„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hafdís Björg safnar sumargjöfum fyrir börn sem fá engar: „Svo dýrmætt að leyfa börnum að vera börn“

Hafdís Björg safnar sumargjöfum fyrir börn sem fá engar: „Svo dýrmætt að leyfa börnum að vera börn“

Hafdís Björg Krist­jáns­dóttir, fimm drengja móðir, einka­þjálf­ari og marg­faldur íslands­meist­ari í fit­ness, safnar nú sum­ar­gjöfum fyrir börn sem fá enga slíka.

„Það leit­uðu til mín þrjár mæður sem voru með mik­inn kvíða yfir því að geta ekki gefið börn­unum sínum sum­ar­gjöf þetta árið. Þetta týpíska allir vin­irnir í leik­skól­anum/skól­anum fá sum­ar­gjöf,“ segir Hafdís Björg í sam­tali við Mannlíf.

„Það eru ótrú­lega erf­iðir tímar og margir búnir að missa vinn­una sína og spara því pen­ing­inn í þarfari hluti fyrir heim­ilið eða eiga bara ekki fyrir sum­ar­gjöf. Þess vegna fannst mér til­valið að bjóða fram aðstoð á þennan hátt því ein lítil gjöf getur glatt svo mikið sem er svo dýr­mætt á þessum tímum.“

Í kjöl­farið stofn­aði hún hóp á Facebook: Gleðjum börnin á sum­ar­dag­inn fyrsta, og segir hún hann fara ört stækk­andi, bæði þá sem vilja þiggja aðstoð og þá sem vilja leggja sitt af mörkum.

„Það eru ótrú­lega margir búnir að bjóða fram aðstoð með því að kaupa gjafir, aug­lýsa hóp­inn, sækja styrki eða gefa pen­ing í þetta mál­efni,“ segir Hafdís Björg. „Ég elska þegar svona safn­anir eru í gangi að fólk er til í að leggja sitt af mörkum á þann hátt sem það hefur tök á. Mér finnst það lýsa svo vel per­sónu­leika fólks. Ég veit alveg að maður getur ekki hjálpað öllum, en við getum reynt.“

Á meðal þeirra sem hafa gefið sum­ar­gjafir er for­lagið Bóka­beitan, sem gaf barna­bækur að gjöf. „Við viljum alltaf styðja hvatn­ingu við lestur barna og ung­menna,“ segir Heiða Björk Þor­bergs­dóttir bóka­út­gef­andi og einn eig­enda.

„Mér finnst svo dýr­mætt að leyfa börnum að vera börn. Ég vil líka að fólk viti að það er alltaf ein­hver þarna úti sem er til í að rétta fram hjálp­ar­hönd! Og það getur verið ómet­an­legt að vita af því,“ segir Hafdís Björg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins