„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lögreglumaður birtir launaseðilinn-Undrast skilningsleysi ríkisvaldsins: „Við lögreglumenn erum manneskjur“

Lögreglumaður birtir launaseðilinn-Undrast skilningsleysi ríkisvaldsins: „Við lögreglumenn erum manneskjur“
|Launa­seð­ill|

Hreinn Júlíus Ingv­ars­son 35 ára gam­all varð­stjóri í lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu veltir fyrir sér starf­inu og af hverju hann sinnir því enn, í færslu sem hann birti á Facebook í gær.

Færsluna skrif­aði hann á frí­vakt, þar sem hann sat einn heima með hugs­unum sínum, meðan konan hans var í vinnu og börnin þeirra í leik­skóla og grunn­skóla. Fríið var þó ekki vakta­frí, heldur kom í ljós að Hreinn hafði tognað í baki eftir hand­töku á síð­ustu vakt.

„Ég sit hérna heima hjá mér í fríi, eða þannig, og get velt þessu fyrir mér. Það var hrækt yfir mig blóði og hráka í gær, ég kýldur og þegar ég var að gera skýrsl­una á lög­reglu­stöð­inni þá fann ég fyrir miklum verk í mjó­baki. Við skoðun á slysa­deild kom í ljós að ég hafði tognað í bak­vöðva við hand­tök­una. Þannig það er frí í dag,“ segir Hreinn og undr­ast hann það skiln­ings­leysi sem lög­reglu­menn mæta gagn­vart rík­is­vald­inu við gerð kjara­samn­inga.

Það var hrækt yfir mig blóði og hráka í gær, ég kýldur

Hreinn segir í sam­tali við Mannlíf að hann hafi farið í lög­reglu­starfið þar sem hann vildi hjálpa fólki, en hann útskrif­að­ist sem lög­reglu­þjónn árið 2010. Hans meg­in­hugsun þegar hann hóf störf í lög­regl­unni 24 ára gam­all hafi verið og sé enn þörfin til að hjálpa sam­borg­urum sínum. Aðspurður um hvort að hann hafi alist upp við starfið svarar hann: „Góð spurn­ing og svarið er já og nei. Pabbi starf­aði um skamma stund sem H-maður á Siglu­firði (ólærður) og starf­aði í lög­regl­unni þar af og til í nokkur ár.

„Svo nátt­úru­lega snýst þetta starf yfir­leitt um að reyna tala við fólk og reyna að róa ástand með munn­inum og mér hefur alltaf þótt það spenn­andi, það er sama hversu ruglað ástandið er að geta rætt við fólk rólega og náð því niður eða fá það á nið­ur­stöðu sem allir geta sætt sig við.“

Segir Hreinn í færsl­unni að reyndur lög­reglu­maður hafi sagt við hann að ef Hreinn hafi viljað starf þar sem hann fengi þakkir og hrós fyrir störf sín, þá væri hann á röngum stað, og benti hann Hreini á að fara frekar í slökkvi­liðið.

Og ef þú værir 24 ára að hlýða þér 35 ára hvaða starf myndir þú fara í? „Leiklist allan dag­inn,“ svarar Hreinn hlæj­andi þeirri spurn­ingu blaða­manns. „Bara eitt­hvað ekki eins þungt.“

Svo nátt­úru­lega snýst þetta starf yfir­leitt um að reyna tala við fólk og reyna að róa ástand með munn­inum

Lögreglumenn eru manneskjur eins og allir aðrir

Hreinn segir starfið á margan hátt fal­legt og ákveðna róm­an­tík fel­ast í því. Hins vegar vegi erf­iðu spurn­ingnar þyngra. „Bara ef ég hefði getað sagt 24 ára strák­bján­anum að gera eitt­hvað annað er hugsun sem stundum læð­ist að mér,“ segir Hreinn.

„Málið er nefni­lega að við lög­reglu­menn erum mann­eskjur með okkar bresti, vanda­mál og til­finn­ingar eins og allir aðrir og erum kall­aðir til á verstu augna­blikum fólks. Til að geta leyst verk­efnin far­sæl­lega þurfum við oftar en ekki að sam­svara okkur skjól­stæð­ingnum, setja okkur í spor þeirra og vera með þeim í hvaða harm­leik sem fólk stendur frammi fyrir,“ segir Hreinn og segir það hafa valdið honum ýmsum vanda­málum í gegn um tíð­ina því lög­reglu­menn reyni að gera erf­ið­ustu stundir fólks bæri­legri.

Hreinn hefur lent í áföllum á lífs­leið­inni eins og fleiri og rekur áföll sín í færsl­unni. Hann hefur misst tví­bura­dætur, ömmur og afa, frænda og glímt við kvíða og alls­konar vanda­mál.

„Ég hef tvisvar, eftir að ég missti börnin mín, tekið þátt í end­ur­lífgun á unga­barni. Í fyrra mál­inu fékk ég hálf­gert tauga­á­fall því á meðan ég var að reyna að hnoða barnið til lífs fann ég sjálfan mig í hug­anum á sjúkra­hús­inu á Akureyri þar sem ég hélt á stelp­unum mínum og rank­aði við mér grát­andi á vett­vangi. Ég var ekki stoltur af mér þarna en reyndi að halda and­liti, ég sam­svar­aði mér of mikið. Það er ekk­ert hægt að flýja þessar til­finn­ingar,“ segir Hreinn, en segir lög­reglu­menn klára sín verk­efni sama hvernig þeim líður eða hvort þeir treysta sér í það eða ekki. Það gildir um þessi verk­efni líkt og önnur sem við glímum við á hverjum degi og stundum oft á dag.

Hreinn segir að honum sárni þegar starfs hans og fram­lag er ekki metið til launa. Hann seg­ist einnig eiga erfitt með að skilja hvernig ráða­mönnum og þá kannski sér­stak­lega for­sæt­is­ráð­herra tekst að gleyma lög­reglu­mönnum þegar kemur að hrósi og þökkum til fram­línu­stétta þessa lands sem margar hverjar hafa unnið þrek­virki í því ástandi sem von­andi er að líða undir lok. „Hvernig er hægt að gleyma orð­inu „lög­reglan“ þegar Ísland er á neyð­ar­stigi almanna­varna?,“ segir Hreinn og bætir við:

„Síðustu mán­uðir hafa verið gríð­ar­lega erf­iðir fyrir þjóð­ina og við sjáum það í þyngri og erf­ið­ari verk­efnum en rík­is­valdið virð­ist ekki getað sam­svarað sér lög­reglu­mönnum.“

Maður skilur samt þegar konan, vinir og fjöl­skylda spyrja af hverju ert þú í lög­regl­unni

Með færsl­unni birtir Hreinn launa­seðil sinn fyrir apríl, og tekur hann fram að hann reyni eins og hann getur að vinna bara dag­vaktir og taka ekki auka­vaktir þar sem hann er fjöl­skyldu­maður og vilji ekki að starfið bitni meira á fjöl­skyldu hans, en þarf.

Launa­seð­ill

„Maður skilur samt þegar konan, vinir og fjöl­skylda spyrja af hverju ert þú í lög­regl­unni. En ég er far­inn að skilja hver ég er með aldr­inum, hvers vegna ég stend í þessu. Öll mín reynsla innan og utan lög­regl­unnar getur von­andi hjálpað fólki á betri stað en það var á áður en ég kom á vett­vang. Við lög­reglu­menn vitum hver við erum og fyrir hvað við stöndum.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjarasamningar

Sjómenn kolfelldu kjarasamninginn við SFS en skipstjórar samþykktu
Innlent

Sjómenn kol­felldu kjara­samn­ing­inn við SFS en skip­stjórar sam­þykktu

Félags­menn Sjó­manna­fé­lags Íslands kol­felldu kjara­samn­ing við Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Samkvæmt vef­síðu Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga kol­felldu sjó­menn kjara­samn­ing sem SFS bauð þeim. Kosn­ing­unni lauk klukkan 15:00 í dag. Á kjör­skrá voru 1.200 manns og var kjör­sókn 47,58 pró­sent. Nið­ur­staðan var sú að 180 sögðu já við samn­ingnum eða 31,52 pró­sent, nei sögðu 385 eða 67,43 pró­sent. Auðir voru 1,05 pró­sent. Þá...
Ástráður Har­alds­son sett­ur sem rík­is­sátta­semj­ari í vinnu­deilu Efl­ing­ar og SA
InnlentKjarasamningar

Ástráður Har­alds­son sett­ur sem rík­is­sátta­semj­ari í vinnu­deilu Efl­ing­ar og SA

Hér­aðs­dóm­ari Ástráður Har­alds­son hef­ur verið sett­ur sem rík­is­sátta­semj­ari í yf­ir­stand­andi vinnu­deilu Efl­ing­ar og Sam­taka at­vinnu­lífs­ins. Hefur stjórn dóm­stóla­sýsl­unn­ar sam­þykkt að veita Ástráði leyfi frá dóm­ara­störf­um, en þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins. Kemur fram að með er­indi til fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins, dags. 13. fe­brú­ar 2023, óskaði Aðal­steinn Leifs­son rík­is­sátta­semj­ari eft­ir því að víkja í yf­ir­stand­andi kjara­deilu Efl­ing­ar og Sam­taka at­vinnu­lífs­ins...
Hjúkrunarfræðingar og ríkið funda í dag
Innlent

Hjúkr­un­ar­fræð­ingar og ríkið funda í dag

Fundur hjúkr­un­ar­fræð­inga og rík­is­ins fer fram klukkan hálf­ell­efu í dag hjá rík­is­sátta­semj­ara, en síð­asti form­legi fundur aðila var 24. mars. Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari segir við RÚV að ein­hverjir óform­legir fundir hafi verið síð­ustu daga, og er hann von­góður um að fund­ur­inn í dag beri árangur í deilu aðila. Kjara­samn­ingar hjúkr­un­ar­fræð­inga hafa nú verið lausir í ár, en laun þeirra og...
Kjarasamningar í höfn og verkföllum aflýst – „Góðar fréttir nú í morgunsárið“
Innlent

Kjara­samn­ingar í höfn og verk­föllum aflýst – „Góðar fréttir nú í morg­unsárið“

Samn­ingar náð­ust í nótt á milli aðlid­ar­fé­laga BSRB og við­semj­enda þeirra hjá ríki, Reykja­vík­ur­borg og Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga. Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, segir þetta vera góðar fréttir sem ber­ast í morg­unsárið. „Þessir samn­ingar fela í sér stór fram­fara­skref en þar ber hæst kerf­is­breyt­ingu á vakta­vinnu­fyr­ir­komu­lagi og stytt­ingu vinnu­tíma. Það eru mál sem munu skipta veru­legu máli til að auka lífs­gæði fólks,...
InnlentKjarasamningar

Verk­falls­að­gerðum aflýst

Öllum verk­falls­að­gerð­urm um 16 þús­und félags­manna BSRB sem áttu að hef­ast á iðnætti hefur verið aflýst. Aðild­ar­fé­lög BSRB hefur samið við við­semj­enda þeirra hjá ríki, Reykja­vík­ur­borg og Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga. Hver kjara­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður á fætur öðrum í nótt. Samn­inga­nefnd BSRB gagn­vart Sambandi íslenskra sveit­ar­ar­fé­laga, fyrir hönd 14 aðild­ar­fé­laga BSRB, skrif­aði rétt eftir mið­nætti undir nýjan kjara­samn­ing við samn­inga­nefnd Sam­bands­ins...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins