Kvikmyndahátíðin í Cannes fer ekki fram í maí eins og fyrirhugað var vegna kórónuveirufaraldursins. Hátíðin átti að fara fram 12. til 23. maí en nú er alls óvíst hvort eitthvað verði af henni.
Tískuunnendur verða því víst að bíða eitthvað lengur eftir að fá að virða fyrir sér tískuna sem spilar alltaf stórt hlutverk á hátíðinni. Þangað til er gaman að rifja upp nokkur eftirminnileg dress sem hafa prýtt rauða dregilinn á Cannes-hátíðum fyrri ára.

Leikkonan Susan Sarandon í kjól frá Jean Paul Gaultier árið 2016.

Leikkonan Blake Lively vakti eftirtekt í Gucci-kjól árið 2014.

Leikkonan Chloe Sevigny í skemmtilegum kjól frá tískuhúsi Miu Miu.

Leikkonan Margot Robbie í dressi frá Chanel á rauða dreglinum í fyrra.

Leikkonan Elle Fanning var glæsileg á sýningu myndarinnar Once Upon A Time… In Hollywood á hátíðinni 2019. Hún klæddist Dior frá toppi til táar.
Mynd: Facebook.

Charlize Theron í gulum kjol frá Dior árið 2015.

Julianne Moore í kjól frá Armani Privé 2015.
Myndir | EPA

























Athugasemdir