„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Útnefnir ráðherra sem óvin Vestfjarða

Útnefnir ráðherra sem óvin Vestfjarða
Útsýni frá Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Kálfatindar í fjarska. Mynd: rt

Frestun á fram­kvæmdum við Hval­ár­virkjun í Árnes­hreppi hefur farið illa í virkj­ana­sinna á Vest­fjörðum. Magnús Reynir Guð­munds­son, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks segir „athygl­is­vert að fylgj­ast með við­brögðum óvina Vest­firð­inga“. Þetta kemur fram í aðsendri grein hans á vef­miðl­inum bb.is.

Magnús Reynir full­yrðir að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra hafi „stýrt aðför­inni gegn Vest­fjörðum frá skrif­stofu sinni“. Þá kallar hann Tómas Guð­bjarts­son athygl­is­sjúkan „hjarta-og barka­lækni“ sem skálað hafi í kampa­víni þegar hann hafi talið sig hafa unnið orr­ustu við hrepps­nefnd og íbúa Árnes­hrepps.

„Þjóð­garða­æði ráð­herr­ans er löngu komið út yfir öll vel­sæm­is­mörk.”

Tómas hefur verið óþreyt­andi í bar­áttu sinni gegn virkj­un­inni. Aðra nátt­úru­vernd­ar­sinna kallar Magnús „öfga-og yfir­gangs­menn“, sem flestir búi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Telur Magnús að Land­vernd, undir for­ustu umhverf­is­ráð­herra, Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, hafi stöðvað virkj­un­ina með kæru­æði sem fjár­magnað hafi verið úr sér­sjóðum umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins. Ráð­herr­ann hafi með þessu sýnt í verki hug sinn til íbúa Vest­fjarða. „Nýjasta hug­mynd hans er nú, að því er virð­ist, eftir frestun fram­kvæmda við Hval­ár­virkjun, að gera alla Vest­firði að þjóð­garði. Þjóð­garða­æði ráð­herr­ans er löngu komið út yfir öll vel­sæm­is­mörk og íbúar og margir þing­menn Norð­ur­lands og Suð­ur­lands munu t.d. ekki sam­þykkja frum­varp hans um risa­þjóð­garð á hálend­inu í óbreyttri mynd”.

Grein­ar­höf­undur spáir því að  Fram­sóknar-  og Sjálf­stæð­is­menn muni heldur vilja stjórn­ar­slit, en láta  umhverf­is­ráð­herra Vinstri grænna ráða för í þessu máli og öðrum.  Hann lýsir Land­vernd sem „hryðju­verka­sam­tökum”. Land­vernd HVS er ný skamm­stöfun hans á nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­unum sem umhverf­is­ráð­herra starf­aði áður við sem  fram­kvæmda­stjóri. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins