„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stríðið á sjúkrahúsinu

Stríðið á sjúkrahúsinu
Mynd/Aldís Páls

Ósætti hefur ríkt innan veggja SÁÁ um nokk­urt skeið. Spjótin bein­ast að Arnþóri Jónssyni, for­manni SÁÁ, og Þórarni Tyrf­ings­syni, fyrr­ver­andi yfir­læknis og stjórn­anda á Vogi, og eru þeir sak­aðir um ein­elti í garð æðstu stjórn­enda á Vogi. Þrátt fyrir að Þórarinn hafi hætt klínísku starfi í maí 2017 og ekki unnið við með­ferð­ina á stofn­un­inni síðan þá gegnir hann enn hlut­verki innan sam­tak­anna, jafn­vel of stóru að mati ýmissa heim­ilda­manna Mannlífs og er hann sak­aður um að hafa að tjald­ar­baki unnið gegn núver­andi yfir­mönnum heil­brigð­is­sviðs­ins. Þá er Arnþór for­maður sagður ganga erinda yfir­lækn­is­ins fyrr­ver­andi innan fram­kvæmda­stjórnar SÁÁ.

Teymi yfirkvenna

Val­gerður Á. Rún­ars­dóttir tók við starfi fram­kvæmda­stjóra lækn­inga á Vogi af Þórarni sum­arið 2017. Þétt við bak hennar hafa und­an­farin ár starfað Ingunn Hans­dóttir yfir­sál­fræð­ingur og Þóra Björns­dóttir hjúkr­un­ar­for­stjóri. Miðað við stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar yfir­gnæf­andi meiri­hluta starfs­fólks SÁÁ virð­ist stjórn þess­ara kvenna, undir for­ystu Val­gerðar, haft góðan með­byr. En frá því að Val­gerður tók við hefur gætt sívax­andi erf­ið­leika í sam­skiptum milli hennar og Arnþórs, stjórn­ar­for­manns sam­tak­anna. Svo mik­illa erf­ið­leika að eftir því hefur verið tekið innan fram­kvæmda­stjórn­ar­innar og á haust­mán­uðum var hjá henni óskað eftir óháðri úttekt á sam­skipt­unum æðstu manna og stjórnar. Af þeirri úttekt varð þó aldrei og herma heim­ildir Mannlífs að Arnþór hafi hafnað beiðn­inni. Í kjöl­farið lýstu ýmsir stjórn­ar­með­limir yfir stuðn­ingi við stjórn­enda­teymi Vogs en fengu í kjöl­farið bréf frá Arnþóri for­manni þess efnis að nefnd­ar­menn hefðu ekki heim­ild til að taka afstöðu gegn for­manni.

Langur aðdrag­andi hefur því verið að því ófremd­ar­á­standi sem nú virð­ist ríkja innan SÁÁ en það virð­ist hafa sprungið með hvelli við upp­sagnir starfs­manna í síð­ustu viku.

Kornið sem fyllti mælinn

Langur aðdrag­andi hefur því verið að því ófremd­ar­á­standi sem nú virð­ist ríkja innan SÁÁ en það virð­ist hafa sprungið með hvelli við upp­sagnir starfs­manna í síð­ustu viku. Þá sagði Arnþór for­maður upp nokkrum starfs­mönnum innan Vogs og gaf fyrir því þær ástæður að spara þyrfti pen­inga sam­tak­anna þar sem fyrir liggi að fjár­öfl­un­ar­leiðir munu bresta vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Val­gerður blæs hins vegar á þær skýr­ingar og segir ólíð­andi að stjórn félaga­sam­tak­anna sé að skipta sér af starfs­manna­málum og fag­legum ákvörð­unum hvað fíkni­með­ferð­ina varðar á Vogi. Undir það hafa ýmis fag­sam­tök sér­fræð­inga tekið og fram hafa komið opin­ber­lega þrjár van­trausts­yf­ir­lýs­ingar á fram­kvæmda­stjórn SÁÁ vegna máls­ins og úr stjórn­inni hafa gengið þrír full­trúar nú þegar. Van­traust­s­til­lög­unum var hins vegar öllum vísað frá á aðal­stjórn­ar­fundi sam­tak­anna um liðna helgi þar sem Þórarinn, fyrr­ver­andi yfir­læknir, hélt eldræðu mikla.

Sinnir enn verkefnum

Þórarinn gegnir enn hlut­verki innan SÁÁ eftir að hafa gert sam­komu­lag þess efnis við Arnþór for­mann og fram­kvæmda­stjórn­ina. Að við­halda gagna­grunni og sjúkra­skrám Vogs ann­ars vegar og hins vegar að veita vímu­efna­ráð­gjöfum kennslu. Dóttir hans Hildur starfar sem læknir á Vogi og sonur hans, Björn Logi, situr í fram­kvæmda­stjórn sam­tak­anna ásamt því að nánir sam­starfs­menn hans og vinir sinna lyk­il­hlut­verkum, til dæmis Hörður Svav­ars­son og Theódór S. Hall­dórs­son sem nýverið tóku sæti í fram­kvæmda­stjórn­inni í stað þeirra sem gengu úr henni í kjöl­far upp­sagn­anna um dag­inn. Það er raunar nokkuð eðli­legt að áhrifa Þórarins gæti enn í starf­semi sam­tak­anna þar sem hann stýrði starf­inu við góðan orðstír lengi. Nú er hann hins vegar sak­aður um að vilja áfram stýra að tjald­ar­baki, bæði hluta félags­starfs­ins sem og hinum fag­lega hluta rekst­urs með­ferð­ar­starfs­ins.

Val­ger­dur Rún­ars­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Dropinn sem fyllti mælinn

„Kannski átti stjórnin ekki von á því að ég myndi stíga niður fæti. Kannski er þetta gert í þeirri von að ég segði upp. Afleið­ing­arnar af þessu hafa verið rosa­lega miklar og ég finn alls staðar skiln­ing á þeim sjón­ar­miðum sem ég er að setja fram,“ segir Val­gerður Á. Rún­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga hjá SÁÁ.

Þau sjón­ar­mið segir hún fyrst og fremst snúa að því að aðskilja þurfi stjórnun félaga­sam­tak­anna og stjórnun heil­brigð­is­stofn­anna sem sam­tök­unum tengj­ast.

„Ég vona að stjórn sam­tak­anna horf­ist í augu við það og beri gæfu til að leysa úr þess­ari alvar­legu stöðu. Það hlýtur bara að ger­ast. Fyrir mér er með­ferðin aðal­at­riðið og hverjir taka ákvarð­anir um fag­legan rekstur á sjúkra­stofn­unum. Þær ákvarð­anir eiga ekki að vera í höndum stjórnar félaga­sam­taka.“

Rangt mat

Val­gerður telur að stjórnin meti það rangt að fjár­stuðn­ingur fáist ekki frá yfir­völdum eftir að fjár­öfl­un­ar­leiðir sam­tak­anna brugð­ust vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Hún við­ur­kennir að hún hafi um nokk­urt skeið glímt við mót­byr frá ákveðnum aðilum tengdum SÁÁ.

„Auðvitað hefur stjórnin gefið þær skýr­ingar að þetta snú­ist um pen­inga en ég held að það sé bara ekki rétt mat hjá henni. Starf­semin þarna er svo miklu meira virði en svo að stjórn­völd vilji ekki aðstoða og passa upp á að þetta fari allt saman vel,“ segir Val­gerður.

„Þetta er til­finn­inga­ríkt allt saman. Það eru margir sem eiga sam­tök­unum líf sitt að launa og ég er ein af þeim.“

„Ég er dálítið for­vitin að kom­ast að því hvaða hópur það er nákvæm­lega sem styður stjórn­ar­for­mann­inn á þess­ari veg­ferð. Þetta sem gerð­ist núna nýverið var drop­inn sem fyllti mæl­inn. Þetta er til­finn­inga­ríkt allt saman. Það eru margir sem eiga sam­tök­unum líf sitt að launa og ég er ein af þeim. En það má ekki blanda til­finn­ingum inn í þetta.“

Hættir að öllu óbreyttu

Val­gerður er hörð á því að standa við upp­sögn sína verði hlut­verki fram­kvæmda­stjórnar SÁÁ og sér í lagi hlut­verki stjórn­ar­for­manns sam­tak­anna ekki aðskilið frá fag­legum rekstri sjúkra­stofn­anna. Hún telur eðli­legt að núver­andi for­maður og stjórn stígi til hliðar enda sé mörgum brugðið við hversu ein­kenni­lega hafi verið staðið að málum.

„Það virð­ist nokkuð skýrt hvernig stjórnin vill hafa hlut­ina og kannski getur hún bara haft þetta svona. Ég get ekki hugsað mér að vera í þessu umhverfi áfram. Stjórnin verður þá bara að gera þetta með öðru fólki og það kemur auð­vitað alltaf maður í manns stað,“ segir Val­gerður og leggur þunga áherslu á að með­ferð­ar­þjón­usta SÁÁ snú­ist ekki um hana sjálfa.

„Það eru ein­hverjir þar sem vilja stýra öllu því hvað ger­ist inni á gólf­inu.“

Hún hefur miklar áhyggjur af því að aðgerðir stjórn­ar­innar og umræðan sem af þeim skap­ast sverti hið góða starf sem unnið hefur verið undir merkjum sam­tak­anna. „Ég hef bara áhyggjur af með­ferð­inni, það þarf ann­ars konar stjórn yfir heil­brigð­is­rekstr­inum og hún verður að vera alveg laus við inn­grip fram­kvæmda­stjórnar félaga­sam­taka, m.a. um starfs­manna­mál. Ég hef áhyggjur af því að núver­andi stjórn sam­tak­anna geri sér ekki grein fyrir að þetta er ekki í lagi og ætli bara að láta þetta ganga eftir. Það eru ein­hverjir þar sem vilja stýra öllu því hvað ger­ist inni á gólf­inu.“

Ekki fórnarlamb

Helst af öllu segir Val­gerður auð­vitað vilja halda áfram starfi sínu hjá SÁÁ. Hún lítur ekki á sig sem fórn­ar­lamb og hefur ekki áhyggjur af sjálfri sér.

„Ég vil auð­vitað áfram leiða þetta starf, þetta er svo gríð­ar­lega mik­il­væg starf­semi sem má ekki verða fyrir þessu hnjaski sem gjörn­ingar fram­kvæmda­stjórn­ar­innar valda. Mér finnst svo glatað þegar þetta fer að snú­ast um ein­hverja ein­stak­linga. Ég þoli alls konar skít og hef synt fram hjá honum lengi. En ég er ekki póli­tíkus og kann ekki þennan leik. Kannski er þetta brölt bara kolólög­legt allt saman en ég hafði ekki hugsað mér að láta lög­fræð­inga skoða það, mér finnst það ekki spenn­andi kostur. Ég lít ekki á mig sem fórn­ar­lamb og hef engar áhyggjur af sjálfri mér.“

Arnþór Jónsson, for­maður SÁÁ. Mynd / Spessi fyrir SÁÁ

„Alls ekki þessi vondi kall“

„Ég er góði gæinn og alls ekki þessi vondi kall sem verið er að gefa í skyn,“ segir Arnþór Jónsson, for­maður SÁÁ, um þá umræðu sem að honum hefur beinst und­an­farið. Hann segir of tíma­frekt að fylgj­ast með umræð­unni og segir meira máli skipta að vinna að góðum verkum sam­tak­anna.

„Þetta er allt á mis­skiln­ingi byggt. Þetta eru mest sögur og spuni og umræðan heyr­ist mér vera ómak­leg og smán­ar­legt að verið sé að veit­ast að Þórarni Tyrf­ings­syni núna þegar á móti blæs. Nú eru það verkin sem þarf að vinna sem skipta máli og ég vil ekki vinna að mál­efnum SÁÁ í beinni útsend­ingu.“

Þórarinn Tyrf­ings­son, fyrr­ver­andi yfir­læknir og fram­kvæmda­stjóri Vogs. Mynd / Gunnar Þór Andr­és­son

Á enga sök á ástandinu: „Ég er bara gamall karl og því verður ekki breytt“

„Ég reyni að segja allt gott, það eru ekki góðir tímar,“ segir Þórarinn Tyrf­ings­son, fyrr­ver­andi yfir­læknir og fram­kvæmda­stjóri Vogs, þegar við­bragða hans var leitað um deil­urnar sem uppi eru innan SÁÁ. Þar vísar hann til útbreiðslu kór­ónu­veirunnar en hann er heldur ekki par hrif­inn af umræðu und­an­far­inna daga um starf­semi SÁÁ og því að vera dreg­inn inn í umræð­una þar sem hann hefur meðal ann­ars verið sak­aður um svo­kall­aðar hrút­skýr­ingar á stjórn­ar­fundum.

„Ég er bara gam­all karl og því verður ekki breytt. Ég fer ekki að fara í kyn­skipti­að­gerð orð­inn þetta gam­all og menn mega alveg kalla mig hrút. Ég skamm­ast mín ekk­ert fyrir það að vera karl­maður og ekki heldur fyrir það sem ég hef gert fyrir sam­tökin SÁÁ,“ segir Þórarinn.

Enginn leppur

Aðspurður seg­ist Þórarinn ekki vera sá áhrifa­maður sem haldið hefur verið fram í umræð­unni síðstu daga. Hann segir það ljóst að Arnþór stjórn­ar­for­manni sé ekki fjar­stýrt.

„Starf­semi SÁÁ stendur ekki og fellur með einum manni. Sú umræða er rugl og ég skil að hún komi upp þegar fólk verður hrætt eða óör­uggt. Kjöl­festa sam­tak­anna er 48 manna aðal­stjórn, það er eng­inn einn maður sem þarna ræður. Hlutverk stjórnar er að gæta hag­muna sam­tak­anna enda miklar eignir sem þau eiga og vernda alla þá þekk­ingu sem þarna má finna, meðal ann­ars hjá þeim sem þarna starfa og þeim sem eru þarna hættir,“ segir Þórarinn.

„Ég geri mér ekki grein fyrir því af hverju er verið að mála mig sem vonda kall­inn. Þarna hef ég unnið frá því ég varð til sem læknir og ég vissi ekki betur en að þarna væri allt í lukk­unnar vel­standi. Ég er ósköp venju­legur maður og treysti á það sjálfur að ég sé góð mann­eskja. Það verður ekki af stjórn­ar­for­mann­inum tekið að hann var kos­inn þarna inn og situr þar í fullu umboði aðal­stjórnar. Mér finnst verið að gera lítið úr fólki þegar gefið er í skyn að honum sé fjar­stýrt fram og til baka. Arnþór er ekki minn leppur, hann er sjálf­stæður maður með mikla reynslu úr líf­inu og í starfi.“

Hryggur yfir stöðunni

Aðspurður hafnar Þórarinn því alfarið að bak­við tjöldin beiti hann áhrifum sínum til að sverta starf núver­andi stjórn­enda Vogs. Hann gefur ekki mikið fyrir umræðu um að hann fari fram af karl­rembu á stjórn­ar­fundum. „Ég get ekki svarað þessu öðru­vísi en að ég hef ekk­ert verið þarna á þess­ari starf­stöð. Ég er kom­inn út úr þessu öllu og sit ekki í fram­kvæmda­stjórn. Ég er hryggur yfir því hvernig staðan er. Ég á enga sök á því og hef hvergi komið þarna nærri á nokkurn hátt enda ekki með neitt umboð til þess. Fólk verður bara að axla sína ábyrgð í þessu,“ segir Þórarinn og ítrekar að hjá SÁÁ séu tveir stjórn­endur að heil­brigð­is­stofn­unum sam­tak­anna.

„Fólk verður bara að axla sína ábyrgð í þessu“

„Það er ann­ars vegar fram­kvæmda­stjórn SÁÁ sem leggur til gríð­ar­legt fjár­magn og starfs­menn­irnir eru ekki full­trúar þess fjár­magns. Svo eru það yfir­menn og milli­stjórn­endur, þar er heldur eng­inn einn maður sem ber ábyrgð á öllu saman. Núna verður stjórn­skipu­lag sam­tak­anna, fram­kvæmda­stjórnin og starfs­fólkið, að takast á við þetta og leysa þetta.“

Ingunn Hans­dóttir, yfir­sál­fræð­ingur hjá SÁÁ, var nýlega sagt upp starfi.

Leitt að vera leiksoppur í refskák

„Ég hef það gott en mér var rosa­lega brugðið. Þessu átti ég alls ekki von á og mér finnst það rosa­lega leitt að vera leiksoppur í svona ref­skák,“ segir Ingunn Hans­dóttir, yfir­sál­fræð­ingur hjá SÁÁ, þegar hún er spurð um líðan sína eftir að hafa nýlega verið sagt upp starfi sínu. Hún seg­ist gíf­ur­lega ánægð með með­byr­inn síð­ustu daga og segir aug­ljóst að mjög margir vilji halda í sem bestu þjón­ustu fyrir fólk með fíkni­sjúk­dóma.

Kerfisvilla

Ingunn segir sál­fræð­inga því miður hafa átt stundum erfitt upp­dráttar innan heil­brigð­is­stofn­anna þar sem margar fag­stéttir koma saman. Sem betur fer séu við­horfin að breyt­ast. „Þetta kalla ég ein­fald­lega kerf­is­villu, að nýta ekki fag­þekk­ingu sál­fræð­inga í heil­brigð­is­þjón­ustu í miklu meiri mæli en gert er í dag. Við teljum okkur vera grunn­stoð í heil­brigð­is­kerf­inu á SÁÁ og sál­fræði­þjón­ustan hefur of lengi þurft að dúsa úti í horni,“ segir Ingunn og leggur áherslu á að það sé krafa sam­fé­lags­ins að heil­brigð­is­með­ferðir séu færðar í nútíma­legt horf með þver­fag­legum teymum.

„Við vorum á fleygi­ferð í því að breyta hlut­unum til enn betri vegar. Það er alltaf hægt að bæta og við höfum verið eins og ferskir vindar inn í þessa starf­semi. Mergur máls­ins er bara sá að fram­kvæmda­stjórn SÁÁ hefur verið að grípa fram fyrir hend­urnar á Valgerði, meðal ann­ars með ákvörðun sinni um hvaða stétt það er sem eigi að koma að með­ferð­inni. Það er vanda­málið og tog­steitan í hnot­skurn. Það er ekki hægt að taka ákvarð­anir með þessum hætti.“

„Mergur máls­ins er bara sá að fram­kvæmda­stjórn SÁÁ hefur verið að grípa fram fyrir hend­urnar á Valgerði“

Óttast breytingar

Aðspurð telur Ingunn deil­urnar nú snúa að því að hinir eldri ótt­ist breyt­ingar og það sem hún kallar ferska vinda. Hún bendir á að það hafi einmitt verið Þórarinn sem réði hana til starfa en fyrir ein­hverja hluta sakir hafi hann breytt um skoðun á leið­inni.

„Það er alltaf erfitt að stíga inn í breyt­ingar og fólk er oft tor­tryggið þegar gera á hluti með breyttum hætti. Það má segja að hinir eldri séu hræddir við ferska vinda. Þórarinn treysti mér fyrir þessu í upp­hafi en síðan hefur það verið alveg ljóst að honum hefur ekki fund­ist þetta vera leiðin í rétta átt. Hann hafði vænt­ingar um að hlut­irnir eða áherslur yrðu öðru­vísi,“ segir Ingunn og við­ur­kennir að hún hafi þurft að sæta ítrek­uðum aðfinnslum Þórarins und­an­farin miss­eri. Hún veltir fyrir sér hvort þessar deilur séu mögu­lega til­komnar vegna þess að karlar upp­lifi ógn af sterku kvennateymi stjórn­enda Vogs. „Ég held að það sé hluti af vanda­mál­inu. Það hefur alltaf verið unnið gott starf hjá SÁÁ en núna voru komnir nýir stjórn­endur sem hafa viljað þróa hluti áfram í góða átt með hags­muni fíkni­sjúk­linga að leið­ar­ljósi. Okkar heitasta ósk er að fá starfs­frið til þess.“

Úti í miðri á

Innan SÁÁ hefur verið boðið upp á þriggja ára starfs­nám vímu­efna­ráð­gjafa og því starfi hefur Ingunn stýrt. Hún segir námið nú í upp­námi ásamt sál­fræði­þjón­ustu til barna og aðstand­enda fíkni­sjúk­linga. „Það er nú fólk í miðju námi sem ekki veit hvað ger­ist næst og er statt úti í miðri á. Þarna höfum við sál­fræð­ing­arnir komið mikið að málum í námi og fræðslu,“ segir Ingunn sem von­ast til að fram­kvæmda­stjórn SÁÁ sjái að sér fljót­lega.

„Það er aug­ljós­lega verið að reyna koma höggi á Valgerði og mér finnst það ekki góð stjórnun að segja upp einum af yfir­mönnum fag­legrar með­ferðar á svona krísu­stundu. Ég skil að það vanti pen­inga en þetta er bara gert til að grafa undan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins