„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sjálfsagt að séra Skírnir leiti réttar síns

Sjálfsagt að séra Skírnir leiti réttar síns
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup.

Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, segir það sjálf­sagt að séra Skírnir Garð­asson, fyrr­ver­andi hér­aðs­prestur á Suð­ur­landi, leiti réttar síns enda sé það mik­il­vægur réttur hvers manns. Reyndar er það sam­skipta­stjóri kirkj­unnar, Pétur Georg Markan, sem segir það fyrir hönd bisk­ups í svörum til Mannlífs.

Nefnd innan Þjóð­kirkj­unnar og Per­sónu­vernd úrskurðu í þá veru að brotið hafi verið á prest­inum er tölvu­póstar hans voru sendir áfram til bisk­ups.

Agnes stað­festi þjón­ustu­lok prests­ins fyrir kirkj­una í yfir­lýs­ingu og sagði þar ástæð­una vera brot á trún­að­ar­skyldu. Í nýlegum svörum til Mannlífs er sú full­yrð­ing ítrekuð að séra Skírnir hafi ekki verið rek­inn en því hefur lög­maður prests­ins, Sigurður Kári Krist­jáns­son, hafnað. Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir Mannlífs þá neitar Agnes við­tali. Séra Skírnir vill ekki láta hafa neitt eftir sér um stöðu mála, annað en stað­fest­ingu þess efnis að ætla nú að sækja rétt sinn gagn­vart Agnesi biskup.

Sjá nánar hér:

Prestur sækir rétt sinn gagn­vart bisk­upi

Mannlíf spurði biskup nýverið hvers vegna ekki hafi verið tekið til­lit til þess að að séra Skírnir var í veik­inda­leyfi áður en til þjón­ustu­lokanna kom og prest­inum gef­inn frek­ari frestur til and­mæla. Pétur sam­skipta­stjóri svarar því fyrir hönd Agnesar að prest­ur­inn hafi skilað inn and­mælum sínum áður en veik­indi hans hófust.

Eins og áður hefur verið greint frá er þetta ekki í fyrsta sinn sem séra Skírnir hlökkl­ast úr emb­ætti vegna bisk­ups. Í fyrra skipti missti hans emb­ættis við lága­fells­sókn og sagði þá biskup hafa sett sér afar­kosti um að vera annað hvort rek­inn eða færður til. Sagt hefur verið frá því að tölvu­póstum séra Skírnis hafi verið lekið til bisk­ups­stofu er hann starf­aði sem sókn­ar­prestur í Lága­fells­sókn. Nefnd innan Þjóð­kirkj­unnar og Per­sónu­vernd úrskurðu í þá veru að brotið hafi verið á prest­inum er tölvu­póstar hans voru sendir áfram til bisk­ups. Í ljósi þess að Agnes sagði í við­tali við Stundina að hún teldi ekki rétt að stela gögnum og fara á bak­við fólk til að afhjúpa mál og leiða sann­leika í ljós spurði Mannlíf biskup hvort hún ætl­aði sér að beita sér gagn­vart því að brotið hafi verið á séra Skírni í lága­fells­mál­inu og svar­aði sam­skipta­stjór­inn fyrir biskup. „Máli vegna starfa og starfs­loka sr. Skírnis í Mos­fells­presta­kalli er lokið,“ segir Pétur Georg.

Pétur Markan Mynd / Facebook
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins