„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bjargvættur Play er Elías Skúli

Bjargvættur Play er Elías Skúli
|

Elías Skúli Skúlason, stjórn­ar­for­maður og einn eig­enda flug­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Airport Associates, verður aðal­eig­andi Play-flug­fé­lags­ins eftir að brú­ar­lánum hans til félags­ins verður breytt í hlutafé. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs munu fyrrum aðal­eig­endur félags­ins halda áfram störfum sínum að und­an­skildum Boga Guð­munds­syni, yfir­manni lög­fræðis­viðs félags­ins.

Play stefnir á að hefja flug 1. októ­ber og hefur flug­fé­lagið kynnt áætlun sína fyrir helstu sam­starfs­að­ilum og bak­hjörlum. Flug­rekst­ar­leyfið liggur klárt hjá Sam­göngu­stofu. Það er hins vegar tal­vert kostn­að­ar­samt að reka flug­fé­lag án tekna, líkt og Play hefur gert síðan síð­ast­liðið haust. Félagið átti í erf­ið­leikum með að greiða laun þar til bjarg­vættur kom inn í félagið og situr nú í stjórn þess. Sá bjarg­vættur er Elías Skúli sem verið hefur í lyk­il­hlut­verki við að veita Play brú­ar­fjár­mögnun sem nú hefur skilað honum í hlut­verk meiri­hluta­eig­anda.

Ýtt til hliðar

Fjár­mögnun Play til að hefja leik í haust er í höfn, líkt og Mannlíf sagði fyrst frá, og unnið hörðum höndum nú að því að tryggja lang­tíma­fjár­mögnun félags­ins. Til þess vantar ekki mikð upp á og yrði þá vöxtur flug­fé­lags­ins tryggður til fram­tíðar. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur félagið nú þegar gert áhafn­ar­samn­inga sem gilda út árið 2023.

Eigendur og stofn­endur Play flug­fé­lags­ins voru fjórir. Arnar Már Magn­ús­son for­stjóri, Sveinn Ingi Stein­þórs­son fjár­mála­stjóri, Þóroddur Ari Þór­odds­son með­eig­andi og Bogi, yfir­maður lög­fræðis­viðs. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru líkur á að sá síð­ast­nefndi sé sá eini sem hættir núna hjá félag­inu en aðrir halda stöðum sínum.

Arnar Már stað­festir breyt­ing­arnar í eig­enda­hópnum og leggur á það áherslu að fyrri eig­endur séu ekki á útleið. „Hann er í eig­enda­hópnum, það er svo­leiðis og er ekk­ert leynd­ar­mál. Að öðru leyti eru engar breyt­ingar hjá félag­inu,“ segir Arnar Már.

Mikill happafengur

Elías Skúli, oft­ast kall­aður Skúli, hefur fjár­magnað rekstur Play á þessu ári sem nemur á bil­inu 40-50 millj­ónir króna á mán­uði með 40 starfs­menn sem vinna að því að kom­ast í háloftin í haust. Staða hans hjá félag­inu er því orðin sterk og við breyt­ingu lána í hlutafé þynn­ast fyrri eig­endur út. Heim­ildir Mannlífs herma að Elías Skúli hafi verið eini fjár­festir­inn sem veitt hafi fjár­magn inn í félagið á árinu og aðkoma hans, að því er virð­ist, mik­ill happa­fengur fyrir félagið. Með brú­ar­lánum sínum und­an­farna mán­uði hefur Elías Skúli styrkt mjög stöðu sína hjá flug­fé­lag­inu og ljóst að hann ætlar sér stóra hluti í flug­heim­inum í gegnum Play. Það er ekki í fyrsta sinn sem Skúlar ætlar sér slíkt.

Við vinnslu frétt­ar­innar var reynt að ná á Elías Skúla en án árang­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Fjármálastjóri Play sakaður um spillingu – Situr í stjórn sem „dæli fé inn í félagið“
Innlentflugfélög

Fjár­mála­stjóri Play sak­aður um spill­ingu – Situr í stjórn sem „dæli fé inn í félagið“

Þóra Egg­erts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Play, situr í stjórn eins af stærstu hlut­höfum flug­fé­lags­ins, líf­eyr­is­sjóðs­ins Birtu. Sjóð­ur­inn sker sig úr hvað varðar íslenska líf­eyr­is­sjóði þegar kemur að því að fjár­festa í Play og hefur stjórnin nú þegar sam­þykkt að leggja meira fé til félags­ins. Samkvæmt Sam­stöð­inni er Birta einn af stærstu hlut­höf­unum í Play með 8,5 pró­senta eign­ar­hlut, sem kost­aði sjóð­inn...
Innlentflugfélög

Aðal­eig­andi Icelandair í skattapara­dís: „Auðvitað til að greiða sem minnst í sam­eig­in­lega sjóði“

Aðal­eig­andi íslenska flug­fé­lags­ins Icelandair geymir hlut sinn í félag­inu í skattapara­dís sem notuð er af alþjóð­legum félögum til að kom­ast hjá skatt­greiðslum. Um er að ræða banda­ríska hrægamma­sjóð­inn Bain Capital sem með 17 pró­senta eign­ar­hlut sínum er langstærsti hlut­hafi Icelandair. Hlutinn geymir sjóð­ur­inn í írska félag­inu Blue Issuer en Írland er þekkt skattapara­dís. Gylfi Magn­ús­son, for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans og fyrr­ver­andi...
Birgir harmar upplifun farþega af óboðlegu hóteli: „Þetta er bara viðbjóðslegt“
Innlentflugfélög

Birgir harmar upp­lifun far­þega af óboð­legu hót­eli: „Þetta er bara við­bjóðs­legt“

For­stjóri flug­fé­lags­ins Play harmar upp­lifun far­þega sem sendir voru á hótel sem upp­fyllti væg­ast sagt ekki kröfur, þegar þeir voru stranda­glópar í París eftir að flug­ferð félags­ins var aflýst. Vísir greinir frá þessu. Birgir Jónsson, for­stjóri Play, er sam­mála því að hót­elið sem far­þeg­unum var boðið upp á í París hafi verið óvið­un­andi. „Ég er bara sam­mála þessu fólki sem...
Birgir boðar hækkun á verði flugmiða: „Það er óumflýjanlegt“
Innlentflugfélög

Birgir boðar hækkun á verði flug­miða: „Það er óum­flýj­an­legt“

Birgir Jónsson, for­stjóri Play, segir óum­flýj­an­legt að hækkun á olíu­verði í heim­inum í dag muni valda hækkun á verði flug­miða. Þetta segir hann í við­tali við RÚV. Hann segir standa til að lág­marka rekstr­ar­kostnað flug­fé­lags­ins til þess að mæta auknum kostn­aði. „Það er alveg ljóst að ef heims­mark­aðs­verð á elds­neyti hækkar um tugi pró­senta mun það skila sér í hærra...
Fleiri flugfélög til Íslands – verða 25 talsins í sumar
Innlent

Fleiri flug­fé­lög til Íslands – verða 25 tals­ins í sumar

Alls fljúga fimmtán flug­fé­lög til Íslands í ár en það eru einu fleiri en árið 2019, fyrir heims­far­ald­ur­inn. Þá er búist við miklum fjölda ferða­manna hingað til lands eða allt að 1,2 milljón manns. Bendir hvort tveggja til um kröft­uga við­spyrnu í ferða­þjón­ustu hér á landi og segir Guð­mundur Daði Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta og þró­unar hjá Isavia spána vera gleði­fréttir....
Niceair hefur flug frá Akureyri til Evrópu í sumar
Innlentflugfélög

Niceair hefur flug frá Akureyri til Evrópu í sumar

Nýtt flug­fé­lag sem ber nafnið Niceair hefur starf­semi í sumar. Flug­fé­lagið mun hefja milli­anda­flug frá Akureyri næsta sumar og verður í upp­hafi með eina Airbus 319 flug­vél sem tekur 150 far­þega. Þor­valdur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fra­kvæmda­stjóri og flug­maður flug­fé­lags­ins sagði í við­tali við Frétta­blaðið að mikil þörf væri á milli­landa­flugi fyrir Norður- og Aust­ur­land. Áætlað er að fyrsta flugið verði 2.júní...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins