„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landsmóti hestamanna aflýst

Landsmóti hestamanna aflýst
Sumir bændur eru með hesta – Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint.

Lands­móti hesta­manna, sem átti að fram 6. – 12. júli á Hellu, hefur verið aflýst. Næsta Landsmót verður því sum­arið 2022 á Hellu.

Lands­mótið fer fram annað hvert ár á móti Heims­meist­ara­móti íslenska hests­ins, ekki var því hægt að halda Lands­mótið að ári, því þá fer HM fram í Danmörku,

Lands­mótið verður því næst sum­arið 2022 á Hellu, eins og til stóð í sumar. Undir venju­legum kring­um­stæðum hefði það átt að fara fram í Kópavogi, en verður þar sum­arið 2024.

Þeir sem hafa keypt miða á mótið í sumar geta valið um þrjár leiðir:
a) End­ur­greiðslu.
b) Að láta mið­ann gilda á mótið 2022.
c) Að láta and­virði mið­ans renna til styrktar móts­ins.

Yfir­lýs­ing Lands­móts hesta­manna:

„Sú ákvörðun hefur verið tekin af Lands­sam­bandi hesta­manna­fé­laga, Félagi hrossa­bænda og Rangár­bökkum, þjóða­leik­vangi íslenska hests­ins ehf. að fresta Lands­móti hesta­manna sem fara átti fram á Hellu dag­ana 6. – 11. júlí. Í sam­ráði við Hesta­manna­fé­lagið Sprett mun mótið fara fram á Hellu   sum­arið 2022. Af þeim sökum verður Landsmót hesta­manna haldið í Kópavogi árið 2024 í stað 2022 eins og samn­ingar gerðu ráð fyrir.

Þeim aðilum sem sótt höfðu um að halda lands­mótið 2024 hefur verið gefin kostur á að færa þær umsóknir yfir á lands­mótið árið 2026.

Sú heilsu­far­svá sem stafar af COVID-19 far­aldr­inum á heims­vísu er ekki liðin hjá og mun hafa ýmsar tak­mark­anir í för með sér á næstu mán­uðum. Í máli sótt­varna­læknis, Þórólfs Guðna­sonar hefur komið fram að fjölda­sam­komur skuli tak­mark­aðar við 2000 manns a.m.k. út ágúst­mánuð.  Landsmót hesta­manna er því of fjöl­menn sam­koma til að hægt sé að halda hana í sumar.

Þeir sem keypt hafa miða á við­burð­inn munu fá tölvu­póst frá tix miða­sölu ásamt því að allar upp­lýs­ingar eru aðgengi­legar á www.landsmot.is. Miða­hafar geta valið um þrennt a) fá end­ur­greitt b) láta mið­ann gilda fram til 2022 eða c) styrkja við­burð­inn. Allar bók­anir á tjald­svæðum verða end­ur­greiddar. Fyr­ir­spurnir varð­andi við­burð­inn skal senda á [email protected] en varð­andi miða­sölu á [email protected].

Öll él styttir upp um síðir. Máls­að­ilar senda hesta­mönnum bar­áttu­kveðjur og hvetja til þess að allir fari að útgefnum reglum og til­mælum Almanna­varna rík­is­lög­reglu­stjóra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins