„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Þetta var frekar brjálað augnablik“

Nokkur af þeim áhuga­verðu ummælum sem voru látin falla í vik­unni.

„Þetta var frekar brjálað augnablik“
Hildur Guðna­dóttir Mynd / EPA

„Ef við göngum að kröfum Eflingar eins og þær eru settar fram núna erum við ekki bara að hækka laun í sam­ræmi við lífs­kjara­samn­ing­ana heldur til við­bótar þannig að þeir sem áttu að bíða eða fá í raun minni kjara­bætur, þeir sem eru með heldur hærri laun, háskóla­menntað fólk og svo fram­vegis, væru orðin ansi nálægt ófag­lærðum í kjörum og við vitum það sem tengj­ast þessum samn­ingum að það yrði aldrei sam­þykkt af öðrum við­semj­endum.“ -Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur.

„Á Íslandi má refsa þér alla ævi fyrir að hafa ekki sest á skóla­bekk.“ -Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar.

„Tilvist manna í skóla er sjaldan merki­legri en til­vist manna utan skóla og reynsla sem menn öðl­ast í skóla er sjaldan mik­il­væg­ari en sú sem fæst utan skóla.“ -Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar.

„Þegar það að finna sig best í klæðn­aði, sem telst ekki hefð­bund­inn hjá vest­rænum, karl­kyns, íhalds­sömum stjórn­mála­mönnum, er sagt stuðn­ingur við óhæfu­verk, jafn­vel gyð­inga­hatur, er mér eig­in­lega nóg boðið.“ -Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Tilefnið ummæl­anna eru pistla­skrif Einars S. Hálf­dán­ar­sonar í Morg­un­blað­inu, þar sem hann segir rauðan háls­klút sem Logi klæð­ist stundum tal­inn stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við „gyð­inga­hat­urs- og hryðju­verka­sam­tökin Hamas“.

„Umbóta­öflin á Íslandi eru í sókn. Þau myndu styrkj­ast enn frekar með end­ur­nýjun VG og mál­efna­legri og virkri fjar­lægð flokks­ins frá núver­andi varð­stöðu um óbreytt valda­kerfi í land­inu. Ella á VG að mínu mati ekk­ert betra skilið en að bíða afhroð í næstu þing­kosn­ingum.“ -Svanur Krist­jáns­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði.

„Varð­hundar kerf­is­ins, aðal­lega þing­menn og ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar detta hins vegar í gam­al­kunn­ugt gelt. Stóru orðin voru ekki spöruð. Þingmenn minni­hlut­ans voru kall­aðir lodd­arar og lýð­skrumarar fyrir það eitt að kalla eftir auknu gegn­sæi og upp­lýs­ingum um grund­vall­ar­mál sem tengj­ast auð­linda­nýt­ingu.“ -Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, er undr­andi á við­brögðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins við beiðni stjórn­ar­and­stöð­unnar á Alþingi um Namib­íu­skýrslu.

„Eru manna­ráðn­ingar í skjóli leyndar eðli­legar á fjöl­miðli sem á allt sitt undir gagn­sæi?“ -Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Íslenskrar erfða­grein­ingar, um leyni­makkið í kringum ráðn­ingu nýs útvarps­stjóra.

„Þetta var frekar brjálað augna­blik.“ -Hildur Guðna­dóttir tón­skáld um auga­blikið þegar hún veitti við­töku Ósk­arsverð­laun­unum við­töku og sá heims­þekkt tón­skáld á borð við John Williams úti í sal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ummæli

„Ég beini því stíft til fólks að taka stöðuna alvarlega“
Innlent

„Ég beini því stíft til fólks að taka stöð­una alvar­lega“

Ýmis áhuga­verð ummæli féllu í vik­unni. Mannlíf tók nokkur saman. „Ég kalla eftir því að næsti aðgerð­ar­pakki stjórn­valda verði í þágu fatl­aðs og lang­veiks fólks. Að öryrkjum verði tryggð mann­sæm­andi fram­færsla. Það væri sann­ar­lega hægt að hrósa fyrir slíkan aðgerð­ar­pakka sem settur væri fram til að verja jað­ar­setta hópa sem veikast standa í okkar sam­fé­lagi.“ – Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður...
„Er þetta fyrirboði um að allt sé að fara til helvítis?“
Innlent

„Er þetta fyr­ir­boði um að allt sé að fara til hel­vítis?“

Ýmis áhuga­verð ummæli voru látin falla í við­burða­ríkri viku. Hér eru nokkur. „Land­spít­ali háskóla­sjúkra­hús (LSH) er BRÁÐASJÚKRAHÚS OG KENNSLUSJÚKRAHÚS. Ég er orðin rúm­lega lang­þreytt á því að um hann sé rætt eins og um sé að ræða feitan, illa upp­al­inn krakka sem enda­laust öskrar á meira nammi!“ Aðal­heiður Dagmar Mathiesen Matth­í­as­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur. „Nú er kom­inn tími á sam­stillt­ari, djarfari og...
Hildur Lilliendahl ósátt við niðurstöðu „karldómara“ vegna ummæla hennar um Hlíðarmálið
Innlentummæli

Hildur Lilli­endahl ósátt við nið­ur­stöðu „karl­dóm­ara“ vegna ummæla hennar um Hlíð­ar­málið

„Í gær komst ein­hver karl­dóm­ari við hér­aðs­dóm Reykja­víkur að þeirri nið­ur­stöðu að fjög­urra ára gömul tján­ing mín á Facebook skyldi telj­ast dauð og ómerk.” Þetta skrifar Hildur á Facebook síðu sinni í kjöl­far nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur vegna ummæla Hildar um Hlíð­ar­málið, svo­kall­aða.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins