„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mál séra Skírnis: Bisskupsstofa svarar engu

Mál séra Skírnis: Bisskupsstofa svarar engu
|Sigurður Kári Krist­jáns­son

Við­mæl­endur Mannlífs furða sig á flýt­inum við brott­rekstur séra Skírnis Garð­ars­sonar, þ.e.a.s. að hann hafi hvorki hafi fengið áminn­ingu né hafi til­lit verið tekið til veik­inda­vott­orðs, í ljósi þess að lögin séu skýr.

Ekki má reka prest úr emb­ættti nema við­kom­andi hafi fengið tæki­færi til and­mæla og að und­an­feng­inni skrif­legri áminn­ingu. Brott­vikn­ing presta úr starfi lýtur lögum um opin­bera starfs­menn þrátt fyrir að þeir séu í laga­legum skiln­ingi ekki lengur slíkir eftir að und­ir­rit­aður var samn­ingur ríkis og kirkju í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Stefnt er að útgáfu nýrra Þjóð­kirkju­laga í lok þessa árs en á meðan ekki hafa verið gefnar út nýjar reglur um upp­sögn presta gilda þær gömlu. Þær gömlu gera ráð fyrir því að veita þurfi and­mæla­rétt og skrif­lega áminn­ingu þar sem starfs­manni er gef­inn tími til að bæta ráð sitt. Und­an­tekn­ingar lag­anna eru ef um skipu­lags­breyt­ingar er að ræða eða verið sé að leggja við­kom­andi stöðu niður.

Lög um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins 1996 nr. 70 11. júní, 21. grein: 
Ef starfs­maður hefur sýnt í starfi sínu óstund­vísi eða aðra van­rækslu, óhlýðni við lög­legt boð eða bann yfir­manns síns, van­kunn­áttu eða óvand­virkni í starfi, hefur ekki náð full­nægj­andi árangri í starfi, hefur verið ölv­aður að starfi eða fram­koma hans eða athafnir í því eða utan þess þykja að öðru leyti ósæmi­legar, óhæfi­legar eða ósam­rým­an­legar starf­inu skal for­stöðu­maður stofn­unar veita honum skrif­lega áminn­ingu. Áður skal þó gefa starfs­manni kost á að tala máli sínu ef það er unnt.

Fram að síð­ustu ára­mótum voru prestar flokk­aðir sem opin­berir emb­ætt­is­menn og voru undir öllum reglum sem um þá gilda. Sem hluta af aðskiln­aði ríkis og kirkju voru prestar felldir úr þeirra hópi með sam­komu­lagi ríkis og kirkju sem und­ir­ritað var 6. sept­em­ber í fyrra. Í gildi eru síðan þjóð­kirkju­lög frá árinu 1997 þar sem hvar­vetna er vísað til þess að prestar séu opin­berir starfs­menn eftir því sem við á. Þessi lög munu gilda til næstu ára­móta en þá er stefnt að því að ný kirkju­lög leysi þau gömlu af hólmi. Í milli­tíð­inni var áður­nefnt sam­komu­lag und­ir­ritað milli ríkis og kirkju, sam­komu­lag sem gildir út árið 2020 og var und­ir­ritað af þremur ráð­herrum rík­is­stjórnar og bisk­upi Íslands, þar sem fram kemur að prestar í emb­ætti missi í engu rétt­indi þar til ný kirkju­lög koma fram. Sam­komu­lag­inu er ætlað að tryggja að prestar njóti óbreyttra rétt­inda og óbreyttrar stöðu þar til nýju kirkju­lögin yrðu sett.

Engin svör frá Biskupsstofu

Mannlíf óskaði eftir við­brögðum hjá Bisk­ups­stofu vegna brott­vikn­ingar Skírnis Garð­ars­sonar og sendi eft­ir­far­andi spurn­ingar. Engin svör bár­ust.

1) Gildir ekki lengur um presta það ákvæði laga um opin­bera starfs­menn sem veitir þeim rétt til and­mæla og skrif­legrar áminn­ingar áður en til upp­sagnar kemur?

Sjá grein 21.: https://www.althingi.is/lagas/150a/1996070.html

2) Ef þið teljið ákvæðið enn gilda um presta, hvers vegna var Skírni Garð­ars­syni ekki veitt skrif­leg áminn­ing í þessu til­viki?

3) Kom ekki til greina af hálfu Bisk­ups­stofu að fresta and­mæla­rétti Skírnis Garð­ars­sonar og ákvörðun ykkar fram yfir það tíma­bil sem við­kom­andi hafði sýnt fram á veik­indi sín?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins