„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir leitt að Neyðarlínan kjósi að fara í hart

Segir leitt að Neyðarlínan kjósi að fara í hart
Mynd / Hákon Davíð

„Það hryggir mig að Neyð­ar­línan kjósi að bregð­ast við af hörku gegn eðli­legri athugun á störfum fyr­ir­tæk­is­ins í kjöl­far kvart­ana borg­ar­búa sem telja sig ekki hafa notið virð­ingar og sann­girni í sam­skiptum við Neyð­ar­lín­una.“ Þetta skrifar Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata og for­maður Mann­rétt­inda-, nýsköp­unar- og lýð­ræð­is­ráðs Reykja­vík­ur­borgar sem kall­aði full­trúar Neyð­ar­lín­unnar á fund fyrr í dag til að ræða atvik sem hefur verið mikið til umræðu und­an­farna daga. Snýst það um við­brögð Neyð­ar­lín­unnar þegar óskað var eftir aðstoð fyrir tvær með­vit­und­ar­lausar konur í miðbæ Reykja­víkur þann 16. maí.

Dóra Björt ræddi þetta atvik og við­brögð Neyð­ar­lín­unnar í sam­tali við Rás 2 í morgun.

Í kjöl­far við­tals­ins sendi Neyð­ar­línan frá sér yfir­lýs­ingu og setti út á ummæli Dóru í við­tal­inu og krefja hana um afsök­un­ar­beiðni.

„Velti borg­ar­full­trú­inn því upp hvort við­brögð neyð­ar­varðar bæri vott um kven­fyr­ir­litn­ingu og/eða andúð á útlend­ingum og sjúkra­liðar ekki kvaddir til með for­gangi af þeim sökum,“ segir m.a. í til­kynn­ingu Neyð­ar­lín­unnar.

Útlit fyrir að ekki sé áhugi fyrir að kom­ast að því hvort eitt­hvað hafi farið úrskeiðis

Dóra segir rangt að hún hafi sagt atvikið ekki tekið alvar­lega vegna for­dóma við minni­hluta. Hún seg­ist ekki sátt við að sitja undir slíkum ásök­unum. Hún seg­ist ein­fald­lega hafa hlustað á það fólk sem er ósátt við við­brögðin og vitnað í umræð­una almennt.

„Í við­tal­inu í morgun sagði ég það sann­gjarnt að spyrja hvort við­brögðin voru eðli­leg. Um leið sagði ég að í kjöl­far þessa atviks hafi ég heyrt frá fleirum þá til­finn­ingu að við­horfið sé ójafnt eftir því um hvern er að ræða. Þetta er ekki ásökun af minni hálfu heldur vitna ég til opin­berrar umræðu,“ skrifar Dóra í færslu sína á Facebook. 

Hún spyr hvort kjörnir full­trúar megi ekki end­ur­óma raddir borg­ar­búa.

„Krafan um að ég biðj­ist afsök­unar á að kalla eftir svörum og útskýra hvað veldur því að málið kemur til borðs mann­rétt­inda-, nýsköp­unar- og lýð­ræð­is­ráðs er ekki fag­leg og ekki merki um vilja til að fara yfir hvort og þá hvernig eitt­hvað fór úrskeiðis. Enn síður er það gagn­legt að gera mér upp skoð­anir og ásak­anir sem fara fyrir brjóstið á yfir­mönnum Neyð­ar­lín­unnar og er haldið fram opin­ber­lega af öðrum og í kjöl­farið krefj­ast afsök­un­ar­beiðni fyrir þann til­bún­ing.“

Hún bendir á að Reykja­vík­ur­borg eigi tæp 20% í Neyð­ar­lín­unni og að hennar mark­mið sé að tryggja trausta og góða þjón­ustu þar sem borgin komi að.

Í færslu sinni hvetur hún Neyð­ar­lín­una til að nota tæki­færið til að end­ur­skoða málið af yfir­vegun í stað þess að berj­ast við „ímynd­aða óvini“.

Færslu Dóru má sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meirihlutanum: „Borgarstjórnin er ekki sérlega vel mönnuð“
InnlentReykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meiri­hlut­anum: „Borg­ar­stjórnin er ekki sér­lega vel mönnuð“

Egill Helgason hefur litla trú á nýjum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­anum sem kynnt verður í dag. Fjöl­miðla­mað­ur­inn víð­lesni, Egill Helgason skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann óskar nýjum meiri­hluta í borg­inni vel­farn­aðar en seg­ist um leið ekki hafa mikla trú á henni. Segir hann að borg­ar­stjórnin sé ein­fald­lega ekki vel mönnum og að hæfi­leika­fólk lað­ist ekki að setu í borg­inni. Spáir hann...
Kryddpíurnar í borginni byrjaðar að skrifa sáttmála: „Þetta eru auðvitað bara lykiláhersluatriði“
InnlentReykjavíkurborg

Kryddp­í­urnar í borg­inni byrj­aðar að skrifa sátt­mála: „Þetta eru auð­vitað bara lyk­ilá­herslu­at­riði“

Oddviti Pírata í Reykja­vík­ur­borg, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, segir að meiri­hluta­við­ræður gangi vel á milli þeirra fimm stjór­mála­flokka sem rætt hafa saman und­an­farið en þær hafa haldið áfram í dag. Dóra segir að fundað hafi verið til 18 í dag en haldið verður áfram á morgun. Segist hún í sam­tali við RÚV vona að það dragi til tíð­inda á allra næstu...
Árshátíð borgarstjórnar kostaði Reykvíkinga tæpar tvær milljónir króna
InnlentReykjavíkurborg

Árshátíð borg­ar­stjórnar kost­aði Reyk­vík­inga tæpar tvær millj­ónir króna

Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn kost­aði borg­ar­búa rúm­lega 1,8 millj­ónir króna. Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur var haldin með pompi og prakt á Kjar­vals­stöðum þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá borg­inni voru 91 gestur á hátíð­inni. Borgaði hver um sig 9.500 krónur í aðgangs­eyri, jafnt makar sem aðrir gestir. Eft­ir­stand­andi kostn­aður vegna hátíð­ar­innar hljóð­aði upp á 1.806.301 króna...
Sanna útilokar ekki borgarstjórastólinn: „Bara eitt skref í einu“
InnlentReykjavíkurborg

Sanna úti­lokar ekki borg­ar­stjóra­stól­inn: „Bara eitt skref í einu“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir seg­ist taka eitt skref í einu en úti­loki ekki borg­ar­stjóra­stól­inn. Nú þegar Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri kom öllum að óvörum og sleit meiri­hluta­sam­starfi sínu í borg­ar­stjórn, eru ýmsar þreif­ingar í gangi meðal flokk­anna í borg­inni. Nokkuð ólík­legt verður að telj­ast að Fram­sókn­ar­flokkur Einars verði í næsta meiri­hluta, eftir að Inga Sæland lýsti því yfir að Flokkur fólks­ins hefði...
Glittir í aðgerðaráætlun varðandi heimilisleysi: „Borgin er í mikilli skuld í þessum málaflokki“
InnlentReykjavíkurborg

Glittir í aðgerð­ar­á­ætlun varð­andi heim­il­is­leysi: „Borgin er í mik­illi skuld í þessum mála­flokki“

Stefán Pálsson segir Reykja­vík­ur­borg í mik­illi skuld við heim­il­is­lausa en nú glitti í betri tíð í þeim mála­flokki. Sagn­fræð­ing­ur­inn og vara­borg­ar­full­trú­inn Stefán Pálsson segir að borg­ar­stjórn Reykja­víkur sé við það að sam­þykkja aðgerð­ar­á­ætlun í mál­efnum heim­il­is­lausra. Segir hann borg­ina vera í milli skuld við mála­flokk­inn en að gangi áætl­unin eftir verði staðan miklu betri í náinni fram­tíð. „Í borg­ar­stjórn erum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins