„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Verkin í garðinum

Verkin í garðinum
Mynd / Unsplash

Eflaust eru margir garð­eig­endur búnir að taka til í beð­unum, forsá sum­ar­blómum og setja moltu í beðin. Þá er kom­inn tími til að huga að öðru. Hér er gát­listi fyrir sam­visku­sama garð­yrkju­menn.

Góður undirbúningur

Ef ein­hverjar stórar fram­kvæmdir eru fyr­ir­hug­aðar, eins og að byggja pall, hellu­leggja ver­önd, leggja gang­stíga eða annað er um að gera að hafa teikn­ingar eða skissur reiðu­búnar. Ef leita þarf til lands­lags­arki­tekta eða bygg­inga­fræð­inga til að teikna og hanna fyrir sig er ágætt að panta slíkt sem fyrst.

Dyttað að og borið á

Tilvalið er að gera við skökk grind­verk, brotnar spýtur, við­ar­verja hengipotta úr basti, hreinsa gömul ker og velja ný, bera á garð­hús­gögnin og síð­ast en ekki síst bera á pall­inn. Góð regla að fara líka vel yfir garð­verk­færin, hreinsa þau vel, athuga hvort eitt­hvað sé bilað og hvort eitt­hvað vanti. Það er gott að fara inn í sum­arið með allt í röð og reglu þá er ekki hætta á að biluð verk­færi valdi vand­ræðum.

Plöntur til prýði

Allt sum­arið og fram eftir hausti er hægt að planta plöntum úr gróðr­ar­stöðvum. Huga þarf að því að gefa plönt­unum áburð og hvort þurfi að bæta jarð­veg­inn.

Safnkassa valinn staður

Ef ekki er þegar kom­inn safn­kassi í garð­inn er góður tími núna til að kaupa einn slíkan og koma honum fyrir. Til eru margar gerðir af slíkum kössum og þeir geta verið allt frá plast­t­unnum upp í háa og mikla tré­kassa. Best er velja sinn safn­kassa í sam­ræmi við stærð garðs­ins og þeirrar aðstöðu sem menn hafa til að vinna við þá. Sumir smíða sjálfir sinn kassa úr greinum sem til falla þegar trén eru klippt í garð­inum. Safn­kassar eru góð leið til að vernda umhverfið.

Heim­il­issorp mun minnka mjög mikið og margir hafa mjög gaman af að upp­lifa nið­ur­brot nátt­úr­unnar á líf­rænum efnum. Í safn­kass­ann fer þar að auki allt gras af flöt­inni, plöntu­af­klippur, greina­stúfar og arfi úr beð­unum. Einu sinni í mán­uði er nauð­syn­legt að hræra vel og lyfta upp af botni kass­ans með garð­gaffli eða ein­hverju góðu verk­færi. Að öðru leyti sér safn­kass­inn um sig sjálfur.

Lagst í lestur

Þegar stund gefst og hlýtt er í garð­inum er gott að setj­ast niður með bækur og blöð til að fá hug­myndir eða upp­lýs­ingar um hvernig á að útfæra eitt­hvað af þeim hug­myndum sem kviknað hafa yfir vet­ur­inn og vorið. Oft þarf að færa til plöntur, grisja þær eða koma fyrir nýjum og þá er gott að hafa á tak­teinum þær upp­lýs­ingar sem þarf til að tryggja að vel tak­ist til. Stóra garða­bókin ætti að vera til á heim­ili allra garð­rækt­ar­á­huga­manna en einnig eru til góð tíma­rit um garð­rækt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

garðurinn

Fólk

Með haust­verk um helgar

Fríið allt löngu búið. Vinna, skóli og allar tóm­stundir komnar á fullt. Hvergi finnst tími yfir dag­inn og áður en þú veist af er komin helgi. Ah, já … helgi. Loksins hægt að slaka á! Alveg þar til þú manst að það er komið haust. Sumarið er búið og afneit­unin til einskis. Vot­viðra­sami gálga­frest­ur­inn er haf­inn og áður en þú veist af verður kom­inn vetur. Partíið er búið og nú þarf að laga til. Kristján Frið­berts­son skrifar grein í nýjasta tölu­blað Vikunnar um haust­verkin og hér grípum við örstutt niður í grein­ina sem eng­inn garð­eig­andi ætti að láta fram­hjá sér fara.
Fólk

Útlaginn – skjót­ari en skugg­inn

Í júní er hann skyndi­lega kom­inn upp úr jörðu. Skjótari en skugg­inn. Ef þú passar þig ekki, ertu umkringd/ur áður en þú veist af. Samt er hann bara einn. Er þetta brella? Aðeins einn var hér í upp­hafi, hvar fékk hann liðs­auka? Allt í einu lýsir hann fjöl­mörgum gulum blómum framan í þig. Þú skilur eig­in­lega ekk­ert í þessu, en nú er kom­inn júlí, sólin er hátt á lofti og kannski ertu bara með óráði.
Sérhannaðir fyrir íslenskar aðstæður
Kynning

Sér­hann­aðir fyrir íslenskar aðstæður

Það verður að segj­ast eins og er að það jafn­ast fátt á við að vera með sinn eigin heita pott í garð­inum. Í hann er bæði gott að fara á sól­ríkum sum­ar­degi sem og á stjörnu­björtu vetr­ar­kvöldi. Eft­ir­spurnin er mikil og það stað­festir Kristján Berg­steins­son, stofn­andi og eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins Góðkaup. Fyr­ir­tækið er nýtt en kveikjan að stofnun þess var ein­fald­lega...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins