„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sólveig Anna gleymir aldrei amerískum rasisma: „Ég drep ykkur“

Sólveig Anna gleymir aldrei amerískum rasisma: „Ég drep ykkur“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Sólveig Anna Jóns­dóttir minn­ist áranna í Minnesota og segir dauða George Floyds ekk­ert annað en birt­ing­ar­mynd rót­gró­ins ras­isma í Banda­ríkj­unum.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, bjó í Minnesote í Banda­ríkj­unum frá 2000 – 2008 og seg­ist hafa notið þar for­rétt­inda í ljósi stöðu sinnar sem hvítrar konu af nor­rænum ættum. Öðru máli hafi gegnt um fólk af afrískum upp­runa. „Hvít kona af nor­rænum ættum í Minnesota getur búið í ver­öld þar sem allt er eins og útbúið sér­stak­lega fyrir hana,“ skrifar Sólveig Anna í færslu á Facebook. „Börnin hennar eru ávallt vel­komin alls­staðar, litlu englarnir, svo fal­leg og góð. Hún og þau njóta for­rétt­inda. Þau þurfa bara að mæta og þeim er afhentur arf­ur­inn; evr­ópskir land­ræn­ingjar og mann­eskjuræn­ingjar rétta hann til þeirra yfir ald­irnar. Ekkert getur komið í veg fyrir það.“

Hún segir mis­skipt­ing­una sem hvítir og svartir búa við í Banda­ríkj­unum hafa komið ber­sýni­lega í ljós þegar hún horfði á frétta­flutn­ing af felli­bylnum Katrínu árið 2005. Kerfið hafi afhjúp­ast í beinni útsend­ingu. Fólk sem hafi reynt að verða sér út um mat og vatn, í borg sem var að drukkna, hafi í sjón­varp­inu verið upp­nefnt þjófar. Þarna hafi komið skýrt fram hverjir áttu og máttu hlut­ina og hverjir ekki. „Ég get ekki andað,“ skrifar Sólveig Anna með vísan í hinstu orð George Floyds, „hefur ekki sammann­lega mein­ingu sem neyð­aróp, er ekk­ert nema opn­unar-atriðið að hinni alda­gömlu hefð­bundnu amer­ísku sýn­ingu: ‚Þau eru að stela‘.“

Sólveig Anna seg­ist hafa farið að grenja og öskrað á sjón­varpið: Ég drep ykkur. „En ég gat ekk­ert gert, nema eitt og það var að hætta að grenja og fara að hlusta og heyra og lofa að gleyma aldrei amer­ískum ras­ism­anum og því hvað hann er og hvað hann þýðir. Lofa að vera til vitnis. Bera ábyrgð á því að fyll­ast harmi, reiði, bræði, outrage, öskri, við­bjóði, skelf­ingu, andúð, hatri á amer­ískum ras­isma. Vita að það eru réttu við­brögðin, einu við­brögðin. Allt annað er til skammar. Og tími þeirrar til­finn­ingar er lið­inn.“

Hún segir ekk­ert eftir og ekk­ert í boði nema algjöra sam­stöðu með svörtu fólki í Ameríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins