„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sakar Gleðipinna um „gróft ásetningsbrot“ með heimsendingarþjónustu sinni

Hver er ábyrgð veit­inga­staða sem bera smit COVID-19 sjúk­dóms­ins á milli húsa með heim­sendum mat? Ævar Ingi Pálsson pípu­lagn­ing­ar­meist­ari varpar þess­ari spurn­ingu fram í pistli sínum sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag.

Ævar segir veit­inga­staði nú berj­ast í bökkum vegna útbreiðslu COVID-19 en að margir hafi gripið til þess ráðs að bjóða upp á heim­send­ingu. Hann segir því miður ekki alla vanda til verka í þeim efnum.

„Því miður er sann­leik­ur­inn sá að tugir þess­ara staða hafa ákveðið að taka sér styttri leið þegar kemur að heim­send­ingu og virða þeir leið­bein­ingar heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins um
þjón­ust­una að vettugi. Á meðan er engin leið til að sann­reyna að sótt­varnir séu tryggðar,“ skrifar hann.

Hann segir að sumir veit­inga­staðir fari eftir leið­bein­ingum heil­brigð­is­eft­ir­lits um heim­send­ing­ar­þjón­ustu á meðan aðrir svindla.

„Fyrir veit­inga­stað í sam­keppn­is­rekstri sem fer eftir öllum reglum er hreint út sagt sorg­legt að fylgj­ast með öðrum svindla, á keppi­nautum en ekki síst við­skipta­vinum sínum
sem eiga það skilið á við­sjár­verðum tímum að gætt sé að ströng­ustu skil­yrðum um sótt­varnir.“

Hann tekur Gleðip­inna ehf. sem dæmi en Gleðip­innar og Hreyfill hafa verið í sam­starfi und­an­farið í heim­send­ing­ar­þjón­ustu.

„Án þess að benda fingri á ein­staka veit­inga­staði þá hlýtur að telj­ast sjálf­sagt að umsvifa­mikil keðja veit­inga­staða, þ.e. Gleðip­innar ehf. (áður Foodco), fari að lögum og reglum en fyr­ir­tækið hefur samið við leigu­bíla­stöð­ina Hreyfil fyrir alla sína staði. Samkvæmt reglum heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins skal nota þar til gerð flutn­ings­tæki til að f lytja mat­væli, s.s. bíla með kæli- eða frysti­bún­aði, og ekki er heim­ilt að flytja annað en mat­væli í sama flutn­ings­tæk­inu. Þarna er því um afar gróft ásetn­ings­brot að ræða.“

Ævar bætir við að fleiri fyr­ir­tæki hafi samið við leigu­bíla­stöðvar eða not­ist við einka­bíla til að koma matnum til skila til við­skipta­vina.

„Einnig eru mörg dæmi um að veit­inga­staðir not­ist við einka­bíla starfs­fólks sem
er sann­ar­lega einnig óheim­ilt. Auk þessa er ákaf­lega lík­legt að veit­inga­stað­irnir sem um ræðir vinni ekki eftir þrifa­á­ætlun sem heil­brigð­is­eft­ir­litið gerir kröfu um en þrífa
skal flutn­ings­tæki áður en þau eru notuð til að flytja mat­væli og eftir hverja notkun.“

Ævar varpar fram nokkrum spurn­ingum í pistli sínum. Hann spyr hver ábyrgð veit­inga­staða sem bera COVID-19 smit á milli húsa sé. Hann spyr einnig hvar eft­ir­litið sé. Hann telur að ef ekk­ert verði aðhafst muni veit­inga­staðir slaka meira á kröfum sínum til að lækka kostnað.

„Hlýðum Víði og verslum ein­göngu við ábyrga veit­inga­menn!“

Uppfært: Gleðip­innar og Hreyfill sendu frá sér til­kynn­ingu vegna umrædds pistils. Svar þeirra má sjá hérna: Gleðip­innar og Hreyfill svara ásök­unum og varpa ljósi á hvernig staðið er að málum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins