„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Annars höfum við í sjálfu sér ekkert um þetta að segja“

„Annars höfum við í sjálfu sér ekkert um þetta að segja“
Útsýni frá Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Kálfatindar í fjarska. Mynd: rt

Ekki er nóg að fram­kvæmdum við Hval­ár­virkjun hafi verið slegið á frest heldur þarf að fara fram opin­ber rann­sókn á öllu ferl­inu. Elías Krist­inssson, sjó­maður á Dröngum í Árnes­hreppi á Ströndum, er sann­færður um að lög hafi verið brotin og krefst lög­reglu­rann­sóknar.

„Varðandi kröfu um opin­bera rann­sókn þá er að sama skapi lítið um það að segja annað en að til þess bær yfir­völd eru best til þess fallin að taka afstöðu til þess“

Jóhann Snorri Sig­ur­bergs­son, for­stöðu­maður við­skipta­þró­unar HS Orku, bendir á að þær fram­kvæmdir sem tengj­ast Hval­ár­virkjun séu fyrst og fremst mál­efni Vest­ur­verks að svara fyrir. Aðspurður seg­ist hann ekki tjá sig um ein­staka sam­skipti við aðila nema þau væru opin­ber. „Við reynum þó almennt að svara þeim fyr­ir­spurnum sem er beint til okkar og tengj­ast HS Orku. Annars höfum við í sjálfu sér ekk­ert um þetta að segja. Varðandi kröfu um opin­bera rann­sókn þá er að sama skapi lítið um það að segja annað en að til þess bær yfir­völd eru best til þess fallin að taka afstöðu til þess.“

Vest­ur­verk sem er að mestu í eigu HS Orku hugð­ist reisa Hval­ár­virkjun í Ófeigs­firði á Ströndum og virt­ist fátt koma í veg fyrir þær fyr­ir­ætl­anir. Skipu­lags­stofnun taldi að virkj­unin kæmi til með að hafa veru­leg nei­kvæð áhrif á óbyggð víð­erni Vest­fjarða. Óbyggða­nefnd hafði úrskurðað Drang­jökul sem þjóð­lendu og land­eig­endur stóðu í deilum vegna vega­gerðar og landa­merkja. Nátt­úr­fræði­stofnun bland­að­ist í málið eftir að and­stæð­ingar virkj­un­ar­innar vís­uðu á að frið­aðir stein­gerv­ingar væru á fram­kvæmda­svæð­inu.

Fjögur íslensk nátt­úru­vernd­ar­sam­tök börð­ust gegn áformunum, Land­vernd, Nátt­úr­vernd­ar­sam­tök Íslands, Ungir umhverf­is­sinnar og Rjúkandi, með því að leggja tví­vegis fram kæru gegn deildu­skipu­lagi og fram­kvæmda­leyfi Hval­ár­virkj­unar. Alþjóð­legu nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin tóku undir þá kröfu að svæðið beri að vernda. Úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála hafn­aði stöðv­un­ar­kröf­unni í fyrra og til stóð að nefndin tæki afstöðu til seinni kæru nátt­úr­vernd­ar­sam­tak­anna fjög­urra. Á end­anum kom ekki til þess, fram­kvæmdum var slegið á frest í COVID-19 far­aldr­inum, en þær áttu að hefj­ast nú í sumar, skrif­stofu Vest­ur­verks var lokað og starfs­fólki sagt upp.

Lestu nánar um málið í Mannlífi sem kom út í gær.

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins