„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Biskup hrekur séra Skírni í annað sinn úr starfi

Biskup hrekur séra Skírni í annað sinn úr starfi

Agnes Sig­urð­ar­dóttir biskup hefur rekið séra Skírni Garð­ars­son úr emb­ætti. Það gerir hún sökum þess að prest­ur­inn braut trúnað í starf sínu og lýkur hann störfum sam­stundis fyrir íslensku þjóð­kirkj­una. Þetta er í annað sinn sem bisk­upinn hrekur Skírni úr starfi.

Skírnir missti áður emb­ætti sitt við Lága­fells­kirkju en þá var hann einnig rek­inn vegna brots á trún­að­ar­skyldu. Nú hverfur hann frá sem hér­aðs­prestur á Suð­ur­landi. Pétur Georg Markan, sam­skipta­stjóri Þjóð­kirkj­unnar, stað­festir brott­rekst­ur­inn. „Prestar gegna afar sér­stöku hlut­verki þegar kemur að trún­aði gagn­vart skjól­stæð­ingum sínum. Rjúfi prestur þessa trún­að­ar­skyldu gagn­vart ein­hverjum skjól­stæð­ingi sínum er það alvar­legt mál sem varðar við starfs – og siða­reglur presta,“ segir Pétur.

Bak­vörð­ur­inn rétt­inda­lausi, Anna Aurora Ósk­ars­dóttir, hefur reynst séra Skírni Garð­ars­syni skeinu­hætt. Þegar Skírnir þjón­aði sem prestur við Lága­fells­kirkju í Mos­fellsbæ sótti Anna um styrk úr neyð­ar­sjóði kirkj­unnar. Prest­ur­inn grun­aði hana um græsku og að hafa ekki þörf fyrir hjálp. Hann hafði sam­band við félags­mála­stjóra Mos­fells­bæjar til að spyrj­ast fyrir um kon­una. Þau sam­skipti urðu til þess að Anna kærði séra Skírni og Mos­fellsbæ til Per­sónu­verndar fyrir að rjúfa við sig trúnað. Málið varð til þess að Agnes Sig­urð­ar­dóttir biskup hrakti hann úr emb­ætti í sókn­inni og trún­að­ar­brot prests­ins gagn­vart Önnu hafa nú aftur orðið til þess að hann hrökkl­ast úr starfi.

Yfir­lýs­ing Þjóð­kirkj­unnar um brott­rekst­ur­inn:

Prestar gegna afar sér­stöku hlut­verki þegar kemur að trún­aði gagn­vart skjól­stæð­ingum sínum. Það er eðli starfs­ins að vera hlust­andi þegar hugur, sál og hjarta þurfa að tala um sín innstu mál. Erf­ið­leikar og gleði­stundir – sorg og sigrar eru allt kaflar í lífi manns­ins. Prest­ur­inn hlustar, leið­beinir, sam­gleðst og aðstoðar og gengur veg­inn fram með skjól­stæð­ingi sínum. Í ljósi þessa er trún­að­ar­skylda presta horn­steinn í sam­bandi þeirra við sókn­ar­börn og aðra skjól­stæð­inga. Rjúfi prestur þessa trún­að­ar­skyldu gagn­vart ein­hverjum skjól­stæð­ingi sínum er það alvar­legt mál sem varðar við starfs – og siða­reglur presta. Hafa ber í huga að hverjum presti ber að til­kynna öll sak­næm mál er varða börn og ung­menni til þar til bærra yfir­valda. Að öllu öðru leiti geymir prestur líf­sögu manna hjá sjálfum sér, virðir trún­að­ar­skyldu sína og köllun. Sr. Skírnir Garð­ars­son hefur starfað sem hér­aðs­prestur frá árinu 2016. Í við­tali við Vísi.is þann 11. apríl greindi Skírnir frá við­kvæmum mál­efnum sókn­ar­barns, frá þeim tíma sem hann starf­aði sem prestur við Lága­fells­sókn. Með við­tal­inu rauf Skírnir trún­að­ar­skyldu presta og braut starfs – og siða­reglur. Sr. Skírnir Garð­ar­son hefur lokið þjón­ustu sinni fyrir íslensku þjóð­kirkj­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins