„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Haltu þig í meira en kurteisisfjarlægð frá þeim sem vilja vefja þig í fjötra af boðum og bönnum í mataræði“

Ragga Nagli er klínískur heilsusál­fræð­ingur og einka­þjálf­ari. Á Facebook heldur hún úti vin­sælli síðu þar sem hún birtir reglu­lega pistla um hreyf­ingu, matar­æði og fleira.

„Haltu þig í meira en kurteisisfjarlægð frá þeim sem vilja vefja þig í fjötra af boðum og bönnum í mataræði“
Ragga nagli Mynd / Rut Sig­urð­ar­dóttir

Í nýjasta pistil sínum skrifar Ragga um boð og bönn í mat­ar­venjum að loknu sam­komu­banni.

Í dag 4. maí eru margir eins og beljur að vori og flykkj­ast í ondúler­ingu á hár­greiðslu­stofu, láta nudd­ara þukla skrokk, sjúkra­þjálf­ara pota í vöðva, kírópraktóra hnykkja hálsa.

Við höfum þráð eðli­legt líf.
Við höfum þráð sam­neyti.

En nú er líka tím­inn þar sem þér er sagt að grenna þig eftir hám í heima­vist­inni.

Þar sem ísskáp­ur­inn var aðeins nokkur skref í burtu og matur varð vinur, afþrey­ing og dægradvöl.

Nú ætlar hver ein­asti gúrú og sam­steypa að flækja líf þitt með boðum og bönnum.
Stjarneðl­is­fræði­legu snæð­ingaplani, magískum mat­vælum, epískri komb­ina­sjón af vítamínum eða stór­kost­legri aðferð við hreinsun lifrar.

Ávextir eru stút­fullir af sykri og skal forð­ast eins og loga vítis.
Borða á tveggja tíma fresti, á sautján tíma fresti, einu sinni á dag, annan hvern dag.
Forðast kol­vetni eins og plág­una.
Ekki borða eftir kvöld­mat þó þú sért svangur.
Sleppa hveiti, sykri, smjöri.
Slafra bernes, beikon og rjóma.
Engar mjólk­ur­vörur. Ekkert glút­ein.
Ekkert sæl­gæti…. ALDREI
Logga kalor­íur í app.

Við allar þessar reglur deyr eitt­hvað innra með okkur.
Lífs­föru­nautar eru kvaddir.

Bless brauð.
Bless Nóa Kropp.
Bless kart­öflur og hrís­grjón
Bless ánægju­leg til­vera.

Eins og lús­ugur Óliver Twist sem hafði ekki efni á brauð­hleif er mænt löng­un­ar­augum á hveiti­hleif­ana sem ekki má borða.
Og súkkulaðið.

Nema á laug­ar­dögum. Þá er nammidagur og allt leyfi­legt. Undir þeim for­merkjum að það er eins­konar svart­hol þar sem lík­am­inn ferlar ekki kalor­íur.

Eft­ir­leik­ur­inn er bjúgur, sviti og slen langt fram eftir viku.
Sálin stút­full sam­visku­bits.
Áhyggjur af þyngd­ar­aukn­ingu.
Jogg­ing­gall­inn sport­aður fram á mið­viku­dag til að fela bjúg­aða vömb.
Óhófleg lík­ams­rækt til að brenna þessu hræði­lega glút­eini, kol­vetnum, hveiti eða hvað það var sem er dauða­synd að inn­byrða.

„Ohhh borð­aði brauð með ban­ana eftir kl sjö um kvöld og logg­aði ekki í appið. Átján mar­íu­bænir og svipu­hýð­ingar á mig.“

Lyk­ill­inn að hug­arró, jafn­vægi og heil­brigðu sam­bandi við mat er að strika út bann­listana.

Því þeir valda allt-eða-ekk­ert hugs­un­unum.
Normalíser­aðu rún­stykkið eða Nóa Kroppið.
Þá þarftu ekki að klára pok­ann þar til augun standa á stilkum.
Því þú getur slafrað hóf­legt magn á morgun og hinn og hinn.

Ekkert eitt mat­væli spikar þig eins og holda­naut.
Ekkert eitt mat­væli tálgar þig í Adonis sjálfan.

Ávextir full­nægja oft sætu­þörf og gera þig ólík­legri til að sækja í sæl­gæti.
Ávextir veita haug af trefjum og fyll­ingu og aðeins örfáar hita­ein­ingar.
Ávextir eru líka góm­sætir og gor­djöss.

Haltu þig í meira en kurt­eis­is­fjar­lægð frá þeim sem vilja vefja þig í fjötra af boðum og bönnum í matar­æði.

Því þú verður með þá snöru um háls­inn um ókomna tíð með rang­hug­myndum um hvað þú mátt og mátt ekki.

Spritt­aðu eyru og augu fyrir kjaftæði inter­nets­ins.

Mynd / Ragga Nagli

Facebooksíða Röggu nagla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins