„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fengu batteríslausan hljóðnema – Segir vinnubrögð RÚV óásættanleg

Fengu batteríslausan hljóðnema – Segir vinnubrögð RÚV óásættanleg
Mynd af Víði / Lög­reglan. Mynd af Stein­unni / Rakel Ósk

Söng­konan Iva Marín Adrichem sem keppti í úrslitum Söngvakeppn­innar á laug­ar­dag­inn með lagið Oculis Videre sá sig í gær knúna til að tjá sig um tækni­lega örð­ug­leika sem settu stik í reikn­ing­inn hjá henni í keppn­inni.

Iva skrifar færslu á Facebook þar sem hún byrjar á að óska Daða og Gagna­magn­inu til ham­ingju með sig­ur­inn.

„Þótt gær­kvöldið hafi heilt yfir verið frá­bært og eitt af bestu kvöldum lífs míns, þá verð ég að koma á fram­færi skoð­unum mínum varð­andi tækni­leg mis­tök sem urðu á atrið­inu mínu í ljósi mik­illa umræðna á net­inu. Í upp­hafi ætl­aði ég ekki að tjá mig um málið en þar sem for­svars­fólk keppn­inar er farið að svara fyrir sig á opin­berum vet­vangi neyð­ist ég eig­in­lega til að segja mína hlið á mál­inu,“ skrifar Iva.

Hún heldur áfram og lýsir þessum tækni­legu mis­tökum sem urðu. „Í flutn­ingnum á úrslita­kvöld­inu varð míkró­fónn Söndru, sem syngur efsta sópran í bak­rödd­unum batt­er­ís­laus. Við söng­kon­urnar létum skýrt vita að ekk­ert heyrð­ist í Söndru áður en lagið hófst með þeirri von um að hægt væri að koma hljóð­nem­anum í gang. Það tókst ekki og þess vegna vant­aði 20% af söngnum eins og sá sem útsetti bak­radd­irnar benti rétti­lega á,“ útskýrir Iva. Hún segir þá ótrú­legt að hinar þrjár bak­radd­irnar hafi náð að halda lagi þar sem sópran­inn gegnir lyk­il­hlut­verki í útsetn­ing­unni.

„Við fengum engin svör…“

Hún seg­ist hafa óskað eftir að flytja lagið aftur þegar af svið­ini var komið. „Við fengum engin svör nema það að það væri ekki hægt, tækni­legir örð­ug­leikar koma fyrir í beinni útsend­ingu.“

Iva segir að hún hafi viljað segja sína hlið máls­ins því að RÚV hafi tjáð sig um málið. „Nú segja for­svars­menn keppn­inar að höf­undur verði að óska eftir end­ur­flutn­ingi en þar sem það var gert skil ég ekki að ég hafi ekki fengið að fara aftur á svið. Lík­leg­asta skýr­ingin fannst mér að við áttum að koma í við­tal strax eftir flutn­ing síð­asta lags­ins og því hafi ekki verið tími. Mér finnst ótrú­lega leið­in­legt að þetta hafi komið upp og að greini­lega hafi um stóran mis­skiln­ing verið að ræða.“

Iva bætir við að henni þyki óásætt­an­legt að starfs­menn RÚV hafi ekki gengið úr skugga um að allir hljóð­nemar væru í lagi áður en hún steig á svið. „Þó finnst mér þau vinnu­brögð að checka ekki á raf­hlöðum í hljóð­nemum óásætt­an­leg því það er af mér vit­andi alltaf gert fyrir hvern flutn­ing. Þar sem við létum skýrt vita fyrir flutn­ing­inn hefði mér einnig fund­ist rétt­ast að lagið væri stöðvað og skipt um hljóð­nema. Meira ætla ég ekki að tjá mig um þetta,“ skrifar Iva.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

söngvakeppnin

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“
Innlentsöngvakeppnin

VÆB-bræður fá við­vörun frá Ísrael: „Það er ómögu­legt“

Sigur VÆB-bræðra í Söngvakeppn­inni hefur ekki farið fram­hjá fólki í Ísrael en þeir bræður voru sak­aðir af laga­höf­und­inn Ofir Cohen að hafa stolið lagi hans. Í sam­tali við Mannlíf sagði RÚV að eftir að hafa fengið sér­fræð­inga hafa skoða málið yrði bræðr­unum leyft að taka þátt. Þetta sættir Cohen sig ekki við og vill fá við­eig­andi bætur fyrir. „Fyrst og...
Söngvakeppnin og þátttaka RÚV í Eurovision kostar um 180 milljónir króna
Menning

Söngvakeppnin og þátt­taka RÚV í Eurovision kostar um 180 millj­ónir króna

Áætlaður kostn­aður við fram­kvæmd Söngvakeppn­innar og þátt­töku RÚV í Eurovision í ár, er um 180 millj­ónir króna. Í kvöld fer fram seinna und­an­úr­slita­kvöld Söngvakeppn­innar á RÚV þar sem fimm atriði keppa um hylli áhorf­enda og mögu­leik­ann á að taka þátt í Eurovision-söngvakeppn­inni sem fram fer í Sviss í mars næst­kom­andi. Mannlíf sendi fyr­ir­spurnir til RÚV þar sem meðal ann­ars var...
VÆB heldur sæti sínu í Söngvakeppninni eftir rannsókn: „Ákveðið að aðhafast ekki frekar í málinu“
Innlentsöngvakeppnin

VÆB heldur sæti sínu í Söngvakeppn­inni eftir rann­sókn: „Ákveðið að aðhaf­ast ekki frekar í mál­inu“

Hljóm­sveitin VÆB mun taka þátt í Söngvakeppn­inni 2025 en Rúnar Freyr Gíslason, verk­efna­stjóri hjá RÚV, stað­festi þau tíð­indi við Mannlíf. Hljóm­sveitin hafði verið sökuð um að stela vin­sælu lagið frá Ísrael og fór RÚV í skoðun á mál­inu með hjálp sér­fræð­inga. „RÚV hefur ákveðið að aðhaf­ast ekki frekar í mál­inu. Dúettinn VÆB mun því flytja sitt lag, RÓA, í Söngvakeppn­inni...
Örlög VÆB ráðast í vikunni – Sakaðir um að hafa stolið lagi
Menning

Örlög VÆB ráð­ast í vik­unni – Sakaðir um að hafa stolið lagi

Hljóm­sveitin VÆB sem tekur þátt í Söngvakeppn­inni 2025 hefur verið sakað um að stela hluta úr öðru lagi og nota sem eigið lag en um er ræða vin­sælt lag frá Ísrael. Sumir telja að vísa eigi hljóm­sveit­inni úr keppni og hafa höf­undar ísra­elska lags­ins haft sam­band við lög­fræð­inga vegna máls­ins. Í svari frá Rúnari Frey Gísla­syni, verk­efna­stjóra hjá RÚV, kemur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins