„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lokuðu á Laugavegi vegna hringlandaháttar borgaryfirvalda

Lokuðu á Laugavegi vegna hringlandaháttar borgaryfirvalda

Fjórtán mán­uðum eftir að versl­un­inni Kúnígúnd var lokað við Laugaveg 53 stendur versl­un­ar­hús­næðið enn autt.

„Það er ein­falt svar við því, fólk er ekki að sækja Lauga­veg­inn og þar af leið­andi finnst fólki ef til vill ekki borga sig að opna þar verslun,“ segir Jórunn Þóra Sig­urð­ar­dóttir, versl­un­ar­stjóri í Kúnigúnd í Kringl­unni, um ástæður þess að hús­næðið við Laugaveg 53 stendur enn autt, fjórtán mán­uðum eftir að versl­un­inni þar var lokað. Versl­unin Kúnígúnd var rekin í 37 ár á Lauga­vegi, síð­ast undir stjórn Þóru.

Spurð hvers vegna versl­un­inni hafi verið lokað segir hún að það hafi ein­fald­lega verið of lítið að gera. „Bíla­stæðum í grennd við búð­ina var fækkað. Það voru upp­haf­lega fimm stæði hinum megin við göt­una en þau voru komin niður í þrjú og hjá einu var staur sem gerði að verkum að við­skipta­vinir okkar, einkum þeir eldri, áttu erfitt með leggja í stæðið og neydd­ust jafn vel til að hætta við. Við urðum reglu­lega vitni að því. Fyrir utan það rugl­aði umræðan um Laugaveg sem göngu­götu marga í rím­inu. Fólk vissi hrein­lega ekki lengur hvort það gæti ekið upp að búð­inni eða hvort það þyrfti að labba. Það fældi marga frá.“

Hún segir að við­skipta­vin­irnir, ekki síst þeir eldri sem eru búsettir við Skúla­götu, hafi eðli­lega orðið mjög leiðir þegar versl­un­inni var lokað við Laug­ar­veg. „Þetta voru fastakúnnar sem áttu í við­skiptum við búð­ina í mörg ár og gerðu sér oft sér­staka ferð í hana. Þeim fannst skelfi­legt að sjá á eftir henni. Okkur þótti ekki síður leið­in­legt að þurfa að loka henni, en maður verður að fá eitt­hvað í kass­ann til að geta rekið hlut­ina.“

Sjá einnig: Tinna lokar verslun sinni á Lauga­vegi: „Ég er ekk­ert að grín­ast þegar ég hef kallað Hrím barnið mitt“

Mörg rótgróin fyrirtæki búin að loka við Laugaveg

Þóra segir að svona sé þetta búið að vera við Laugaveg síð­ustu ár. Þar hafi hvert rót­gróið fyr­ir­tækið á fætur öðru neyðst til að loka vegna ákvarð­ana borg­ar­yf­ir­valda. „Sig­ur­bog­inn, Lífs­stykkja­búðin og Herra­húsið,“ nefnir hún sem dæmi. „Búðir sem voru reknar við góðan orðstír við göt­una um ára­bil. Aðrar versl­anir, eins og Jón & Óskar, hafa þurft að minnka við sig. Sum fyr­ir­tæki hafa ekki séð annan kost í stöð­unni en að fara með starf­sem­ina annað, þar sem aðgengi er betra, og ein­hver hafa blómstrað.“

Í því sam­hengi nefnir Þóra að rekstur versl­ana Kúnígúndar, ann­ars vegar á Gler­ár­torgi á Akureyri og hins vegar í Kringl­unni, þar sem hún er versl­un­ar­stjóri, gangi ljóm­andi vel. „Já, þær búðir ganga mjög vel. Þar er líka nóg af bíla­stæðum og aðgengi gott,“ bendir hún á og seg­ist vera mjög ánægð með fyr­ir­komu­lagið þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“
Innlentborgarstjórn

Össur hrósar við­brögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítra­tali af Einari“

Össur Skarp­héð­ins­son skýtur létt á Einar Þor­steins­son í nýrri Facebook-færslu en hrósar Þórdísi Lóu Þór­halls­dótttur sem hann kallar „alvöru­stjórn­mála­mann“. Líf­fræð­ing­ur­inn og fyrr­ver­andi ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar, Össur Skarp­héð­inn óskar nýjum borg­ar­stjóra til ham­ingju með nýja starfið, í nýrri Facebook-færslu en notar einnig tæki­færið til þess að skjóta nett á Einar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra, sem Össur segir að „fýlan“ hafi lekið af „í...
Kryddpíurnar í borginni byrjaðar að skrifa sáttmála: „Þetta eru auðvitað bara lykiláhersluatriði“
Innlent

Kryddp­í­urnar í borg­inni byrj­aðar að skrifa sátt­mála: „Þetta eru auð­vitað bara lyk­ilá­herslu­at­riði“

Oddviti Pírata í Reykja­vík­ur­borg, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, segir að meiri­hluta­við­ræður gangi vel á milli þeirra fimm stjór­mála­flokka sem rætt hafa saman und­an­farið en þær hafa haldið áfram í dag. Dóra segir að fundað hafi verið til 18 í dag en haldið verður áfram á morgun. Segist hún í sam­tali við RÚV vona að það dragi til tíð­inda á allra næstu...
Sanna útilokar ekki borgarstjórastólinn: „Bara eitt skref í einu“
Innlent

Sanna úti­lokar ekki borg­ar­stjóra­stól­inn: „Bara eitt skref í einu“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir seg­ist taka eitt skref í einu en úti­loki ekki borg­ar­stjóra­stól­inn. Nú þegar Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri kom öllum að óvörum og sleit meiri­hluta­sam­starfi sínu í borg­ar­stjórn, eru ýmsar þreif­ingar í gangi meðal flokk­anna í borg­inni. Nokkuð ólík­legt verður að telj­ast að Fram­sókn­ar­flokkur Einars verði í næsta meiri­hluta, eftir að Inga Sæland lýsti því yfir að Flokkur fólks­ins hefði...
Framsókn biði afhroð í borginni ef kosið yrði í dag – Sanna talin standa sig best
Innlent

Framsókn biði afhroð í borg­inni ef kosið yrði í dag – Sanna talin standa sig best

Algjört afhroð biði Fram­sókn­ar­flokk­ins í Reykja­vík kosið yrði í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inum í dag, sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Sam­fylk­ingin fengi flest atkvæði sam­kvæmt sömu könnun. RÚV segir frá nið­ur­stöðu nýrrar könn­unar Maskínu á fylgi flokk­anna í Reykja­vík­ur­borg en Framsókn, sem var sig­ur­veg­ari síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga, mælist nú með 14 pró­sent minna fylgi en í síð­ustu kosn­ingum eða ein­ungis fjögur pró­sent. Könnun Maskínu fór...
Dagur B. vill finna lausn á vanda bræðranna: „Kjötborg lengi lifi!“
Innlentborgarstjórn

Dagur B. vill finna lausn á vanda bræðr­anna: „Kjötborg lengi lifi!“

Dagur B. Egg­erts­son vill finna lausn fyrir bræð­urna í Kjötborg en Reykja­vík­ur­borg hefur nú ákveðið að hefja gjald­töku í hverfi versl­un­ar­innar. Borg­ar­stjóri Reykja­víkur, Dagur B. Egg­erts­son segir að fjöl­margir hafi heyrt í honum og bent á að lausn þurfi að finn­ast fyrir bræð­urna í Kjötborg í Vest­ur­bænum vegna þeirrar gjald­töku sem borgin hefur ákveðið að leggja á bíla­stæði í hverf­inu...
Stefnir í harðan slag hjá Sjálfstæðismönnum í Reykjavík: Ragnhildur hjólar í Hildi
Innlentborgarstjórn

Stefnir í harðan slag hjá Sjálf­stæð­is­mönnum í Reykja­vík: Ragn­hildur hjólar í Hildi

Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar að gefa kost á sér í odd­vita­sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor. Frétta­blaðið greinir frá þessu. Þannig mun Ragn­hildur fara fram á móti Hildi Björns­dóttur, borg­ar­full­trúa, en hún gaf kost á sér í odd­vita­sætið í des­em­ber. Hildur hefur notið nokk­urra vin­sælda sem borg­ar­stjóra­efni þvert á flokka. Átök hafa þó kraumað í Sjálf­stæð­is­flokknum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins