„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skotheld ráð fyrir heilbrigt hár

Heil­brigt og glans­andi hár fer aldrei út tísku, svo mikið er víst. Það er ýmis­legt hægt að gera til að ná fram því eft­ir­sókn­ar­verða útliti. Við tókum saman nokkur góð ráð sem gott er að hafa í huga sé mark­miðið að hafa hárið sem heil­brigð­ast.

Skotheld ráð fyrir heilbrigt hár

Nokkrir dagar á milli þvotta

Það fer illa með hárið að þvo það á hverjum degi, tvisvar til þrisvar sinnum í viku er hæfi­legt. Ef þér þykir það ekki nóg gæti verið að þú sért ekki að nota vörur sem hentar þinni hár­gerð eða að nota of mikið af hár­nær­ingu. Fagmenn á hár­greiðslu­stofum geta ráð­lagt þér hvaða vörur henta þínu hári best.

Það er óþarfi að þvo hárið á hverjum degi.

Blautt hár er viðkvæmt hár

Eitt það versta sem þú gerir hár­inu þínu er að þurrka það harka­lega með hand­klæði. Hárið er við­kvæm­ast þegar það er blautt og í stað­inn fyrir að nudda, dump­aðu hárið létt með hand­klæð­inu eftir hár­þvott. Þá er gott að hafa í huga að fara var­lega með hár­bursta í blautt hárið, heldur greiða í gegnum það með fingr­unum eða grófri greiðu.

Líflaust hár?

Sértu að eiga við líf­laust og flatt hár gæti ástæðan verið að þú notir of mikið af sápu eða ert ekki að skola hana nægi­lega vel úr hár­inu. Það tekur um fjórar mín­útur fyrir sápuna að skol­ast almenni­lega úr, svo við mælum með því að nota minna magn og skola þeim mun betur.

Silkikoddaver

Vaknarðu aðeins of oft af værum næt­ur­svefni með slæman „hár­dag“? Ef hárið er þurrt og tætt er ekki úr vegi að verða sér úti um silki­kodda­ver. Það fer mun betur með hárið auk þess sem það dregur í sig mun minna af ryki og öðrum óhrein­indum en hefð­bundin kodda­ver.

Höfuðnudd

Hver kann­ast ekki við augna­blikið á hár­greiðslu­stof­unni við vaskinn, þegar höfuðnuddið dásam­lega hefst og þig langar að stöðva tím­ann. Ótrúlegt en satt þá eru þæg­indin ekki eina ástæðan fyrir þessu dekri, heldur hefur það örvandi áhrif á blóð­flæðið í hár­sverð­inum sem skilar sér í heil­brigð­ara hári og hrað­ari vexti. Þessa athöfn er vel hægt að fram­kvæma sjálfur heima, nú eða fá ein­hvern nákom­inn í verkið.

Hitavörn

Við vitum öll að hiti og notkun hita­tækja fer ekki vel með hárið. Það er mjög mik­il­vægt að nota góðar vörur í hárið og und­ir­búa það fyrir notkun slíkra tækja og þar er hita­vörn auð­vitað efst á lista. Þegar hárið er þurrkað með hár­blás­ara er gott að enda á köldum blæstri. Það hjálpar til við að loka hár­inu eftir hita­blást­ur­inn og minnkar lík­urnar á því að hárið verði úfið.

Mik­il­vægt er að nota hita­vörn áður en heit tól eru notuð til að þurrka eða móta hárið.

Lífsstíllinn

Fjöldinn allur er til að ýmiss konar hár­vítamínum sem allir virð­ast vera að nota þessa dag­ana og eflaust eru góð og gild. En stað­reyndin er sú að flest þess­ara bæti­efna inni­halda vítamín og stein­efni sem auð­velt er að nálg­ast með því að neyta hollrar fæðu. Egg, lax, ýmiss konar ber, spínat, fræ og avókadó eru meðal þeirra fæðu­teg­unda sem taldar eru hafa góð áhrif á bæði húð og hár.

Texti / Margrét Björk Jóns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð ráð

Rökhugsunin virkar ekki sem skyldi þegar fólk er æst
Fólk

Rök­hugs­unin virkar ekki sem skyldi þegar fólk er æst

Sara Dögg Eiríks­dóttir, félags­ráð­gjafi og fjöl­skyldu­fræð­ingur hjá Sam­skipta­stöð­inni, segir ágrein­ing í sam­böndum vera eðli­legan og óhjá­kvæmi­legan. En ágrein­ing­inn þarf að tækla rétt og hún gefur nokkur góð ráð í nýjum pistli sem lesa má hérna. Meðal þess sem Sara mælir með að fólk geri er að æfa sig í að ná ró og stjórn á skap­inu. „Þegar við verðum reið...
Heldur þú heimilinu gangandi á meðan maki þinn gerir ekkert?
Fólk

Heldur þú heim­il­inu gang­andi á meðan maki þinn gerir ekk­ert?

Það getur verið krefj­andi að vera í para­sam­bandi og algengt umkvört­un­ar­efni para eða hjóna er upp­lifun á ójafnri verka­skipt­ingu á heim­il­inu. Íris Eik Ólafs­dóttir fjöl­skyldu­fræð­ingur og sátta­miðl­ari, skrifar um málið í sinn nýjasta pistil. Hún segir fólk oft upp­lifa sig gera allt á meðan mak­inn gerir ekki neitt innan heim­il­is­ins. „Algengt er að parið upp­lifi stöðu sína á afar mis­mun­andi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu