„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ljót og óskiljanleg framkoma

Ljót og óskiljanleg framkoma

Þremur mán­uðum eftir að snjó­flóðin féllu á Flateyri í vetur hefur lítið gerst í þeim efnum að bæta tjónið. Reiði er meðal íbúa vegna slæ­legra vinnu­bragða þeirra er að mál­inu koma.

Hús sem talið var standa á öruggum stað í skjóli varn­ar­garða varð fyrir öðru flóð­inu. Björg­un­ar­sveita­fólk gróf þar stúlku upp úr flóð­inu og þótti mildi að ekki fór verr. Auk þessa ollu flóðin umtals­verðum skemmdum á munum, stórum sem smáum.

Eyði­legg­ingin varð mikil. Fyrir utan að bátar þorps­búa urðu allir fyrir tjóni eyðilögð­ust bílar, hús og margt fleira. Ljóst er af sam­tölum við fólk á Flateyri að eyði­legg­ingin er mun meiri en ráða hafði mátt af fréttum eftir að flóðin féllu.

Skiln­ingur þeirra Flat­eyr­inga sem Mannlíf hefur rætt við er að ráð­herrar, þing­menn og yfir­menn Ísa­fjarð­ar­bæjar hafi verið sam­mála um að allt tjón yrði bætt og ráð­ist í að tryggja betur öryggi íbúa þorps­ins vegna þeirrar nátt­úru­vár sem af snjó­flóðum stafar.

Ljót og óskiljanleg framkoma

Íbúum er ekki síður brugðið með eft­ir­leik flóð­anna en þeim varð þegar flóðin féllu í vetur. Einn þeirra sem vel þekkir til er Úlfar Önund­ar­son sem er með vinnu­véla­út­gerð og báta­safn á Flateyri. Hann segir þetta mikla sorg­ar­sögu.

„Það er sama hversu mikið menn reyna að fegra aðgerða­leysið og tala sig frá hlut­unum, þetta mun alltaf verða sorg­ar­saga. Eina bjarta ljósið í þessu var björgun Ölmu Sóleyjar sem fór undir snjó­flóð í her­berg­inu sínu á öruggu svæði að baki snjó­flóða­varn­ar­garði. Björgun hennar gladdi Flat­eyr­inga mikið og er enn að gefa þeim styrk í sér­kenni­legri bar­áttu við pen­inga­öfl sem reyna allt hvað hægt er að bregða fæti fyrir allt og alla hérna.

Fólk sem varð fyrir tjóni virð­ist allt vera meira og minna ótryggt. Þetta er alveg eins og eftir mann­skæða flóðið 1995, nema nú er eng­inn Samhugur í verki til að greiða það sem trygg­ing­arnar neita að borga,“ segir Úlfar.

Fjallað er um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Hann segir að sumir íbú­anna hafi gef­ist upp og sam­þykkt afar­kosti trygg­inga­fé­laga.

„Mér sýn­ist að þar séu stutt­buxna­drengir hjá trygg­inga­fé­lög­unum sem njóta þess að hafa pen­inga af fólki eftir þessar hörm­ungar. Það merki­lega er að trygg­ing­arnar fá allt tjón úr svona ham­förum end­ur­greitt frá hinu opin­bera, að ég best veit. Þess vegna er þessi ljóta fram­koma alveg óskilj­an­leg. Ekki má heldur gleyma því að fólk borg­aði af fullum trygg­ingum í sam­ræmi við mats­verð sem nú er allt í einu ekki inni í mynd­inni. Þegar jarð­skjálft­arnir riðu yfir Suð­ur­land var lögum breytt aft­ur­virkt þannig að fólk sem varð fyrir eigna­tjóni fékk fullar bætur. Það hlýtur að vera hægt að gera það líka fyrir okkur hérna. Það varð svaka­legt tjón í þessum ham­förum í vetur,“ segir Úlfar.

Hann segir að yfir 20 aðilar hafi tapað eignum við snjó­flóðin og ekk­ert af því fáist bætt með sann­gjörnum hætti.

„Það svartasta í þessu er þó að varn­ar­garð­arnir sem fólk treysti á, og taldi sig öruggt með, skuli ekki reyn­ast trausts­ins verðir.“

Úlfar segir að héðan í frá muni fólk ekki finna öryggi á heim­ilum sínum á vetrum. Þá sé ekk­ert að ger­ast annað en hálf­kák.

„Svo ákvað rík­is­stjórnin nú í vik­unni að láta and­virði eins Range Rover jeppa renna til ein­hverra óljósra verk­efna í þorp­inu. Þetta eru kannski ekki nein von­brigði, kannski trúði aldrei neinn því sem sagt var. Reynslan kennir fólki hér eins og ann­ars staðar,“ segir Úlfar.

Lestu úttekt­ina í heild sinni í Mannlíf.

Texti / Guð­mundur Sig­urðs­son
Myndir / Guð­mundur Sig­urðs­son og Eyþór Jóvins­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins