„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bókabúðinni skellt í lás í þriðja sinn á rúmum áratug

Bókabúðinni skellt í lás í þriðja sinn á rúmum áratug
Bókabúð Máls og menn­ingar við Laugaveg 18

Lokun bóka­búðar Máls og menn­ingar við Laug­ar­veg er þriðja lokun versl­un­ar­innar á rétt rúmum ára­tug. Fullyrt er að um tíma­bundna lokun bóka­búð­ar­innar sé að ræða og verður kaffi­hús­inu í sama hús­næði einnig lokað um óákveð­inn tíma.

„Heyrðu fínt, takk fyrir það og bless.“

Greint er frá lok­un­inni í dag á Facebook-síðu versl­un­ar­innar en þar þakkar starfs­fólk við­skipta­vinum fyrir sýndan skiln­ing og afsakar ónæðið sem af lok­un­inni skap­ast. Stefnt er að end­ur­opnun ef marka má síð­una þar sem áhuga­samir geta fylgst með.

Bókabúð Máls og menn­ingar var stofnuð árið 1940 og var lengst af í eigu sam­nefnds útgáfu­fé­lags. Versl­unin hefur verið til húsa við Laug­ar­veg 18 en undir merkjum Pennans varð bóka­verslun gjald­þrota í hús­næð­inu árið 2009. Skiptum á þrota­búi félags­ins lauk árið 2011 þar sem ekk­ert fékkst upp í um 7.5 millj­arða kröfur.

Við gjald­þrot Pennans losn­aði hús­næðið og Bók­mennta­fé­lag Máls og menn­ingar varð til í ág­úst 2009, þegar Kaupang­ur, eig­andi hús­næðis­ins, keypti rekst­ur Bóka­búðar Máls og menn­ing­ar. Tveimur árum síðar, í febr­úar 2011, var starfs­fólki skyndi­lega til­kynnt um gjald­þrot félags­ins og að versl­unin yrði ekki opnuð dag­inn eftir. Gjald­þrot félags­ins nam 112 millj­ónum króna og fékkst lítið upp í þær kröfur.

Mánuði síðar var til­kynnt að eig­andi bóka­búðar­inn­ar Iðu við Lækj­ar­götu, Arndís Björg Sig­ur­geirs­dóttir, tæki við rekstr­in­um er hún tók á leigu bæði hús­næðið og nafn Máls og menn­ing­ar. Nú er svo komið að bóka­búðin lokar enn á ný og óljóst um fram­haldið.

Mannlíf leit­aði við­bragða hjá eig­anda hús­næð­is­ins um hvert mögu­legt fram­hald rekst­urs verði í versl­un­ar­hús­næð­inu. Skemmst er frá því að segja að við­brögðin voru heldur snubb­ótt og aug­ljóst að Bjarki Júl­í­us­son eig­andi vildi ekki ræða málin. „Ég á hús­næðið en ég á ekki rekst­ur­inn sem er þar inni. Heyrðu fínt, takk fyrir það og bless,“ sagði Bjarki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins