„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bjartsýnn Bogi en ekki bugaður segir engan koma í stað Icelandair

„Mér líður bara mjög vel. Síðustu vikur hafa auð­vitað verið erf­iðar og verk­efnið krefj­andi. Ég er með frá­bært teymi með mér þannig að ég er langt í frá bug­aður heldur bjart­sýnn,“ segir Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, um líðan sína en for­stjóri flug­fé­lags­ins hefur staðið í stöngu und­an­farið við að reyna að end­ur­fjár­magna rekst­ur­inn til að bjarga flug­fé­lag­inu frá falli.

Bogi við­ur­kennir að það hafi verið mik­ill léttir að ná samn­ingum við flug­menn félags­ins í gær­kvöldi. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs kveður samn­ing­ur­inn á um 25 pró­senta launa­lækkun flug­manna og hafa þeir meðal ann­ars gefið eftir frí­daga og eru til­búnir til að auka vinnu­fram­lag. Enn er allt stál í stál á milli Icelandair og flug­freyja. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru kröfur Icelandair mun væg­ari en komið hefur fram í fjöl­miðlum, eða nokkuð í anda þess sem flug­mönnum hefur boð­ist. Grunn­laun flug­freyja eru þó tals­vert lægri en flug­manna. Þá herma heim­ildir Mannlífs einnig að stjórn og for­stjóri Icelandair hafi nú þegar lækkað laun sín um 30 pró­sent og allir helstu stjórn­endur félags­ins um 20 pró­sent.

„Það hafa jákvæð sam­töl átt sér stað. Við höfum fundið fyrir áhuga og fengið margar fyr­ir­spurnir, bæði inn­an­lands og utan.“

Aðspurður vill Bogi ekki stað­festa þessar launa­lækk­anir sem flug­menn og stjórn­endur hafa tekið á sig. Hann stað­festir að til­boð til flug­freyja sé í anda þess sem öðrum er boðið. „Þetta var mik­il­vægur áfangi. Það voru gerð­ast tals­verðar breyt­ingar sem auka fram­legðni og vinnu­fram­lag til að auka sam­keppn­is­hæfni félags­ins. Við erum að horfa til þess að breyta samn­ingum hjá flug­freyjum með sama hætti.“

Sjá nánar hér: Samn­ingar nán­ast í höfn

Bogi segir að Icelandair hafi oft reynt að gera þær breyt­ingar á samn­ingum sem nú þykja nauð­syn­legar. Þegar hann er spurður útí hvort það valdi honum áhyggjum hversu erf­ið­lega hefur gengið að ná samn­ingum við flug­freyjur þá segir hann svo ekki vera. „Ég hef nokkuð góðan skiln­ing á því að það taki tíma að ganga frá svona stórum breyt­ingum á samn­ingum sem við erum að óska eftir. Það liggur fyrir að fjár­festar vilja hafa fyr­ir­sjá­an­leika til langs tíma hvað þetta varðar og því réð­umst við í þessa vinnu núna. Ég hef alltaf verið jákvæður fyrir því að samn­ingar við FFÍ náist því það er mjög mik­il­vægt fyrir félagið.“

Aðspurður um hvort hann ótt­ist að félagið kunni að falla semji flug­freyjur ekki þá segir hann það vissu­lega mik­il­vægan þátt í fram­tíð félags­ins. „Sú er bara staðan en það er samt ekk­ert neitt eitt sem veltir hlass­inu. Að semja við flug­freyjur er mik­il­vægur liður því ef okkur tekst ekki að klára fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu þá getur staðan orðið erfið.“

Bogi segir ljóst að engin skyn­semi sé í öðru en að bjarga Icelandair frá falli nú og bendir á að víða í lönd­unum í kringum Íslands séu stjórn­völd að koma flug­fé­lögum til aðstoðar. Hann er sann­færður um að ekk­ert annað flug­fé­lag geti hlaupið í skarðið svo vel sé líkt og bæði Bláfugl og Play flug­fé­lögin hafa lýst yfir. „Í raun­inni er leið­ar­kerfi okkar þess eðlis að það myndi taka önnur flug­fé­lög mörg ár að byggja slík upp. Það yrði að mínu mati gríð­ar­legt tjón fyrir hag­kerfi lands­ins ef okkar félag verður ekki klárt þegar mark­að­ur­inn tekur við sér. Það er stað­reynd að það hleypur eng­inn í skaðið fyrir Icelandair, það tekur fjölda­mörg ár,“ segir Bogi.

Bogi hefur ekki aðeins rætt við stærstu hlut­hafa Icelandair und­an­farið um aukn­ingu hluta­fjár heldur segir hann jákvæða fundi hafa átt sér stað með fag­fjár­festum. Hverjir þeir eru sem sýnt hafi þann áhuga vill hann hins vegar ekki stað­festa. Aðspurður játar hann því að allar þær þreif­ingar séu á frum­stigi og engar vilja­yf­ir­lýs­ingar á borð­inu. „Það hafa jákvæð sam­töl átt sér stað. Við höfum fundið fyrir áhuga og fengið margar fyr­ir­spurnir, bæði inn­an­lands og utan. Um leið og fjár­festar heyra af áhuga­verðum tæki­færum hafa þeir sam­band og það hefur aðeins verið um það. Sá áhugi hefur aðeins auk­ist eftir að við gáfum út að við værum að fara í hluta­fjár­aukn­ingu,“ segir Bogi.

Þannig er Bogi brattur fyrir fram­hald­inu og ekk­ert nema bjart­sýnn fyrir kom­andi vikum. Hann segir við­skipta­módel fyr­ir­tæks­ins hafa sannað sig og inn­viði þess bæði sterka og verð­mæta. „Auðvitað er alltaf hægt að gera betur í rekstri. Ég hef engar for­sendur fyrir öðru en að þetta gangi upp hjá okkur. Í raun­inni er engin skyn­semi í öðru. Við ætlum að koma okkur í gegnum þetta og vera með sterkt félag sem tryggja mun sterka við­spyrnu íslensks hag­kerfis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélögin

Play flýgur í sólina til Orlando
Innlentflugfélögin

Play flýgur í sól­ina til Orlando

Flug­fé­lagið Play hefur flug til Orlando þann 30.sept­em­ber næst­kom­andi og hafa þau þegar opnað fyrir miða­sölu. Kemur fram í til­kynn­ingu frá flug­fé­lag­inu að flogið verði til Orlando International flug­vall­ar­ins þrisvar sinum í viku en verður Orlando fjórði áfanga­staður Play í Banda­ríkj­unum. Býður Play einnig upp á flug til Boston, Baltimore og New York. Flug­fé­lagið bætti við sig nýja áfanga­staðnum vegna...
Tíu flugvéla floti hjá Play í kortunum
Innlentflugfélögin

Tíu flug­véla floti hjá Play í kort­unum

Flug­fé­lagið Play hyggst nota sex flug­vélar í sumar en hefur félagið skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um leigu á A321 flug­vél og þannig tryggt sér í heild­ina tíu vélar. Play hefur flug til Banda­ríkj­anna í apríl og verður nýja flug­vélin til­búin til afnota fyrir þann tíma. Kemur þetta fram í til­kynn­ingu frá Play og fjall­aði Morg­un­blaðið um málið. Miðasala til Banda­ríkj­anna fer...
PLAY til New York daglega – ódýrasta flugið til Evrópu
Innlentflugfélögin

PLAY til New York dag­lega – ódýrasta flugið til Evrópu

Flug­fé­lagið PLAY mun hefja í dag miða­sölu á flug­ferðum til New York í Banda­ríkj­unum. PLAY mun fljúga dag­lega til New York Stewart International en verður það eina flug­fé­lagið með milli­landa­flug frá þeim flug­velli. Flug­fé­lagið náði hag­stæðum samn­inum við flug­völl­inn sem er tölu­vert mikið minni en þeir sem nú er flogið til á svæð­inu. Þar með ná þau að bjóða upp...
Forstjóri Play: Við munum bjóða betur en Icelandair og þeir hafa augljósar áhyggjur af því
Innlentflugfélögin

For­stjóri Play: Við munum bjóða betur en Icelandair og þeir hafa aug­ljósar áhyggjur af því

Arnar Már Magn­ús­son, for­stjóri hins boð­aða Play, segir aug­ljóst að Icelandair hafi miklar áhyggjur af inn­komu flug­fé­lags­ins. Það sé heldur ekk­ert skrítið því rekst­ar­módel þess fyrr­nefnda sé mun hag­kvæmara og því komi Play til með að bjóða betri verð. Þetta segir Arnar í ljósi full­yrð­inga Boga Nils Boga­sonar, for­stjóra Icelandair, um að hér á landi sé aðeins pláss fyrir eitt...
Krafa um gjaldþrotaskipti Play: „Okkur þykir leitt að Bogi hafi valið að fara þessa leið“
Innlentflugfélögin

Krafa um gjald­þrota­skipti Play: „Okkur þykir leitt að Bogi hafi valið að fara þessa leið“

Einn af stofn­endum Play flug­fé­lags­ins hefur farið fram á gjald­þrota­skipti félags­ins. Krafa þess efnis var lögð fram í morgun fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness. Lögð var fram krafa um gjald­þrota­skipti flug­fé­lags­ins Play fyrir Héraðs­dómi Reykja­ness í morgun. Þetta stað­festi Arnar Már Magnús­son, for­stjóri fé­lags­ins í sam­tali við Mark­að­inn. Krafan var lögð fram af Boga Guð­munds­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra sölu-og mark­aðs­sviðs fé­lags­ins, sem hlaut...
Innlentflugfélögin

„Starfs­menn Icelandair hafa unnið þrek­virki“

Icelandair flug­fé­lagið fær bættan stærstan hluta þess tjóns sem fyr­ir­tækið varð fyrir vegna kyrr­setn­ingar Boeing 737 MAX flug­vél­anna. Sam­komu­lag við flug­véla­fram­leið­and­ann hefur náðst. Þá hafa stjórn­endur Icelandair einnig náð sam­komu­lagi við alla kröfu­hafa félags­ins og við­ræður við íslenska ríkið um rík­is­á­byrgð á lánum eru langt komnar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu en þar segir að Icelandair losni undan...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins