„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Börnin sem eignast Samherja

Börnin sem eignast Samherja
Skjáskot / RÚV

Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri, og Kristján Vil­helms­son útgerð­ar­stjóri, aðal­eig­endur Samherja, hafa afsalað sér hluta­bréfa­eign sinni í Samherja hf. til barna sinna. Börnin sex halda því á 84,5 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu. Mútumál Samherja tengt Namibíu er enn til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, en hefur taf­ist vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins.

Mannlíf skoðar hverjir sex­menn­ing­arnir eru sem halda nú um stjórn­ar­taumana í einu stærsta og valda­mesta fyr­ir­tæki lands­ins. Samkvæmt heim­ilda­manni Mannlífs sem þekkir til systk­in­anna eru þau öll jarð­bundin og hörku­dug­leg í því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur.

Þor­steinn Már og Helga Steinunn Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, afsöl­uðu sér 43 pró­senta hlut í Samherja til barna sinna, Baldvins og Kötlu. Kristján og Kolbrún Ing­ólfs­dóttir, eig­in­kona hans, afsöl­uðu sér 41,5 pró­senta hlut til barna sinna, Dagnýjar Lindu, Halldórs Arnar, Katrínar og Krist­jáns Bjarna. Eftir þessar breyt­ingar halda for­eldr­arnir fjórir sam­an­lagt á tveggja pró­senta hlut í Samherja.

Þor­steinn Már og Kristján, sem eru bræðra­synir, munu gegna störfum sínum hjá Samherja óbreytt. Und­ir­bún­ingur breyt­ing­anna hefur staðið und­an­farin tvö ár, en áform og fram­kvæmd þeirra var form­lega til­kynnt í stjórn félags­ins á miðju ári 2019. Í til­kynn­ingu um eig­enda­skipti hluta­bréf­anna á vef Samherja segir að með breyt­ing­unum vilji stofn­endur Samherja „treysta og við­halda þeim mik­il­vægu fjöl­skyldu­tengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið horn­steinn í rekstr­inum. Nú fáum við nýja kyn­slóð til liðs við okkur.“

Þor­steinn Már og Kristján, sem eru bræðra­synir, munu gegna störfum sínum hjá Samherja óbreytt. Mynd / Samherji
Kristján Mynd / Samherji

Stærsta sum­ar­gjöf Íslands­sög­unnar
Framsal eign­ar­hlut­ans í Samherja hefur skilj­an­lega vakið mikla athygli í sam­fé­lag­inu og tók Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis og þing­maður Vinstri grænna, málið upp á Alþingi þriðju­dag­inn 19. maí. „Sum­ar­gjafir eru góður og þjóð­legur siður, en sum­ar­gjafir eig­enda Samherja til barna sinna eru kannski í stærri kant­inum, þær nema tugum millj­arða króna í til­færslu frá eig­endum Samherja til afkom­enda sinna.“

Fyrir viku tjáði Þor­steinn Már sig um málið við 200 mílur Mbl.is og svar­aði aðspurður að við­skiptin hafi miðað að því að halda Samherja sem fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki: „Það er bara verið að gera þetta á meðan við getum haft áhrif á það hvernig þetta verður gert, eig­end­urn­ir. Það liggur svo sem alveg fyrir að einn dag­inn myndi þetta ger­ast, en gerum það á þennan hátt sem getur tryggt rekstur fyr­ir­tæk­is­ins í óbreyttri mynd.“ Þor­steinn Már sagði við­skiptin ann­ars vegar fram­kvæmd með erfða­gern­ingi, fyr­ir­fram­greiddum arfi og hins vegar með sölu milli félaga.

Áætla má að fram­sal hluta­bréf­anna frá for­eldrum til barna sé 60-70 millj­arða virði, miðað við eig­in­fjár­stöðu Samherja hf., sagði Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, í við­tali við Morg­un­vakt­ina á Rás 1 mið­viku­dag­inn 20 maí. Í lok árs var sam­eig­in­legt eigið fé Samherja Holding og Samherja hf. hund­rað og ell­efu millj­arðar, miðað við gengi þess dags.

„Þetta fram­sal sem á sér stað frá for­eldrum til barna, þarna erum við að tala um 60-70 millj­arða virði, fer eftir hvaða gengi maður reiknar evr­urnar sem eru að fær­ast á milli á,“ sagði Þórður Snær. „Við fengum ekki svör við því hvert virði hlut­anna er í þessum við­skiptum og þar af leið­andi erfitt að reikna beint út hverjar væntar skatt­greiðslur eru. En ég held það megi alveg slá því föstu að lík­ast til er þetta, alla­vega sem hefur verið gert opin­bert, mestu fjár­munir sem hafa verið greiddir í arf nokkru sinni á Íslandi.

Þetta eru tugir millj­arðar króna miðað við eig­in­fjár­stöð­una. Og lík­ast til er virði Samherja meira en upp­gefin eig­in­fjár­staða. Maður myndi ætla að það væri hægt að marg­falda það eigið fé til að fá út ein­hvers konar mark­aðsvirði.“

Ekki hefur komið fram enn þá hvaða verð var sett á eign­ar­hlut­inn í við­skipt­unum milli for­eldr­anna og barna þeirra. Samkvæmt fyr­ir­tækja­skrá eru for­eldr­arnir enn skráðir eig­endur, og því eftir að skila inn gögnum um kaupin til fyr­ir­tækja­skrár. Samkvæmt lögum er greiddur 10% pró­senta erfða­fjár­skattur af fyr­ir­fram­greiddum arfi og af hagn­aði við sölu hluta­bréfa er greiddur venju­legur fjár­magnstekju­skattur. Þetta skýrist þegar við­hlít­andi gögnum verður skilað inn til fyr­ir­tækja­skrár líkt og lög gera ráð fyrir.

Baldvin Þor­steins­son. Mynd / Jardbor­anir.is

Baldvin – Erfðaprinsinn 21,5% / 15,2 – 17,8 milljarðar króna

Baldvin Þor­steins­son er fæddur 1983 og er sá af sex­menn­ing­unum sem þekkt­astur er úr við­skipta­líf­inu. Baldvin er fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Samherja og stjórn­ar­for­maður Eimskips frá því í sept­em­ber 2018, en Samherji er stærsti eig­andi skipa­fé­lags­ins. Auk þess er hann í stjórn Jarð­bor­ana, en hann er fyrrum for­stjóri félags­ins.
Baldvin útskrif­að­ist af eðl­is­fræði­braut Mennta­skól­ans á Akureyri og lauk BS-námi í iðn­að­ar­verk­fræði við Háskóla Íslands árið 2007. Eftir nám lá leiðin í grein­ing­ar­deild Glitnis og þaðan til Samherja.
Baldvin spil­aði hand­bolta í tólf ár í efstu deild, síð­ast með FH.
Athygli vakti í mars í fyrra þegar Baldvin veitt­ist að Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra, að loknum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á Alþingi, þar sem Sam­herj­a­málið og vinnu­brögð Seðla­bank­ans í mál­inu voru til umfjöll­unar. Að fund­inum loknum ætl­aði Már að ræða við Þorstein Má, föður Baldvins. „Hafðu smá sóma­kennd og drull­aðu þér í burtu,“ sagði Baldvin við Má. Baldvin sýndi þó dreng­skap og bað Má opin­ber­lega afsök­unar á fram­komu sinni.
Í svip­mynd Mark­að­ar­ins árið 2014 lýsti Rannveig Rist Baldvini sem dug­legum, ósér­hlífnum, ein­beittum og árang­urs­drifnum, og sagði hann óhræddan og vilj­ugan til að takast á við breyt­ingar.
Baldvin er skráður með lög­heim­ili í Hollandi ásamt konu sinni og tveimur börnum.

Katla Þor­steins­dóttir. Mynd / Facebook

Katla – Sjálfstæður sjúkranuddari 21,5% / 15,2 – 17,8 milljarðar króna

Katla Þor­steins­dóttir er fædd 1982 og eftir útskrift úr Nudd­skóla Íslands árið 2011 flutti hún til Vancouver í Kanada þar sem hún lærði sjúkra­nudd við West Coast College of Massage Therapy. Katla er lög­giltur sjúkra­nudd­ari og ráð­gjafi með diplóma í þerapískum fræðum og hefur starfað í Jóga­skúrnum hjá Sólir Jóga­stúdíó.
Þar kemur fram að áhuga­mál hennar eru auk vinn­unnar, ljóða­slamm, ferða­lög og dans.
Í júlí árið 2019 keypti Katla 252,8 fm ein­býl­is­hús á Sel­tjarn­ar­nesi.

Dagný Linda Krist­jáns­dóttir. Mynd / vefur Sál­fræði­þjón­ustu Norð­ur­lands

Dagný Linda – Afreks­skíða­kona um ára­bil   10,375 % /  7,3-8,6 millj­arðar kr.

Dagný Linda Krist­jáns­dóttir er fædd 1980 og var ein fremsta skíða­kona lands­ins um ára­bil, en árið 2008 lagði hún skíða­skóna á hill­una vegna meiðsla. Dagný Linda keppti á 316 alþjóð­legum mótum í þrettán þjóð­löndum, tók þátt í tvennum Ólymp­íu­leikum, þremur heims­meist­ara­mótum, rúm­lega 30 heims­bik­ar­mótum og um 40 Evr­ópu­bik­ar­mótum. Hún var 18 sinnum Íslands­meist­ari á skíðum, var sjö sinnum valin skíða­kona árs­ins og þrisvar Íþrótta­maður Akur­eyrar.
Í júní 2013 útskrif­að­ist hún með BS-próf í iðju­þjálf­un­ar­fræði við Háskól­ann á Akureyri og hlaut  heið­ursverð­laun Góðvina HA. Hún starf­aði sem iðju­þjálfi hjá Öldr­un­ar­heim­ili Akur­eyrar – Lög­manns­hlíð í fimm ár og sinnti stunda­kennslu við Háskól­ann á Akureyri. Í dag starfar hún hjá Sál­fræði­þjón­ustu Norð­ur­lands þar sem hún er með nám­skeið, fyr­ir­lestra og ein­stak­lings­tíma með það að marki að ýta undir virkni og þátt­töku og auka lífs­gæði barna/ung­menna/full­orð­inna í dag­legu lífi heima fyrir og úti í sam­fé­lag­inu.
Dagný Linda býr á jörð­inni Hólshús II í Eyja­firði ásamt eig­in­manni og fjórum börnum þeirra, eign­ina keyptu þau árið 2007 og þar er hesta­mennskan í hávegum höfð.

Halldór Örn Krist­jáns­son. Mynd / Facebook

Halldór Örn – Bíl­stjór­inn       10,375 % / 7,3-8,6 millj­arðar kr.

Halldór Örn Krist­jáns­son er fæddur 1974 og starfar sem bíl­stjóri hjá Samherja á Akureyri.
Halldór Örn og sam­býl­is­kona hans keyptu árið 2010 277,1 fm ein­býl­is­hús á Akureyri, sem þau búa í ásamt þremur dætrum þeirra.
Netið býður ekki upp á fleiri upp­lýs­ingar um Halldór Örn undir nafni. Árið 1997 hlaut hann tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm fyrir að stofna lífi og vel­ferð fólks í aug­ljósan háska, fyrir stór­felld eigna­spjöll og fleiri brot. Halldór var búinn að greiða eða semja um bóta­greiðslur þegar dómur féll og því var hann ekki dæmdur til greiðslu skaða­bóta. Fram kemur í dóm­inum að verkn­að­inn hafi hann framið mjög ölv­aður. Eftir þennan dóm tók Halldór Örn sig taki og hefur lifað reglu­bundnu og rólegu lífi síðan, að sögn heim­ild­ar­manns Mannlífs.

Katrín Krist­jáns­dóttir. Mynd / Facebook

Katrín – Öflug afreks­kona   10,375 % / 7,3-8,6 millj­arðar kr.

Katrín Krist­jáns­dóttir er fædd 1991 og er líkt og eldri systir hennar fyrrum afreks­kona á skíðum. Eftir grunn­skóla tók hún eina önn á íþrótta­braut VMA, en flutti síðan til Noregs þar sem hún fór í skíða­mennta­skóla, auk þess að æfa og keppa á skíðum. Árið 2012, 21 árs gömul, lagði hún skíða­skóna á hill­una, á sama tíma og hún bar tit­il­inn Íslands­meist­ari í stór­svigi á Skíða­móti Íslands. Katrín átti einnig að baki keppnir í Evrópu- og heims­bik­ar­mótum.
Árið 2013 byrj­aði Katrín nám á list­náms­braut í Verk­mennta­skól­anum á Akureyri, þar sem hún tók áfanga í sjón­listum, fata­hönnun og mynd­listar- og menn­ing­ar­sögu.
Katrín hefur mik­inn áhuga á úti­vist, en sum­arið 2019 gengu hún og kær­asti hennar um hálendi og strendur Íslands, alls um 350 km.
Katrín er nýbökuð móðir, en hún eign­að­ist frum­burð sinn í byrjun árs.
Katrín keypti  í 123,3 fm íbúð í fjöl­býl­is­húsi í miðbæ Reykja­víkur, fyrir tæpum tveimur árum, þar sem hún býr með kærasta sínum og barni.

Kristján Bjarni Krist­jáns­son. Mynd / Facebook

Kristján Bjarni – Með tækn­ina á hreinu    10,375 % / 7,3-8,6 millj­arðar kr.

Kristján Bjarni Krist­jáns­son er fæddur 1993 og starfar sem raf­einda­virki hjá Samherja. Eins og systur hans hefur hann einnig stundað skíða­mennsku af kappi, auk þess sem hann hefur áhuga á skíða­í­þróttum og snjó­brettum, sjó­brettum og ferða­lögum.
Kristján Bjarni útskrif­að­ist úr tölv­un­ar­fræði úr Háskól­anum í Reykja­vík árið 2017.
Kristján Bjarni og kærasta hans keyptu sér 105,5 fm íbúð í nýju fjöl­býl­is­húsi á Akureyri fyrir rúmu ári, og eign­uð­ust frum­burð sinn nú í vor.

Kristján og Kolbrún eiga einnig dótt­ur­ina Önnu, sem fædd er 1979 og býr hún á sam­býli á Akureyri.

Sam­herj­a­f­rænd­urnir: Kristján, Þor­steinn Már og Þor­steinn. Mynd / Skjáskot DV 11.07.2014

Saga Samherja

Árið 1983 sömdu Þor­steinn Már Bald­vins­son skipa­verk­fræð­ingur, Kristján Vil­helms­son vél­stjóri og bróðir hans, Þor­steinn Vil­helms­son skip­stjóri, um lán hjá Lands­bank­anum til að kaupa Samherja, útgerð­ar­fyr­ir­tæki í Grinda­vík sem var yfir­veð­sett og nær gjald­þrota. Með í kaup­unum fylgdi ryð­kláf­ur­inn Guð­steinnn GK sem lá í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn. Þeir breyttu tog­ar­anum í frysti­tog­ara og nefndu hann Akur­eyr­ina. Þor­steinn varð skip­stjóri, Kristján vél­stjóri og Þor­steinn Már sá um útgerð­ina í landi. Þar með hófst stærsta útgerðar­æv­in­týri Íslend­inga frá upp­hafi og grunn­ur­inn var lagður að stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins, og einu af þeim stærstu í Norður-Evrópu. Sem for­gjöf fengu Sam­herj­a­f­rændur svo­kall­aðan skip­stjóra­kvóta. Veiði­reynsla Þor­steins skip­stjóra af Kaldbak varð grunnur að kvóta Akur­eyr­innar EA. Þessi for­gjöf var metin á rúmar 500 millj­ónir króna á þeim tíma. Sú upp­hæð er nálægt 1,5 millj­arði króna að núvirði.

