„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þjóðin situr uppi með Icelandair

Þjóðin situr uppi með Icelandair
Boeing 737 Max flug­vél Icelandair.

Útlit er fyrir að íslenska þjóðin sitji uppi með Icelandair-flug­fé­lagið og það komi alfarið í hennar hlut að bjarga því frá falli. Nú þegar á almenn­ingur stóran hluta í flug­fé­lag­inu í gegnum eign­ar­hluti líf­eyr­is­sjóð­anna. Allt stefnir í að fólkið í land­inu eign­ist enn meira í gegnum skuld­breyt­ingu lána stóru rík­is­bank­anna sem nú þegar hafa lánað flug­fé­lag­inu í kringum 20 millj­arða króna, mögu­lega hluta­fjár­aukn­ingu líf­eyr­is­sjóð­anna og skattfé lands­manna með lánum og ábyrgðum rík­is­sjóðs. Þessu til við­bótar hefur félagið lýst því yfir að almenn­ingi verði boðin þátt­taka í hluta­fjár­út­boði og því ljóst að það verður almenn­ings að bjarga Icelandair. Á sama tíma virð­ist stærsti eig­andi félags­ins vera að kasta inn hand­klæð­inu og einka­fjár­festar virð­ast fram til þessa ekki hafa mikla til­trú á við­reisn­ar­verk­efn­inu.

Hálaunaðir toppar

Stærstu hlut­hafar Icelandair, íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir, gera það að skil­yrði fyrir hluta­fjár­aukn­ingu að end­ur­samið verði um kjör við starfs­menn flug­fé­lags­ins til langs tíma. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er um fjórð­ungur starfs­fólks með 75% þeirra launa sem félagið greiðir. Flugmenn, flug­freyjur og stjórn­endur Icelandair eru meðal þeirra sem verða að gefa eftir. Þá vilja hlut­haf­arnir skýr svör um samn­ings­mál félags­ins við Boeing-fyr­ir­tækið vegna Max-þot­anna göll­uðu því losna þurfi undan þeim samn­ingum og ráð­ast í end­ur­nýjun ann­ars úrelts flug­véla­flota. Fyrr séu hlut­hafar ekki til­búnir að leggja til aukið hlutafé og fyrr en það ger­ist munu hvorki bank­arnir skuld­breyta lánum né ríkið veita aðstoð sína í formi lán­veit­inga eða rík­is­á­byrgða. Það er ekki nema í þess­ari röð sem kap­all­inn hjá Icelandair mun ganga upp.

Skuldbreyta 20 milljörðum

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair.

Rík­is­bank­arnir tveir, Íslands­banki og Lands­banki, eiga sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs kröfur á Icelandair upp á nærri 20 millj­arða og er mik­il­vægur hluti af end­ur­fjár­mögnun félags­ins sú ósk að bank­arnir breyti lánum sínum í hlutafé. Vandinn er sá að slík skuld­breyt­ing mun ekki styrkja lausa­fjár­stöðu Icelandair en Bogi Nils Bogason for­stjóri hefur lýst því yfir að félagið lifi ekki sum­arið af án þess að fjár­munir komi inn í rekst­ur­inn.

Mannlíf hafði áður greint frá því að Icelandair þurfi að minnsta kosti að fá 20 millj­arða inn í félagið með boð­uðu hluta­fjár­út­boði en í vik­unni kom það fram að sú tala geti verið nærri 30 millj­örðum þar sem útlit sé fyrir að félagið verði nær tekju­laust út árið. Stærstu hlut­hafar flug­fé­lag­ins hafa hins vegar sagt að þeir taki engar ákvarð­anir um frek­ari fjár­fest­ingar fyrr en upp­lýs­ingar og áætl­anir félags­ins liggi fyrir. Ef Icelandair tekst að safna því hlutafé sem félagið stefnir að þá eru stjórn­völd til­búin að koma til aðstoðar með aðkomu að lána­línum með rík­is­á­byrgð. Það stað­festi Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í gær og úti­lok­aði ekki að ríkið ger­ist hlut­hafi.

Sett í þrot?

Jón Karl Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Icelandair og stjórn­ar­for­maður Heims­ferða, hefur lýst yfir áhyggjum sínum að líf­eyr­is­sjóð­irnir stóru kunni að tapa eignum sínum í flug­fé­lag­inu og að mögu­lega komi til þess að fyr­ir­tækið þurfi að lúta í lægra haldi. Samkvæmt Markaði Frétta­blaðs­ins gera stjórn­endur Icelandair ráð fyrir því að áfram verði starfað undir sömu kenni­tölu en að það hafi einnig verið rætt að setja félagið í gjald­þrot. Flug­fé­lagið yrði síðan end­ur­reist en við það gætu mikil verð­mæti og við­skipta­sam­bönd tap­ast.

Heim­ildir Mannlífs herma einnig að við samn­inga­borðið und­an­farið hafi því verið hótað að stofnað verði nýtt flug­fé­lag og end­ur­samið við alla. Sömu heim­ildir herma að tölu­verðri hörku gæti af hálfu stjórn­valda gagn­vart stjórn­endum Icelandair varð­andi mögu­lega aðkomu rík­is­ins að björg­un­ar­starf­inu. Þannig eru bæði núver­andi hlut­hafar og stjórn­völd gall­hörð á því að fá fyrst að sjá í hvað þau væru að setja pen­ing­ana.

Ýta á play í haust

Slæm staða Icelandair blasir við. Félagið til­kynnti í vik­unni stærstu hóp­upp­sögn Íslands­sög­unnar og hyggst efna til hluta­fjár­út­boða á næst­unni, annað fyrir fjár­festa og annað útboð opið almenn­ingi. Á meðan Icelandair end­ur­skipu­leggur starf­sem­ina stefnir Play-flug­fé­lagið að því að hefja flug 1. októ­ber næst­kom­andi og er nú að skoða gylli­boðin sem streyma inn frá fjölda fyr­ir­tækja sem bjóða upp á útleigu flug­véla sam­kvæmt áreið­an­legum heim­ildum Mannlífs. Félagið hefur kynnt áætl­un­ina fyrir helstu sam­starfs­að­ilum og bak­hjörlum sam­kvæmt sömu heim­ildum. Þegar félagið hefur fest vélar mun það leysa út flug­rekstr­ar­leyfið sem bíður þess til­búið hjá Sam­göngu­stofu og bók­un­ar­vél félags­ins er einnig til­búin til að opna fyrir bók­anir. Fjár­mögnun Play til að hefja leik er því í höfn og unnið hörðum höndum nú að því að tryggja lang­tíma­fjár­mögnun félags­ins. Til þess vantar nú lítið upp á og yrði þá vöxtur flug­fé­lags­ins tryggður til fram­tíðar að mati eig­enda.

Á meðan Icelandair end­ur­skipu­leggur starf­sem­ina stefnir Play-flug­fé­lagið að því að hefja flug 1. októ­ber næst­kom­andi.

Stæstu hlut­hafar Icelandair:

Par Invest­ment Partners L.P. Boston 13,50%
Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna Kringl­unni 11,81%
Gildi líf­eyr­is­sjóður Guð­rúnar­túni 1 7,24%
Birta líf­eyr­is­sjóður Sunda­görðum 2 7,07%
Líf­eyr­issj.starfsm.rík. A-deild Engjate 6,24%
Aðrir 54,14%
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnaghagsmál

Stýrivextir áfram 9,25 prósent – Lakari horfur í ferðaþjónustu ein af ástæðunum
Innlentefnaghagsmál

Stýri­vextir áfram 9,25 pró­sent – Lakari horfur í ferða­þjón­ustu ein af ástæð­unum

Stýri­vöxtum Seðla­banka Íslands verður haldið óbreyttum í 9,25 pró­sentum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans. Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri til­kynnti í morgun að Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hafi ákveðið að halda stýri­vöxtum áfram í 9,25 pró­sentum. Fram kemur í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar að verð­bólga hafi auk­ist eilítið frá síð­asta fundi hennar eftir að hafa minnkað fram eftir ári. „Und­ir­liggj­andi verð­bólga er enn...
Rebekka Guðleifsdóttir: „Hvenær gera Íslendingar alvöru uppreisn gegn þessu andskotans rugli?“
Innlentefnaghagsmál

Rebekka Guð­leifs­dóttir: „Hvenær gera Íslend­ingar alvöru upp­reisn gegn þessu and­skot­ans rugli?“

Ljós­mynd­ar­inn Rebekka Guð­leifs­dóttir skrif­aði gríð­ar­lega vin­sæla færslu á Facebook í gær en henni hefur verið deilt yfir 1100 sinnum. Í færsl­unni gagn­rýnir hún Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóra „og allt hitt ríka og fína sið­blinda fólkið“ sem kemur sér í valda­stöður á Íslandi. Færslan er löng og harð­orð og end­ur­speglar sístækk­andi óánægju í sam­fé­lag­inu vegna efna­hags­á­stands­ins á Íslandi en Seðla­banka­stjóri ákveð enn...
Skapandi leigjendur komi með tillögur að leiguverði
Innlentefnaghagsmál

Skapandi leigj­endur komi með til­lögur að leigu­verði

Þann 10. júní gefst áhuga­sömum kostur á að skoða hús­næði sem Reykja­vík­ur­borg leigir út fyrir skap­andi verk­efni. Húsnæðið er í Gufunesi, Bryggju­hverfi og í Skerja­firði og sam­tals er um rúm­lega 9.000 fer­metra að ræða. Á vef­síðu Reykja­vík­ur­borgar segir að við val á leigj­endum verði sér­stök áhersla lögð á skap­andi greinar og það að byggja upp og efla nýjar atvinnu­greinar og...
Þrír sinna eftirliti með lánveitingum og skila skýrslu til Bjarna
Innlent

Þrír sinna eft­ir­liti með lán­veit­ingum og skila skýrslu til Bjarna

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd veit­ingar við­bót­ar­lána lána­stofn­ana með rík­is­á­byrgð. Í nefnd­inni eru þau Einar Páll Tamimi, for­maður, Kristrún Heim­is­dóttir og Ásta Dís Óla­dóttir. Eft­ir­lits­nefnd­inni er ætlað að hafa almennt eft­ir­lit með fram­kvæmd lán­veit­ing­anna til fyr­ir­tækja sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­tapi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Þetta kemur fram á...
Innlent

Mun taka langan tíma að vinna okkur úr þess­ari kreppu

„Kostn­að­ur­inn verður veru­legur. Það mun taka langan tíma að vinna okkur úr þess­ari kreppu.“ Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, á upp­lýs­inga­fundi núna fyrir hádegi þegar næstu aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna efna­hags­á­hrifa kór­ónu­veirunnar voru kynntar. Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt þrjár til­lögur um stuðn­ing við launa­fólk og fyr­ir­tæki. Markmið þeirra er að draga úr þeim skaða sem umfangs­miklar upp­sagnir og fjölda­gjald­þrot valda þannig...
350 milljónir í stuðning við einkarekna fjölmiðla
Innlentefnaghagsmál

350 millj­ónir í stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla

Rík­is­stjórnin hyggst styðja við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla með 350 millj­óna króna fram­lagi vegna þess mikla tekju­taps sem miðl­arnir hafa orðið fyrir sam­hliða minnk­andi umsvifum í hag­kerf­inu. Þetta kemur fram á vef mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins Þer segir að verið sé að vinna að reglu­gerð um úthlutun stuðn­ings­ins. Gert er ráð fyrir því að fjöl­miðlar sæki um stuðn­ing með form­legum hætti og...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins