Ritstjórn Húsa og híbýla féll algjörlega fyrir lampanum þar sem möguleikarnir eru endalausir.


Á lampanum er einnig ljósdeyfir og hægt er að velja um þrjár birtustillingar. Lampinn er 23,2 cm á hæð og 16 cm í þvermál og hentar vel í alls kyns útstillingar svo sem eins og í hillu eða á borð. Auðvelt er að færa hann til á milli rýma og hentar hann vel bæði úti og inni.

Birtan frá honum er einstaklega falleg og er tilvalið að taka hann með sér út á pall eða á svalirnar þegar setið er úti, en hann getur skapað sannkallaða veitingahúsastemningu. Batteríið endist í um fimm klukkustundir. Lampinn fæst í Epal.





















Athugasemdir