Samstarf frænd­anna þriggja gekk vel framan af og fyr­ir­tækið blómstr­aði. Seinna kastað­ist í kekki á milli Þor­steins Más og Þor­steins skip­stjóra sem seldi hlut sinn og hætti afskiptum af Samherja.

Samherji hf. fer í meg­in­at­riðum með inn­lenda starf­semi, á meðan erlend starf­semi heyrir undir Samherja Holding ehf. Undir Samherja Holding heyrir Sæból fjár­fest­inga­fé­lagið, sem á síðan dótt­ur­fé­lögin Esju Seafood Ltd. og Esju Shipping Ltd. sem héldu utan um hesta­makríl­veiðar Samherja í Namibíu.

Eitt umtal­að­asta frétta­mál árs­ins 2019 var mútu­mál Samherja í Namibíu

Mútumál í Namibíu – Rannsókn tefst um mánuði vegna COVID-19

Eitt umtal­að­asta frétta­mál árs­ins 2019 var mútu­mál Samherja í Namibíu, en í umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar kom fram að félög í eigu Samherja hefðu frá árinu 2012 greitt mörg hund­ruð millj­ónir króna í mútur til að tryggja fyr­ir­tæk­inu hesta­makríl­kvóta í Namibíu. Samherji nýtti sér þá skatta­skjól á Marshall-eyjum og á Máritíus í við­skiptum sínum og átti einnig í miklum við­skiptum á lág­skatta­svæð­inu Kýpur. Sam­herj­a­málið er enn til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara.

„Málið er bara í rann­sókn hjá okkur, úti í Noregi og hjá yfir­völdum í Namibíu. Að öðru leyti get ég afskap­lega lítið tjáð mig um málið enda mjög við­kvæmt að gefa út upp­lýs­ingar á meðan það er til rann­sóknar. Ég neyð­ist því til að vera dáldið passívur,“ segir Ólafur Þór Hauksson hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara.

„Það hafa vissu­lega verið tekin skref í rann­sókn­inni. COVID-ástandið hefur tafið fyrir. Við höfum þurft að skipta hópnum upp til að missa ekki alla í sótt­kví eða smit og því hefur þetta verið unnið í gegnum fjar­teng­ingar og það er alls ekki það sama. Okkur hefur heldur ekki gengið vel að fá fólk inn í yfir­heyrslur í mál­inu, bæði lög­menn og skjól­stæð­ingar þeirra voru tregir að mæta og báru fyrir sig áhyggjur af smiti. Við gátum lítið annað en tekið til­lit til þess. Síðan er það líka þannig að landið er lokað og ytri landa­mæri Schengen harð­lokuð og það hefur komið niður á rann­sókn­inni. Það er ein­fald­lega þannig að þegar leggir rann­sóknar liggja til útlanda þá verður það yfir­leitt til þess að seinka ferl­inu. Mál með erlenda teng­ingu taka yfr­leitt langan tíma. Þá höfum við einnig lánað mann­skap í rakn­ing­arteymið út af COVID-19. Þannig að þetta ástand hefur tekið dálít­inn toll hjá okkur. Við reynum alltaf að sjá fyrir end­ann á þeim málum sem við byrjum á en hversu nákvæm­lega langan tíma þetta tekur er voða erfitt að segja til um. Ég get varla sagt að þetta sé á loka­metr­unum því það er tölu­vert verk óunnið sem mun taka tíma að vinna, lík­lega erum við að tala um mán­uði til við­bótar. Þegar rann­sókn­inni lýkur tökum við stöð­una og ákveðum hvert fram­haldið verður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins