór til baka í fang­elsið voru öll lög­fræði­gögn tekin af honum,” lýsir Kristinn í færslu sinni.

Kristinn lýsir því þegar dóm­ar­inn spurði Assange hvort hann þyrfti hlé en var beð­inn um að svara í gegnum lög­fræð­ing sinn.

„Milli­liða­laust reyndi hann að tjá sig við dóm­ar­ann í gegnum rifu á gler­búr­inu. „Hvernig á ég að geta fylgst með? Ég heyri varla nokkuð, ég á erfitt með að tala við lög­menn mína án þess að full­trúar banda­rískra stjórn­valda heyri hvað okkur fer á mill. Ég er eins og áhorf­andi á Wimbeldon. Á enga aðild!“ Dómarinn þagg­aði niður í Julian og heimt­aði að hann tal­aði við rétt­inn í gegnum lög­mann­inn. Þegar sá tók til máls end­ur­flutti hann boðin frá Julian – með beiðni um að honum yrði leyft að yfir­gefa gler­búrið og sitja með lög­mönnum sínum í rétt­ar­salnum, til þess að geta milli­liða­laust verið í beinu sam­bandi við eigin lög­menn og mál­flytj­endur í þessu flókna máli,” útskýrir Kristinn.

Hann segir að dóm­ari hafi þver­tekið fyrir að verða við beiðni Assange þar sem hún gæti ekki metið hvaða hætta gæti skap­ast yrði honum hleypt út. „Einhvers staðar þarna gaf ég upp alla von um að nokk­urt rétt­læti væri að fá þessum rétt­ar­sal,” skrifar Krisinn.

Hann segir málið ekki bara snú­ast um fram­tíð Assange heldur einnig fram­tíð blaða­mennsku eins og hún leggur sig. „Þessarar sem núna er jöfnuð við njósnir og ógn við þjóðar­ör­yggi og kraf­ist er 175 ára fang­elsis yfir þeim sem hana ástunda. Þetta er styrj­öld um grund­vall­ar­rétt­indi borg­ar­anna, fyrir aðgangi að upp­lýs­ingum, fyrir aðhaldi gagn­vart ógeð­felldu, freku og ofbeld­is­fullu valdi, fyrir sann­leik­ann og von­andi með­fylgj­andi rétt­læti.”

Færslu Kristins má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“