„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bílaleigur í dvala með tugþúsundir bíla

Bílaleigur í dvala með tugþúsundir bíla
|Alex Gomez

„Því miður er það svo að Íslend­ing­anir eiga ekki eftir að hjálpa okkur mikið. Langstærstur hluti veltunnar er far­inn, það er bara þannig og því miður eiga ferða­lögin inn­an­lands ekki eftir að hjálpa okkur nokkurn skap­aðan hlut,“ segir Axel Gómez, fram­kvæmda­stjóri Avis-bíla­leig­unnar.

„Nú hefst bar­átta bíla­leig­anna upp á líf og dauða.“

Á meðan inn­lendir ferða­þjón­ustu­að­ilar von­ast margir til þess að ferða­lög Íslend­inga inn­an­lands í sumar komi til með að fleyta þeim í gegnum þá erf­ið­leika sem við blasa, þá er ljóst að það mun ekki bjarga íslensku bíla­leig­unum. Þær þurfa nauð­syn­lega á ferða­mönn­unum að halda og í þeirra augum er sum­arið ónýtt. Bíla­leig­urnar reyna nú hvað þær geta til að minnka bíla­flot­ann þeirra með því að selja bíla en í fyrra voru skráðir tæp­lega 22 þús­und bíla­leigu­bílar á land­inu. Bíla­leig­urnar koma síðan til með að leggj­ast í híði fram á næsta sumar.

Margir verða glaðir

Sigfús Bjarni Sig­fús­son, for­stjóri Hertz á Íslandi, segir ljóst að bíla­leig­urnar komi til með að vera í dvala þar til erlendir ferða­menn snúi aftur til lands­ins. Hann segir það hjálpa fyr­ir­tæk­inu aðeins hversu öfl­ugt það er á fyr­ir­tækja- og lang­tíma­leigu­mark­aði og að nú virð­ist fleiri Íslend­ingar vera á land­inu en venju­lega sökum COVID-19 far­ald­urs­ins. „Ásókn í lang­tíma­leigu hefur auk­ist und­an­farið vegna þessa ástands því nú eru margir á Íslandi sem ann­ars væru erlendis vegna við­skipta til dæmis eða eru búsettir ann­ars staðar en komu heim í far­aldr­inum. Margt af því fólki á ekki bíl hér á landi,“ segir Sigfús Bjarni.

Axel Gómez, hjá Avis, bendir á að meg­in­hluti veltunnar hjá bíla­leig­unum komi inn á sum­ar­mán­uð­unum fjórum. Hann segir bíla­leig­urnar reyna hvað þær geta til að bjóða til­boð í sam­starfi við hót­elin en ljóst sé að þær verði að mestu í dvala fram á næsta ár. „Við erum bara í dvala og vonum að næsta ár verði hag­stætt. Nú liggja tug­þús­undir bíla á plan­inu. Við erum auð­vitað að vona að það komi ein­hver útlend­ingur síðla sum­ars, þó ekki væri nema smá­vegis.“

Alex Gomez, fram­kvæmda­stjóri Avis

Upp á líf og dauða

Sigfús Bjarni við­ur­kennir að það sé auð­vitað gott að fá eitt­hvað í kass­ann með lang­tíma­leigum en er á því að ferða­lög Íslend­inga inn­an­lands komi ekki til með að bjarga mál­unum. „Leiga til Íslend­inga og lang­tíma­leigan eru eru samt engin stór­við­skipti sem koma til með að bæta okkur. „Leiga til Íslend­inga og lang­tíma­leigan eru samt engin stór­við­skipti sem koma til með að bæta okkur upp túrist­a­leig­una enda verðin lág. Það er túrist­inn sem er uppi­staðan í þessu öllu saman og staðan er því ekk­ert sér­stök. Það verða margir glaðir þegar ferða­menn­irnir koma aftur. Fyr­ir­tækin sem treysta á land­ann í sumar eru að selja vör­una á miklu lægra verði en þau raun­veru­lega þurfa að fá. Það er bara verið að reyna að fá eitt­hvað inn. Venju­lega erum við á þessum tíma­punkti farnir með allt í gang en það er ekk­ert að fara í gang í sumar og því stór bíla­floti sem stendur kyrr,“ segir Sigfús Bjarni.

Axel tekur í sama streng. „Því miður er þetta staðan í sumar og hún er heldur ekk­ert björt fyrir til dæmis hót­elin því það kostar mikið fyrir þau að hafa opið hjá sér en þau fá lít­inn pen­ing inn í stað­inn á þessum til­boðum til Íslend­inga. Það mun taka tíma að ná þessu upp aftur og nú hefst bar­átta bíla­leig­anna upp á líf og dauða.“

Nánar er fjallað um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins