„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Krabbameinið undirbúningur fyrir COVID-19

Krabbameinið undirbúningur fyrir COVID-19
|Ingi­björg Rósa.

Uppi­stand­ar­inn og fjöl­miðla­konan Ingi­björg Rósa segir margt líkt með þeirri upp­lifun sem fólk gengur í gegnum núna í tengslum við kór­ónu­veiruna og því að grein­ast með krabba­mein. Sjálf greind­ist hún með brjóstakrabba­mein fyrir rúmu ári og segir bar­átt­una við sjúk­dóm­inn hafa verið góðan skóla fyrir ástandið núna.

Ingi­björg Rósa er búsett í Edinborg, þar sem íbú­arnir eru í útgöngu­banni vegna COVID-19. Henni finnst við­brögðin á Íslandi við far­aldr­inum hafa verið yfir­veguð og ábyrg. Yfirvöld hafi staðið sig mjög vel í þeirri stöðu sem er komin upp, láti sér­fræð­ing­ana vinna sína vinnu og gæti þess að upp­lýsa fólkið í land­inu. Almenn­ingur sýni líka skyn­semi, taki upp­lýs­ingum og leið­bein­ingum alvar­lega en haldi samt ró sinni og tapi ekki gleð­inni.

Á tímum COVID-19 far­ald­urs­ins hefur gripið um sig mik­ill ótti í sam­fé­lag­inu, og ekki að ástæðu­lausu, veiran er skað­leg, í verstu til­vikum ban­væn. Uppi­stand­ar­inn og fjöl­miðla­konan Ingi­björg Rósa sem er búsett í Edinborg, fjarri ást­vinum sínum, er ein þeirra sem tekst á við aðstæð­urnar af æðru­leysi. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist hún í raun vera furðu slök yfir ástand­inu en það megi lík­leg­ast rekja til þess að hún hafi gengið í gegnum svona krísu áður. Þótt þetta séu títt­nefndir „for­dæma­lausir” tímar þá sé nefni­lega margt líkt með þeirri upp­lifun sem fólk gengur í gegnum núna í tengslum við kór­ónu­veiruna og því þegar hún sjálf greind­ist með brjóstakrabba­mein fyrir rúmu ári síðan.

„Við höfum einmitt rætt þetta í spjall­hópum krabba­meins­greindra, hvernig við upp­lifum svip­aðar aðstæður og til­finn­ingar nú, en mun­ur­inn sé sá að við upp­lifum þetta ekki einar núna, heldur bók­staf­lega allir í kringum okkur líka, allt þjóð­fé­lagið,“ segir Ingi­björg Rósa. „Það sem ég á við er að það kemur allt í einu stórt inn­grip í þitt dag­lega líf. Þú missir stjórn­ina á aðstæðum og nán­ustu fram­tíð. Öll plön fara í vaskinn. Þú missir mögu­lega tekjur. Hefur áhyggjur af afkomu þinni. Og þú sérð fram á að eitt­hvað sem þú bauðst aldrei inn í líf þitt mun taka stóran bita af tíma þínum og orku í ein­hverja mán­uði, setja þér miklar hömlur og tak­marka frelsi þitt. Þú veist ekki alveg hvenær ástandið endar, eða hvernig og hvað tap­ast á leið­inni.“

„Þú missir stjórn­ina á aðstæðum og nán­ustu fram­tíð … Þú veist ekki alveg hvenær ástandið endar, eða hvernig og hvað tap­ast á leið­inni.“

Að hennar sögn er þetta nákvæm­lega sama óvissa og blasir við þegar fólk stendur frammi fyrir krabba­meins­grein­ingu sem þarf að bregð­ast við strax og með afdrifa­ríkum aðferðum. Allt sé gert til að bjarga fólki þannig að það fylgi ráð­legg­ing­unum og gangi sam­þykkt inn í „eitt­hvað furðu­tíma­bil“ í trausti þess að það sé því fyrir bestu, þótt undir niðri sé fólk ekki endi­lega sátt og upp­lifi kvíða, hræðslu, reiði, sorg og söknuð eftir því hvernig lífið var áður en þessar aðstæður komu upp, og sjái á eftir áætl­unum sem geta ekki ræst. Þetta sé einmitt það sem er að ger­ast núna þegar öll heims­byggðin er beðin um að hlíta til­mælum yfir­valda í von um að það vinni gegn útbreiðslu kór­óna­veirunnar.

Allir jafn sýklahræddir

Ingi­björg Rósa bendir á að almenn­ingur bregð­ist líka við og eins og fólk gerir sem fær krabba­meins­grein­ingu. Hún verði vör við ákveðið „panikk“í kringum sig og hún skilji full­kom­lega hvernig fólki líði. „Það er alls ekki eins og það hlakki í mér en ég get sagt við þetta fólk: „Nú skil­urðu kannski hvernig mér leið.” Því það skildu ekk­ert allir þá hvers vegna ég var ekki alltaf jákvæð, bjart­sýn og kát yfir því að krabba­meinið mitt var lækn­an­legt og bata­líkur góðar, og þessu sama fólki fannst dálítið auka­at­riði að ég þyrfti að fara í gegnum margra mán­aða með­ferð og eft­ir­með­ferðir sem hefðu bæði tíma­bundin og var­an­leg áhrif á líf mitt. Fólk telur öllu skipta að við lifum af, en síður það að hafa stjórn á eigin lífi, frelsi og getu til að gera það sem okkur langar til og önnur slík lífs­gæði.“

Hún segir að núna upp­lifi allir það að til að bjarga lífi sínu og lífs­háttum þurfi þeir tíma­bundið að gefa frá sér frelsi og lífs­gæði sem fæstir hafi kannski spáð mikið í áður. „Ein­angrun og sýkla­hræðsla er til dæmis eitt­hvað sem krabba­meins­greint fólk og aðrir á ónæm­is­bælandi með­ferð þekkir mjög vel. Ég sjálf lifi líf­inu mest­megnis eins og ég gerði stóran hluta árs­ins í fyrra, nú eru bara fleiri farnir lifa líf­inu eins og ég,“ segir hún og kveðst eig­in­lega vera fegin því að aðrir skuli líka vera farnir að spá í hvar sýklar geti leynst og að þeir séu hættir „að hósta í lófann og káfa með putt­unum á öllum fjár­anum.“

Óttast ekki smit

En er Ingi­björg í alvöru sjálf ekk­ert hrædd við ástandið? „Nei, í þeim skiln­ing að ég ótt­ast ekki um sjálfa mig. Ég á að vera komin með ágætt ónæm­is­kerfi aftur og lít ekki á mig í áhættu­hópi. Ég hef líka mjög góða reynslu af heil­brigð­is­kerf­inu hérna í Skotlandi og treysti því, og það þótt Skotar hafi verið aðeins kæru­laus­ari en Íslend­ingar þegar veiran skaut upp kolli hér. Ekki síst vegna þess að bresk yfir­völd tóku þetta ekki nógu föstum tökum frá byrjun, þannig að almenn­ingur gerði sér ekki grein fyrir alvar­leika máls­ins, ekki fyrr en yfir­völd neydd­ust til að setja á útgöngu­bann í síð­ustu viku. En þótt ég sé ekki hrædd um sjálfa mig, vil ég taka það fram að ég finn mikið til með þeim sem eru enn í krabba­meins­með­ferð og hef auð­vitað dálitlar áhyggjur af að mamma mín eða aðrir ber­skjald­aðir ætt­ingjar og vinir veik­ist. Maður hefur nátt­úr­lega alltaf mestar áhyggjur af vel­ferð sinna nán­ustu.“

Ingi­björg Rósa segir líka skipta höf­uð­máli að reyna að tækla ein­angr­un­ina sem margir upp­lifa núna. Nokkuð sem hún þekki vel eftir að hafa farið í gegnum krabba­meins­með­ferð fjarri ást­vinum sínum.

Allt í lagi að finna til reiði og sorgar

En hvað með þá sem eru nálum yfir ástand­inu, á Ingi­björg ein­hver ráð handa þeim? „Ef fólk vill fá ráð­legg­ingar og hug­hreyst­ingu getur hrein­lega reynst vel að tala við ein­hvern sem hefur gengið í gegnum krabba­meins­með­ferð,“ segir hún, „það er að segja ef við­kom­andi er örugg­lega búinn að jafna sig og til­bú­inn að gefa af sér eftir þá lífs­reynslu.

Að feng­inni reynslu ráð­legg ég ann­ars fólki að sleppa tak­inu og sætta sig við að hafa ekki stjórn á ákveðnum hlutum og ein­beita sér að því sem það þó getur haft stjórn á. Leyfa sér stundum að finna til sjálfs­vor­kunnar, reiði og sorgar. Nei­kvæðar til­finn­ingar eru eðli­legar og jafn­vel nauð­syn­legar og svo­lítil reiði getur meira að segja fyllt okkur eld­móði til að takast á við verk­efni. Ég setti mér til dæmis þá reglu að ef ég átti and­lega slæman dag, leyfði ég mér bara að taka hann alla leið, var á nátt­föt­unum á sóf­anum með Netflix og snýtu­bréf, borð­aði það sem mig lang­aði til og sagði vinum og vanda­mönnum að ég væri ekki til við­tals. En ég leyfði mér bara einn svona dag í einu, aldrei tvo daga í röð. Þá gat ég risið upp næsta morgun án sam­visku­bits, því ég hafði gefið sjálfri mér leyfi til að eiga slæman dag, og átt svo mun betri dag án þess að gera mikið. Bara það að fara í sturtu og klæða sig var þá strax mik­ill sigur og gaf mér orku til að nýta dag­inn vel og njóta.“

Ekki láta kvíðann ná yfirhöndinni

Ingi­björg Rósa segir líka skipta höf­uð­máli að reyna að tækla ein­angr­un­ina sem margir upp­lifa núna. Nokkuð sem hún þekki vel eftir að hafa farið í gegnum krabba­meins­með­ferð fjarri ást­vinum sínum. „Ég pass­aði mig til dæmis á að fá frískt loft og dags­birtu í and­litið á hverjum degi, jafn­vel þegar ég gat bara opnað glugg­ann við rúmið og lagt höf­uðið í glugga­kist­una,“ rifjar hún upp. „Þegar ég varð hress­ari fór ég að prófa sjálfs­efl­andi stöður á morgn­ana. Þá fór ég út í glugga á nátt­föt­unum og rak hnef­ana upp í loftið eins og sig­ur­veg­ari eða stóð gleið með hendur á mjöðmum, rétti and­litið móti birt­unni og hélt stöð­unni í um tvær mín­útur á meðan ég minnti sjálfa mig á hvað það væri frá­bært að sjá nýjan dag, hverju ég væri búin að áorka og að ég yrði að halda ótrauð áfram. Það hjálp­aði.“

Einnig sé mik­il­vægt að finna sér eitt­hvað að gera, annað en að hanga á sam­fé­lags­miðlum. „Til dæmis taka til, en muna þá að verð­launa sig inn á milli og gera svo eitt­hvað sem maður gleymir sér við en er samt örvandi fyrir hug­ann. Eins og að leggja kapal, spila orða­leik í sím­anum, leysa kross­gátu, teikna, lita, mála eða spila á hljóð­færi.“ Allt þetta þreyti mann meira en að horfa á tölvu­skjá eða sjón­varp og fyrir vikið sofi maður betur. Standi til að horfa á eitt­hvað sé gott að forð­ast alvar­legt efni og horfa frekar á létt­meti og grín.

„Við eigum erfitt með að sjá til lands núna, en það er samt þarna, gleymum því ekki.“

Hún segir líka áríð­andi að láta kvíða og hræðslu ekki ná tökum á sér, það hafi slæm áhrif á önd­un­ina sem geti leitt af sér enn meiri kvíða og streitu­á­stand í lík­am­anum. Tilvalið sé að taka nokkrar mín­útur á hverjum degi til að ein­beita sér að því að anda djúpt og yfir­vegað ofan í maga nokkrum sinnum. „Og að sjálf­sögðu er mik­il­vægt í miðju kvíða­kasti að ein­beita sér að því að anda og treysta því að geta andað. Ef ein­hvern tíma er tæki­færið til að prófa jóga og hug­leiðslu þá er það núna. Það róar hug­ann og drepur tím­ann.“

Bara tímabundið ástand

Ingi­björg Rósa und­ir­strikar að hún skilji mjög vel hvernig fólki líði. „Ekkert okkar valdi sjálft þessar aðstæður sem eru komnar upp núna, lífið verður aldrei aftur nákvæm­lega eins og það var og það er auð­vitað yfir­þyrm­andi til­hugsun. Hins vegar veit ég sem er að svona ógn­vekj­andi aðstæður, þær eru bara tíma­bundið ástand,“ segir hún með ríkri áherslu. „Við eigum erfitt með að sjá til lands núna, en það er samt þarna. Gleymum því ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónaveira

Innlentkórónaveira

Biðst afsök­unar en neitar að afhenda kvitt­anir

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, iðn­aðar- nýsköp­unar- og ferða­mála­ráð­herra, neitar Mannlíf um að fá kvitt­anir fyrir þeirri þjón­ustu og þeim veit­ingum sem hún þáði á Covid-djammi vin­kvenna síð­ast­lið­inn laug­ar­dag. Hitt­ing­ur­inn var kost­aður af Icelandair en ráð­herr­ann full­yrðir að hafa borgað fyrir sig sjálf. Til að stað­festa þau orð óskaði Mannlíf eftir kvitt­unum þess efnis en Þórdís Kolbrún vill ekki afhenda þær...
Þórólfur og Víðir sagðir hafi misst allan trúverðugleika fyrir Þórdísi: „Sorglegt“
Innlentkórónaveira

Þórólfur og Víðir sagðir hafi misst allan trú­verð­ug­leika fyrir Þórdísi: „Sorglegt“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son segir að Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hafi misst allt boð­vald meðal þjóð­ar­innar eftir að þeir komu Þórdísi Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ferða­mála­ráð­herra til varnar í gær. Allt í einu er tveggja metra reglan orðin af við­miði þegar ráð­herra á í sök. Þórdís fór út á lífið með vin­konum sínum um helg­ina og af myndum af...
Ráðherra segir umræðu misskilning: „Myndin var óþarfi og við hefðum ekki átt að taka hana“
Innlentkórónaveira

Ráðherra segir umræðu mis­skiln­ing: „Myndin var óþarfi og við hefðum ekki átt að taka hana“

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, segir það hafa verið mis­tök af hennar hálfu og vin­kvenna sinna að hafa stillt sér upp fyrir hóp­mynd á umdeildum vin­konu­hitt­ingi um helg­ina. Að öðru leyti hafi hún engar reglur brotið þó svo það hefði verið ein­fald­ara að mati ráð­herr­ans hefði hún sleppt því að mæta. Þórdís Kolbrún fékk illa á bauk­inn...
Viðbrögð Þórdísar sögð verri en brotið – Tali eins og „hún eigi það skilið að brjóta samkomubannið“
Innlentkórónaveira

Viðbrögð Þórdísar sögð verri en brotið – Tali eins og „hún eigi það skilið að brjóta sam­komu­bannið“

Hegðun Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Íslands, um helg­ina hefur vakið hörð við­brögð meðal margra Íslend­inga. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, hefur sjálfur sagt að hegðun hennar hafi verið „óheppi­leg“. Þórdís fór út á lífið með vin­konum sínum og af myndum af dæma þá var tveggja metra reglan þeim ekki ofar­lega í huga. Gunnar Smári Egilsson, fjöl­miðla­maður og sós­í­alisti,...
Þórdís fær illa á baukinn fyrir COVID-djammið
Innlentkórónaveira

Þórdís fær illa á bauk­inn fyrir COVID-djam­mið

COVID-djamm Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Íslands, hefur vakið hörð við­brögð víða á sam­fé­lags­miðlum. Frétta­blaðið greindi fyrst frá því að hún hafi varið laug­ar­deg­inum með vin­konu­hópi sínum og kíkti út á lífið. Hún birti sjálf myndir af þessu á sam­fé­lags­miðlum en óhætt er að segja að þar hafi tveggja metra reglan verið möl­brotin. Hún bar fyrir sig...
Fólk að veikjast mikið á níunda til þrettánda degi
Innlentkórónaveira

Fólk að veikj­ast mikið á níunda til þrett­ánda degi

Staðan er almennt góð á COVID-19-göngu­deild Land­spít­al­ans að sögn Bryn­dísar Sig­urð­ar­dóttir, smit­sjúk­dóma­læknis á Land­spít­al­anum. Enginn sjúk­lingur er inniliggj­andi núna vegna kór­óna­veirunnar. Bryndís ræddi stöð­una í morg­un­út­varpi Bylgj­unnar í morgun. Hún tók fram að starfs­fólk COVID-19 göngu­deildar væri nú í bið­stöðu vegna hóp­sýk­inga sem hafa komið upp hér á landi und­an­farið þar sem reynslan sýnir að fólk veik­ist gjarnan í seinni...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins