„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dagskránni í Metropolitan-óperunni aflýst – „Þetta er mikið högg fyrir fólk“

Dagskránni í Metropolitan-óperunni aflýst – „Þetta er mikið högg fyrir fólk“
Dísella Lár­us­dóttir. Mynd / Heiða Helga­dóttir Birtíngur

Í gær var greint frá því að dag­skránni í Metropolitan-óper­unni í New York hefur verið aflýst út árið. Óperan hefur verið lokuð frá 12. mars vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Stefnt er að því að opna óper­una aftur um ára­mótin en mikil óvissa er ennþá uppi.

Söng­konan Dísella Lár­us­dóttir segir kollega sína sem voru búnir að ráða sig í sýn­ingar í Metropolitan-óper­unni í haust vera ráð­villta. „Auðvitað skilja þetta allir en fólk er engu að síður ráð­villt og hrætt. Þetta er mikið högg fyrir fólk,“ segir Dísella í sam­tali við Mannlíf.

„Ástandið er auð­vitað svaka­lega erfitt í Banda­ríkj­unum og óvissan hefur verið mikil. Svo bár­ust þessar fréttir í gær.“

Í grein New York Times um stöð­una sem er komin upp í Metropolitan-óper­unni segir að það hafi verið skoðað að halda dag­skránni gang­andi með breyttu sniði og þá hleypa færri gestum inn í hús­næðið hverju sinni til að tryggja að gestir gætu haldið fjar­lægð við hvorn annan. Í ljós kom að það verk­efni hefði reynst flókið í fram­kvæmd og óvíst hvort rekst­ur­inn myndi standa undir kostn­aði með því sniði.

„Það hefði orðið mjög tóm­legt í þessu stóra húsi ef það ætti að dreifa gestum til að tryggja að hægt væri að halda tveggja metra fjar­lægð. Þannig að þetta var ákvörð­unin sem var tekin,“ segir Dísella.

„Núna er ljóst að margt fólk fær ekki vinn­una í haust sem það hafði búist við að fá. Svo er reiknað með að hægt verði að opna aftur um ára­mótin en maður veit ekki hvernig veiru­far­ald­ur­inn þró­ast, kannski blossar þetta aftur upp.“

Spurð út í hver staða kollega hennar sem höfðu skrifað undir samn­ing við óper­una vegna sýn­inga seinna á árinu sé segir Dísella: „Það er ekk­ert hægt að gera. Þetta er gríð­ar­legt tap fyrir óper­una sjálfa en líka fyrir ein­stak­ling­ana sem þar vinna. Núna er verið að benda fólki í neyð á að það er hægt að sækja um styrk í stétt­ar­fé­lags­sjóð, en maður veit ekki hvað það dugar,“ útskýrir Dísella.

„Núna er ég bara að bíða og sjá hvað verður. Maður vonar það besta.“

Dísella hefur tekið þátt í ýmsum verk­efnum í Metropolitan-óper­unni síðan árið 2007. Sjálf átti Dísella ekki að taka þátt í neinum verk­efnum í Metropolitan-óper­unni í haust heldur er hún bókuð í verk­efni í Frakk­landi seinna á árinu „Núna er ég bara að bíða og sjá hvað verður. Maður vonar það besta.“

Hún tekur fram að þrátt fyrir að hún hafi ekki verið bókuð í nein verk­efni vest­an­hafs í haust þá hefur ástandið sem ríkir núna þau áhrif að öll dag­skráin í Metropolitan-óper­unni riðl­ast og samn­ing­ur­inn hennar við óper­una eftir ára­mót er því í lausu lofti.

Hún kveðst vera fegin að vera heima á Íslandi á meðan ástandið er eins og raun ber vitni. „Ég var heppin að því leyti til að ég var mikið að vinna úti í fyrra og var búin að ákveða að vera meira heima í vor til að verja tíma með fjöl­skyld­unni. En það yrði svaka­legt högg að missa vinn­una í haust. Ég hefði verið í vondum málum ef far­ald­ur­inn hefði skollið á í fyrra vegna þess að verk­efna­staðan var þannig hjá mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins