„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Uppljóstrarinn sem biskupinn rak

Uppljóstrarinn sem biskupinn rak
Séra Skírnir Garð­ars­son.

Séra Skírnir Garð­ars­son, hér­aðs­prestur á Suð­ur­landi og fyrr­ver­andi prestur í Lága­fells­kirkju, var rek­inn úr emb­ætti í fram­haldi af umfjöllun frétta­mið­ils­ins Vísis um sam­skipti hans og Önnu Auroru Waage. Þetta var í þriðja sinn sem prest­ur­inn upp­ljóstr­aði eða kom að slíkum málum.

Séra Skírnir sagði frá því í við­tali fyrir nokkru að honum hefði brugðið mjög þegar hann sá á frétta­myndum að Anna var á leið vestur til Bol­ung­ar­víkur til að sinna hjúkr­un­ar­störfum á elli­heim­il­inu þar sem kór­ónu­veiran lagð­ist þungt á fólk. Anna hafði verið ráðin sem bak­vörður á þeim for­sendum að hún hefði rétt­indi og menntun til að sinna þeim störfum.

„Ég hafði lúmskan grun um það að papp­ír­arnir sem lágu þar væru að hluta til fals­aðir.“

„Ég gat ekki látið hana hafa pen­inga né mat öðru­vísi en að frétta af því hvort hún væri að segja mér satt eða ekki. Þannig ég ákvað að hringja í félags­mála­stjóra Mos­fells­bæjar, sem ég og gerði. Af því ég hafði lúmskan grun um það að papp­ír­arnir sem lágu þar væru að hluta til fals­aðir þá spurði ég félags­mála­full­trú­ann að því hvort ég gæti fengið að sjá þá,“ segir Skírnir í sam­tali við Vísi.

Fjallað er um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Skírnir rekinn

Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, brá skjótt við og lýsti því yfir að prest­ur­inn hefði framið trún­að­ar­brot með orðum sínum um skjól­stæð­ing. Fram­haldið var síðan það að biskup rak séra Skírni, sem verður sjö­tugur í nóv­em­ber. Brott­rekst­ur­inn var óvenju­harka­legur þar sem Agnes lýsti því yfir að hann myndi ekki þjóna Þjóð­kirkj­unni framar.

„Sr. Skírnir Garð­ars­son hefur starfað sem hér­aðs­prestur frá árinu 2016. Í við­tali við Vísi.is þann 11. apríl greindi Skírnir frá við­kvæmum mál­efnum sókn­ar­barns, frá þeim tíma sem hann starf­aði sem prestur við Lága­fells­sókn. Með við­tal­inu rauf Skírnir trún­að­ar­skyldu presta og braut starfs- og siða­reglur. Sr. Skírnir Garð­ar­son hefur lokið þjón­ustu sinni fyrir íslensku þjóð­kirkj­una,” segir í til­kynn­ingu bisk­ups.

Þessi skjótu við­brögð vekja athygli og þá ekki síst vegna þess vand­ræða­gangs sem ein­kennt hefur Þjóð­kirkj­una þegar um hefur verið að ræða mun alvar­legri mál á borð við kyn­ferð­is­brot. Þá liggur fyrir að Séra Skírnir hefur ekki fengið áminn­ingu sem er lögum sam­kvæmt und­an­fari brott­rekst­urs. Prest­ur­inn var þess utan í veik­inda­leyfi þegar hann fékk til­kynn­ing­una um brott­rekst­ur­inn.

Lestu nánar um málið í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins