„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Þetta eru ömurlegar aðstæður“

„Þetta eru ömurlegar aðstæður“
Björn bendir á að fyr­ir­tækin verði að vera fjár­hags­lega í stakk búin að hefja rekstur á nýjan leik eftir far­ald­ur­inn.

„Við erum búin að leggja stærstum hluta okkar flota,“ segir Björn Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Kynn­is­ferða, í sam­tali við Mannlíf. Hann segir að fáeinar ferðir hafi verið farnar í upp­hafi vik­unnar en að þetta hafi fjarað út. Þeir síð­ustu sem áttu bókað hafi ekki mætt. „Það er ekk­ert eftir af fólki.“

Starf­semi Kynn­is­ferða, eða Reykja­vík Excursions – Kynn­is­ferðir ehf., er marg­þætt. Fyr­ir­tækið býður upp á úrval ferða og afþr­ey­ingu fyrir ein­stak­linga og hópa. Fyr­ir­tækið rekur ferða­skrif­stofu, bíla­leigu lang­ferða­bíla og stræt­is­vagna, auk þvotta­stöðvar og bif­reiða­verk­stæðis. Björn segir að starf­semin liggi að stærstum hluta niðri en akstur um 50 stræt­is­vagna hafi þó haldið sér, þótt far­þega­fjöld­inn hafi minnkað veru­lega.
Fyr­ir­tækið er með um 400 manns í vinnu. Hann segir að um 100 manns starfi við akstur stræt­is­vagn­anna. Þeir haldi sínu starfs­hlut­falli en að hinir 300 starfs­menn­irnir fari í 25 pró­sent starf á móti hluta­bótum atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs.

„Fyr­ir­tækin þurfa að vera til­búin þegar þetta fer af stað aftur þannig að þau geti kynnt sig og boðið góða þjón­ustu.“

„Þetta eru ömur­legar aðstæður og alveg for­dæma­lausar,“ segir Björn um stöðu mála. Hann segir að óvissan sé verst. Þótt bar­áttan við veiruna gangi sæmi­lega hér heima þá snú­ist þetta hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum ekki síst um það hvernig stóru þjóð­unum í kring um okkur vegni, til dæmis hvenær flug hefst aftur til Banda­ríkj­anna og hvenær sam­komu­banni í Þýska­landi verður aflétt. „Ferða­vilj­inn þarf að koma aftur. Á því gæti orðið ein­hver bið. Vonandi kemur eitt­hvað í júní og júlí.“

Hann segir miklu máli skipta að Íslend­ingar verði dug­legir að ferð­ast inn­an­lands á kom­andi mán­uðum – og nýta sér íslensk ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki. Hann seg­ist vissu­lega ekki búast við því að Íslend­ingar flykk­ist í skipu­lagðar dags­ferðir að Gull­fossi og Geysi en segir aðra kosti í stöð­unni. „Við höfum til dæmis verið að bjóða ferðir í Land­manna­laugar, Þórsmörk og Skóga á sumrin.“ Slíkar ferðir geti hentað fólki sem gengur Lauga­veg­inn eða vill fara í göngu­ferðir í Land­manna­laugum.

Geta lifað í þónokkra mánuði

Nánari umfjöllun í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Spurður hvernig fyr­ir­tækið sé í stakk búið til að takast á við þessa stöðu svarar Björn því til að það standi ágæt­lega. Launa­kostn­aður hafi verið skor­inn mjög niður, með áður­nefndum aðgerðum, og það sé langstærsti kostn­að­ar­lið­ur­inn. Fyr­ir­tækið sé einnig að nýta sér fryst­ingu á lánum með sex mán­aða greiðslu­fresti. „Við getum lifað í þónokkra mán­uði.“

Björn segir að miklu máli skipti að stjórn­völd verði fljót­ari að bregð­ast við nú en þegar banka­hrunið skall á. Mik­il­vægt sé að vinna hratt. Hann bendir á að fyr­ir­tækin þurfi að standa sæmi­lega þegar ferða­menn­irnir fari að koma á nýjan leik. „Fyr­ir­tækin þurfa að vera til­búin þegar þetta fer af stað aftur þannig að þau geti kynnt sig og boðið góða þjón­ustu,“ útskýrir hann. Það gangi ekki að þurrka upp allt laust fé.

Býst við gjaldþrotum

Hann á von á því að ein­hver ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki munu fara í þrot. Mörg hafi verið orðin illa stæð eftir fall WOW air síð­ast­liðið vor. „Ég hef heyrt að ein­hver fyr­ir­tækin eigi orðið erfitt með að borga laun. Mörg fyr­ir­tæki eru farin að fjár­magna sinn rekstur á bók­unum fram í tím­ann. Þegar þessar ferðir næstu mán­uði eru afbók­aðar þarf að end­ur­greiða fólki þær greiðslur,“ segir hann. Björn segir að inn­heimta sé auk þess orðin mjög þung. Út um allan heim séu fyr­ir­tæki í sömu stöðu. „Það borgar eng­inn reikn­inga. Þetta gengur eðli­lega illa og vindur upp á sig.“

Aðspurður segir Björn að fyr­ir­tækið hafi fyrr í mán­uð­inum sagt upp því fólki sem hafði nýlega hafið störf hjá fyr­ir­tæk­inu og var með minna en mán­að­ar­upp­sagn­ar­frest. „Allir aðrir sem eru með mán­að­ar­upp­sagn­ar­frest eða meira hafa farið í þessa 25 pró­sent leið með okkur.“

Lestu ítar­lega umfjöllun um málið í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins