„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Björn Steinar sýnir á Design TO

Björn Steinar sýnir á Design TO
Óhætt er að segja að Björn Steinar hafi í nógu að snú­ast því hann vinnur nú að plast­end­ur­vinnslu verk­efn­inu Plast­plan sam­hliða því að fram­leiða hús­gögn úr íslensku timbri fyrir Skóg­ar­nytja verk­efnið. „Það er aldrei dauð stund,“ segir hann og hlær. Mynd / Aldís Páls­dóttir|

Vöru­hönn­uð­ur­inn Björn Steinar Blu­men­stein verður með verk til sýnis á hinni virtu árlegu hönn­un­ar­sýn­ingu Design TO sem fer fram í Toronto vik­una 17. til 26. jan­úar. Sýningin, sem sam­anstendur af alls kyns spenn­andi við­burðum, er sú stærsta sinnar teg­undar í Kanada.

Verk úr Skóg­ar­nytja lín­unni.

„Það er virki­lega spenn­andi að fá að taka þátt á DesignTo og fá tæki­færi til að vera full­trúi íslenskrar hönn­unar á alþjóð­legri hátið. Á sýn­ing­unni mun ég sýna ný verk úr Skóg­ar­nytja lín­unni og hlakka til að sjá hvernig við­tök­urnar verða í mjög ólíku hönn­unar lands­lagi,“ segir hann í sam­tali við Mannlíf.

Björn Steinar kemur til með að taka þátt í sam­sýn­ingu á Design TO sem ber yfir­skrift­ina Future Retrospectives. Eins og fyrr segir verður hann þar með til sýnis verk úr lín­unni Skóg­ar­nytjar, sem dregur dám af fyrri verkum hans sem miða oft að því að draga athygli að hlutum sem mætti end­ur­hugsa eða miða að því að leysa vanda­mál af ýmsum toga. Verkefni hans Catch of the day snérist til dæmis um að minnka mat­ar­sóun með því að brugga vodka úr ávöxtum sem finna má í ruslagámum, en var það til­nefnt til Íslensku hönn­un­ar­verð­laun­anna árið 2018 og vann hönn­un­ar­verð­laun Reykja­vík Grapevine í fyrra.

Á Future Retrospectives reyna ell­efu ólíkir lista­menn og hönn­uðir að ímynda sér hvað fram­tíðin ber í skauti sér með hlið­sjón af því sem hefur gert í for­tíð­inni. Hvernig mun heimur fram­tíð­ar­innar líta út og hvernig kemur hann til með að virka, eru á meðal þeirra spurn­inga sem þátt­tak­endur sýn­ing­ar­innar velta fyrir sér. Listrænn stjórn­andi Design TO er Deborah Wang, en hún hefur teng­inar við Ísland, kom meðal ann­ars hingað til lands á Hönn­un­ar­Mars 2019 og kynnt­ist þá Birni Steinari og bauð honum að taka þátt í sýn­ing­unni.

Þess má geta að þetta er ekki í fyrsta sinn sem Björn Steinar lætur að sér kveða ytra. Verk­efnið Banana story sem hann vann ásamt Johönnu Seelemann var til sýnis á sýn­ing­unni Food big­ger than the Plate í Victoria&Albert Museum í London en verk­efnið spratt upp úr útskrift­ar­verk­efnum þeirra í vöru­hönnun við Lista­há­skóla Íslands. Þá hafa ýmsir erlendir miðlar fjallað um verk hans, þar á meðal á The Economist og Damn Magazine og var Björn Steinar val­inn einn af 100 hæfi­leik­a­rík­ustu hönn­uðum heims af Icon Magazine.

Af öðrum sem sýna á Future Retrospectives má nefna Graysha Audren, Mia Cinelli, Hannah Claus, Cassandra Ferguson, Tsēmā Igharas, Andreas Krätschmer,  Adhavan Sund­ara­m­urthy, Sage Szkabarnicki-Stuart, og Jessica Thalmann, sem hafa öll vakið alþjóða­lega athygli. Sýningin stendur yfir til 29. mars. Nánar á www.designto.org

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & híbýli

Landsliðs- og markadrottning selur í Mosfellsbæ
MannlífiðHús & híbýli

Lands­liðs- og marka­drottn­ing selur í Mos­fellsbæ

Berglind Björg Þor­valds­dóttir, lands­liðs­kona í knatt­spyrnu, og Kristján Sig­urðs­son hafa ákveðið að selja heim­ili sitt í Mos­fells­bænum. Berglind hefur á und­an­förnum ára­tug verið ein besta knatt­spyrnu­kona lands­ins og algjör marka­drottn­ing. Þá hefur hún spilað 72 lands­leiki fyrir Ísland og skorað í þeim leikjum 12 mörk. Hún skipti nýlega úr Val yfir í Breiða­blik eftir að for­ráða­menn Vals létu Berg­lindi vita...
Litrík og skemmtileg heimili í nýja blaðinu
MannlífiðHús & híbýli

Litrík og skemmti­leg heim­ili í nýja blað­inu

Þau eru ansi lit­rík og skemmti­leg heim­ilin sem við hjá Húsum og híbýlum heim­sóttum fyrir nýja blaðið okkar sem er komið í versl­anir. Stofur og borð­stofur eru í aðal­hlut­verki í þessu blaði ásamt inn­litum inn á íslensk heim­ili þar sem per­sónu­legur stíll ræður ríkjum. Það er fal­leg íbúð þeirra Hebu Fjal­ars­dóttur og Birgis Har­alds­sonar sem prýðir for­síð­una að þessu sinni....
Hvað ætla hönnuðirnir að sjá á HönnunarMars?
MannlífiðHús & híbýli

Hvað ætla hönn­uð­irnir að sjá á Hönn­un­ar­Mars?

Umsjón/ María Erla og Guðný Hrönn Hönn­un­ar­Mars hefst á morgun, 19 maí, og er þetta í 13. sinn sem hátíðin er haldin. Við­burð­ur­inn er stærsta hönn­un­ar­há­tíð lands­ins. Við heyrðum í nokkrum hönn­uðum sem sýna á Hönn­un­ar­Mars í ár og spurðum þau meðal annasr út í hvað þau ætla að sjá. Sig­mundur Frey­steins­son fata­hönn­uður Hvað ert þú að sýna á Hönn­un­ar­Mars?...
Deiglumór, áhugaverð heimildabók um leirlist á Íslandi 1930–1970
Mannlífið

Deiglu­mór, áhuga­verð heim­ilda­bók um leir­list á Íslandi 1930–1970

Í ár kom út bókin Deiglu­mór: Keramik úr íslenskum leir 1930-1970. Í bók­inni er farið yfir sögu leir­list­ar­innar sem hefur fylgt mann­kyn­inu frá örófi alda og segja má að sé órjúf­an­legur hluti af menn­ingar- og lista­sögu heims­ins. Hugtakið deiglu­mór er fornt orð yfir leir og vitnar í notkun hans á Íslandi til deiglu­gerðar á öldum áður. Sú saga er fallin...
Handgerð og eftirtektarverð sojakerti
Mannlífið

Handgerð og eft­ir­tekt­ar­verð soja­kerti

Kerti í alls konar birt­ing­ar­formum hafa verið vin­sæl upp á síðkastið; svo sem lík­ams­kerti og snún­ings­kerti og því óvenju­legri því skemmti­legri að okkar mati. Mynd / soyar Við rák­umst á þetta breska vöru­merki, soyar, sem býður upp á úrval soja­kerta í alls konar útfærslum og litum. Mynd / soy­ar­Mynd: Höfundur ókunnur Kertin eru hand­gerð úr soja­vaxi, eit­ur­efna­laus og vegan. Glæddu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður