„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir sveitafélögin „skilin eftir á köldum klaka“

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ingar, segir sveit­ar­fé­lögin hafa gleymst í aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar.

Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vilja fram­lag upp á um 50 millj­arða úr rík­is­sjóði til sveit­ar­fé­laga á land­inu til að tryggja að þau geti haldið uppi þjón­ustu- og fram­kvæmda­stigi án þess að þurfa að hella sér í skuldir.

Þetta kemur í minn­is­blaði sem Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa sent
fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Morg­un­blaðið fjallar um inni­hald minn­is­blaðs­ins sem borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík og bæj­ar­stjórar í Kópavogi, Hafn­ar­firði, Garðabæ, Mos­fellsbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi, auk odd­vita Kjós­ar­hrepps skrifa undir.

Morg­un­blaðið hefur eftir Gunnari Ein­ars­syni, bæj­ar­stjóra Garða­bæjar, að COVID-19 far­ald­ur­inn muni hafa mikil áhrif á fjár­haf sveit­ar­fé­laga. Hann segir tekjur drag­ast saman á meðan kostn­aður eykst.

Þarf stórt skref til að aðstoða sveitarfélögin

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ingar, segir sveit­ar­fé­lögin vera skilin eftir á „köldum klaka“ í Facebook-færslu sinni þar sem hann tjáir sig um aðgerða­pakka vegna efna­hags­á­hrifa kór­óna­veirunnar sem rík­is­stjórnin kynnti síð­degis í gær.

„Í stuttu máli er verið að stíga ýmis nauð­syn­leg skref til að verja fyr­ir­tæki gegn tekju­falli.
En það eru að sama skapi ekki stigin nein mark­tæk skref til að verja heim­ilin gegn tekju­falli. Þá eru sveit­ar­fé­lögin að mestu leiti skilin eftir á köldum klaka,“ skrifar Logi um aðgerð­irnar sem rík­is­stjórnin kynnti í gær.

Hann segir rík­is­stjórn­ina ekki mega gleyma fólk­inu í land­inu.

„Til að vera sann­gjarn þá verð ég að segja að Það er mjög margt þarna ágætt og nauð­syn­legt,“ segir Logi spurður út í aðgerða­pakk­ann í sam­tali við Morg­un­út­varp Rásar 1 og 2.

Hann segir jákvætt að verið sé að hugsa um fyr­ir­tækin í land­inu en segir von­brigðin vera þau að það hafi gleymst að hugsa um heim­ilin og fólkið í land­inu. „Það er ekki verið að verja tekjur þeirra.“

„Ég vona að rík­is­stjórnin sé við útvarpið að hlusta.“

Hann bætir við að sveit­ar­fé­lögin, ein­ing­arnar sem sinna þjón­ustu við fólkið í land­inu, hafi einnig gleymst. Hann segir sveit­ar­fé­lögin vera „í myrkr­inu“ og það þurfi að stíga stór skref til að aðstoða þau.

Logi bendir á að kostn­aður sveit­ar­fé­lag­anna hækki mikið en fái á saman tíma á sig kröfu til að lækka öll gjöld. Hann segir það geta reynst dýr­keypt að spara þegar kemur að rekstri sveit­ar­fé­laga og að sá sparn­að­ur­inn gæti bitnað á leik­skóla­starfi og annarri grunn­þjón­ustu.

„Ég vona að rík­is­stjórnin sé við útvarpið að hlusta,“  sagði Logi og hvatti rík­is­stjórn­ina til að auka þjón­ustu við sveit­ar­fé­lögin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónaveira

Innlentkórónaveira

Biðst afsök­unar en neitar að afhenda kvitt­anir

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, iðn­aðar- nýsköp­unar- og ferða­mála­ráð­herra, neitar Mannlíf um að fá kvitt­anir fyrir þeirri þjón­ustu og þeim veit­ingum sem hún þáði á Covid-djammi vin­kvenna síð­ast­lið­inn laug­ar­dag. Hitt­ing­ur­inn var kost­aður af Icelandair en ráð­herr­ann full­yrðir að hafa borgað fyrir sig sjálf. Til að stað­festa þau orð óskaði Mannlíf eftir kvitt­unum þess efnis en Þórdís Kolbrún vill ekki afhenda þær...
Þórólfur og Víðir sagðir hafi misst allan trúverðugleika fyrir Þórdísi: „Sorglegt“
Innlentkórónaveira

Þórólfur og Víðir sagðir hafi misst allan trú­verð­ug­leika fyrir Þórdísi: „Sorglegt“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son segir að Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hafi misst allt boð­vald meðal þjóð­ar­innar eftir að þeir komu Þórdísi Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ferða­mála­ráð­herra til varnar í gær. Allt í einu er tveggja metra reglan orðin af við­miði þegar ráð­herra á í sök. Þórdís fór út á lífið með vin­konum sínum um helg­ina og af myndum af...
Ráðherra segir umræðu misskilning: „Myndin var óþarfi og við hefðum ekki átt að taka hana“
Innlentkórónaveira

Ráðherra segir umræðu mis­skiln­ing: „Myndin var óþarfi og við hefðum ekki átt að taka hana“

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, segir það hafa verið mis­tök af hennar hálfu og vin­kvenna sinna að hafa stillt sér upp fyrir hóp­mynd á umdeildum vin­konu­hitt­ingi um helg­ina. Að öðru leyti hafi hún engar reglur brotið þó svo það hefði verið ein­fald­ara að mati ráð­herr­ans hefði hún sleppt því að mæta. Þórdís Kolbrún fékk illa á bauk­inn...
Viðbrögð Þórdísar sögð verri en brotið – Tali eins og „hún eigi það skilið að brjóta samkomubannið“
Innlentkórónaveira

Viðbrögð Þórdísar sögð verri en brotið – Tali eins og „hún eigi það skilið að brjóta sam­komu­bannið“

Hegðun Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Íslands, um helg­ina hefur vakið hörð við­brögð meðal margra Íslend­inga. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, hefur sjálfur sagt að hegðun hennar hafi verið „óheppi­leg“. Þórdís fór út á lífið með vin­konum sínum og af myndum af dæma þá var tveggja metra reglan þeim ekki ofar­lega í huga. Gunnar Smári Egilsson, fjöl­miðla­maður og sós­í­alisti,...
Þórdís fær illa á baukinn fyrir COVID-djammið
Innlentkórónaveira

Þórdís fær illa á bauk­inn fyrir COVID-djam­mið

COVID-djamm Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Íslands, hefur vakið hörð við­brögð víða á sam­fé­lags­miðlum. Frétta­blaðið greindi fyrst frá því að hún hafi varið laug­ar­deg­inum með vin­konu­hópi sínum og kíkti út á lífið. Hún birti sjálf myndir af þessu á sam­fé­lags­miðlum en óhætt er að segja að þar hafi tveggja metra reglan verið möl­brotin. Hún bar fyrir sig...
Fólk að veikjast mikið á níunda til þrettánda degi
Innlentkórónaveira

Fólk að veikj­ast mikið á níunda til þrett­ánda degi

Staðan er almennt góð á COVID-19-göngu­deild Land­spít­al­ans að sögn Bryn­dísar Sig­urð­ar­dóttir, smit­sjúk­dóma­læknis á Land­spít­al­anum. Enginn sjúk­lingur er inniliggj­andi núna vegna kór­óna­veirunnar. Bryndís ræddi stöð­una í morg­un­út­varpi Bylgj­unnar í morgun. Hún tók fram að starfs­fólk COVID-19 göngu­deildar væri nú í bið­stöðu vegna hóp­sýk­inga sem hafa komið upp hér á landi und­an­farið þar sem reynslan sýnir að fólk veik­ist gjarnan í seinni...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins