„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fimm leiðir til þess að gera heimilið skilvirkara

Hér koma fimm leiðir til þess að gera heim­ilið skil­virkara. Þetta er gott að hafa í huga þegar rými heim­il­is­ins eru skipu­lögð.

Fimm leiðir til þess að gera heimilið skilvirkara
Í barna­her­bergjum getur það reynst mikil áskorun að koma öllu dóti fyrir í hirslum á hand­hægan hátt en þar geta hirslur undir rúmum verið sniðug lausn líkt og geymslu­box á hjólum. Gullna reglan er að kaupa engar hirslur fyrr en búið er að grisja og losa sig við það dót sem ekki er lengur í notkun. Rúm með inn­byggðum hirslum er einnig sniðug lausn sem auð­veldar barn­inu að nálg­ast dótið sem og að ganga frá því að leik loknum.
Rými undir stigum er oft illa nýtt og marga skortir hrein­lega hug­myndir. Þessi rými geta nýst vel sem við­bótar geymslu­rými, til dæmis fyrir skó og úti­fatnað, ef það er í nálægð við for­stof­una. Að setja upp bóka­hillur í rým­inu er einnig sniðug lausn en auk þess er hægt að útbúa þar litla heima­skrif­stofu.
Innbyggð hilla í sturt­unni er góð leið til þess að geyma sjampó og sápur á snyrti­legan hátt og auð­veldar þér að hafa hlut­ina á réttum stað. Best er að gera ráð fyrir slíkri hillu frá upp­hafi þegar bað­her­bergi er hannað þá sér í lagi þegar veggir eru flísa­lagðir.
Þegar kemur að því að velja inn­rétt­ingar fyrir eld­húsið skaltu hafa í huga að skúffur eru yfir­leitt hent­ugri en neðri skápar. Það er til dæmis betra að geta dregið út skúffu með þungum pottum heldur en að beygja sig eftir þeim inn í skáp. Í flestum versl­unum sem selja inn­rétt­ingar er dýr­ara að kaupa skúffu­ein­ingar heldur en skápa en þegar kemur að skipu­lagi í eld­hús­inu er ekki gott að spara um of. Allt sem auð­veldar vinn­una í eld­hús­inu er þess virði að fjár­festa í.
Bækur eru ómissandi á hverju heim­ili en mörgum finnst bóka­hillur íþyngj­andi. Í stað þess að vera með hefð­bundnar bóka­hillur sem standa á gólfi settu þá upp vegg­festar stakar hillur. Loft­hæðin nýt­ist betur þar sem hill­urnar kom­ast nær loft­inu. Með því að hafa gólf­flöt­inn hreinan virð­ist rýmið einnig vera stærra og yfir­bragðið verður létt­ara. Mik­il­vægt er að huga vel að fest­ingum þar sem bækur geta verið þungar og var­ast skal að hafa hill­urnar of djúpar.

Myndir / Úr safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð ráð

Rökhugsunin virkar ekki sem skyldi þegar fólk er æst
Fólk

Rök­hugs­unin virkar ekki sem skyldi þegar fólk er æst

Sara Dögg Eiríks­dóttir, félags­ráð­gjafi og fjöl­skyldu­fræð­ingur hjá Sam­skipta­stöð­inni, segir ágrein­ing í sam­böndum vera eðli­legan og óhjá­kvæmi­legan. En ágrein­ing­inn þarf að tækla rétt og hún gefur nokkur góð ráð í nýjum pistli sem lesa má hérna. Meðal þess sem Sara mælir með að fólk geri er að æfa sig í að ná ró og stjórn á skap­inu. „Þegar við verðum reið...
Heldur þú heimilinu gangandi á meðan maki þinn gerir ekkert?
Fólk

Heldur þú heim­il­inu gang­andi á meðan maki þinn gerir ekk­ert?

Það getur verið krefj­andi að vera í para­sam­bandi og algengt umkvört­un­ar­efni para eða hjóna er upp­lifun á ójafnri verka­skipt­ingu á heim­il­inu. Íris Eik Ólafs­dóttir fjöl­skyldu­fræð­ingur og sátta­miðl­ari, skrifar um málið í sinn nýjasta pistil. Hún segir fólk oft upp­lifa sig gera allt á meðan mak­inn gerir ekki neitt innan heim­il­is­ins. „Algengt er að parið upp­lifi stöðu sína á afar mis­mun­andi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður