„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óvíst hvort Baldur siglir í sumar

Óvíst hvort Baldur siglir í sumar
Baldur Pálsson

„Á sumrin höfum við verið að róa á ferða­manna­mark­að­inn og gengið alveg prýði­lega. Núna er staðan þannig að útlit er fyrir að það verði ekki mjög margt hjá okkur og óvissa því með hvort við siglum í sumar,“ segir Gunn­laugur Grett­is­son, fram­kvæmda­stjóri Sæferða í Stykk­is­hólmi sem rekur Breiða­fjarð­ar­ferj­una Baldur. Ferjan siglir milli Stykk­is­hólms og Brjáns­lækjar með við­komu í Flatey á Breiða­firði.

„Við þurfum að lága­marka tjónið í sumar og lifa það af. Að öllu óbreyttu er staðan sú að við séum jafn­vel ekk­ert að sigla í sumar.“

Sæferðir eru með samn­ing við Vega­gerð­ina um sigl­ingar að vetr­ar­lagi. Sá samn­ingur rennur út á mánu­dag­inn og til greina kemur að senda skipið í slipp í sumar fáist ekki sum­ar­styrkur frá stofn­un­inni. Fáist styrk­ur­inn segir Gunn­laugur að boðið verði uppá dag­legar sigl­ingar Baldurs í sumar og 15 auka­ferðum bætt við á þá daga þegar þurfa þykir. „Nú eru góð ráð dýr. Aftur á móti höfum við átt mjög gott sam­tal við Vega­gerð­ina og höfum mætt þar góðum skiln­ingi. Það er samt alls ekki svo að við höfum fengið lof­orð um eitt né neitt en við erum núna að pressa á svör. Við þurfum að lága­marka tjónið í sumar og lifa það af. Að öllu óbreyttu er staðan sú að við séum jafn­vel ekk­ert að sigla í sumar, það er alveg inni í mynd­inni að nota sum­arið í það að fara með skipið í slipp.“

Gunn­laugur Grett­is­son, fram­kvæmda­stjóri Sæferða

Gunn­laugur bendir á að ferjan Baldur þjón­usti íbúa Flat­eyjar með til að mynda olíu og vatn. Sú þjón­usta yrði í upp­námi í sumar sigli skipið ekk­ert. Aðspurður segir hann ekki um háar upp­hæðir að ræða sem til þyrfti í styrk frá Vega­ferð­inni, upp­hæðir sem væru á pari við það að nýta sér hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda sem fyr­ir­tækið hefur ekki gert hingað til. „Í mínum huga þarf varla að hugsa þetta reikn­ings­dæmi til enda. Ég ætla  að leyfa mér að vera bara bjart­sýnn á jákvæða nið­ur­stöðu. Ég lifi í þeirri von en það er óneit­an­lega stutt í þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins