Margir skemmtilegir viðburðir eru á dagskrá hátíðarinnar og mun Guðmundur Oddur Guðmundsson, Goddur, halda fyrirlestur í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg þann 7. febrúar nk. kl. 20 og er viðburðurinn hluti af dagskrá Safnanætur.
Fyrirlesturinn heldur Goddur í tengslum við rannsóknarverkefnið, Íslensk myndmálssaga, sem nú hefur aðsetur í Hönnunarsafni Íslands. Um fyrirlesturinn segir: „Sköpunarverk mannsins og hugmyndir ferðast eins og rekaviður, veltast um en eru ekki eins frumlegar og margur heldur. Hugmyndin er sú sama en útfærslan breytist á leiðinni eftir persónuleikum, staðbundnum efnivið og verkþekkingu.“
Hægt er að kynna sér dagskrá Vetrarhátíðar betur hér.





















Athugasemdir