„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Enn á ný munu gammarnir fara á kreik og voma yfir eigum almennings og fyrirtækjum á vonarvöl“

„Enn á ný munu gammarnir fara á kreik og voma yfir eigum almennings og fyrirtækjum á vonarvöl“
Reynir Trausta­son, editor of Mannlíf.

„Á erf­ið­leika­tíma í sjáv­ar­út­vegi var farið þá leið að stofna tvo sjóði sem komu til hjálpar fyr­ir­tækjum. Annar sjóð­ur­inn, Atvinnu­trygg­ing­ar­sjóður, lán­aði líf­væn­legum fyr­ir­tækjum en hinn sjóð­ur­inn, Hluta­fjár­sjóður, lagði til hlutafé í fyr­ir­tæki sem voru á kafi í skuldum og á barmi gjald­þrots. Þannig varð stór­felld rík­i­s­væð­ing í sjáv­ar­út­vegi. Þessar lausnir voru góðar og gildar á erf­iðum tímum,“ segir Reynir Trausta­son í leið­ara sínum í Mannlífi.

Segir hann svo að þegar fyr­ir­tækin hófu að rétta úr kútnum þá hafi spill­ingin orðið ofan á. „Þá röð­uðu póli­tískir gæð­ingar sér á jöt­una og sumir eign­uð­ust fyr­ir­tæki eða hlut í fyr­ir­tækjum á útsölu. Hið sama er uppi á ten­ingnum núna en nú er það ferða­þjón­ustan. Fjölmörg fyr­ir­tæki eru að gef­ast upp. Sum eiga lífs­von en önnur mun deyja eða falla í eigu rík­is­ins. Þá þurfa menn að vanda sig og rjúfa tengslin á milli við­skipta og stjórn­mála. Einka­væð­ingin eftir rík­i­s­væð­ing­una verður að lúta lög­málum heið­ar­leika og gagn­sæis. Græðgi og heimska stjórn­mála­manna varð til þess að risa­vaxin og upp­blásin gróða­fyr­ir­tæki komust yfir eigur hinna fátæku.“

Eftirmálar Hrunsins

Reynir rifjar einnig upp spill­ing­una sem var í eft­ir­málum Hrunsins. „Þúsundir fjöl­skyldna voru sviptar heim­ilum sínum og send á Guð og gadd­inn. Úti fyrir vomuðu hræ­fugl­arnir. Græðgi og heimska stjórn­mála­manna varð til þess að risa­vaxin og upp­blásin gróða­fyr­ir­tæki komust yfir eigur hinna fátæku og for­smáðu. Gamm­arnir, sum­part með hjálp spilltra líf­eyr­is­sjóða, fengu að kaupa íbúðir sem teknar höfðu verið af fólki sem burð­að­ist með ólög­leg geng­is­tryggð lán,“ segir Reynir. „Við þekkjum svo eft­ir­leik­inn. Burgeis­arnir lögð­ust í hóg­lífi fyrir arð­inn af eigum hinna fátæku. Oflát­ungs­hátt­ur­inn varð yfir­þyrm­andi. Hinir nýríku sönk­uðu að sér lista­verkum á vinnu­stöðum sínum og skál­uðu í kampa­víni á meðan almenn­ingur lifði skort. Vinir og vanda­menn fengu að njóta mol­anna af gnægt­ar­borði fast­eigna­kóng­anna. Sagan um Bjart í Sum­ar­húsum mynd­gerð­ist um, allt land. Leigu­liðar þjáð­ust undir oki nýríkra leigu­sala. Allt í boði stjórn­mála­manna sem ýmist glímdu við skort á viti eða höfðu hag af því að færa eignir frá hinum snauðu yfir til þeirra ríku.“

Hvað gerist eftir COVID-19?

Ljóst er að næstu miss­eri munu mörg fyr­ir­tæki þurfa á hjálp að halda til að lifa krepp­una. „Fjár­mála­ráð­herra hefur boðað inn­grip og aðstoð við fyr­ir­tæki í vanda. Þetta mun ger­ast með tvennum hætti. Fyr­ir­tæki fá rekstr­ar­lán með því að sleppa við greiðslu opin­berra gjalda. Önnur fyr­ir­tæki fá nið­ur­greitt vinnu­afl með því að fólk fer í hluta­störf. Þriðji hóp­ur­inn verður yfir­tek­inn af rík­inu,“ segir Reynir, og telur að gamm­arnir muni aftur láta á sér kræla.

„Enn á ný munu gamm­arnir fara á kreik og voma yfir eigum almenn­ings og fyr­ir­tækjum á von­ar­völ. Þá er áríð­andi að skyn­samir, vel­mein­andi stjórn­mála­menn gæti þess vand­lega að flokks­gæð­ingum verði ekki umb­unað á kostnað heið­ar­legra borg­ara. Spill­ingin er fylgi­fiskur mann­kyns­ins og mun alltaf verða til staðar. En verk­efnið er að halda henni niðri eins og kostur er. Umfram allt má ekki níð­ast á lít­il­mögnum í krafti póli­tískra áhrifa og gráð­ugra ein­stak­linga. Við skulum láta eft­ir­leik Hrunsins okkur að kenn­ingu verða og gæta þess að ill­gresið leggi ekki undir sig sam­fé­lagið með til­heyr­andi harm­leikjum. Næstu mán­uð­ina er mik­il­vægt að standa vakt­ina og tryggja sem flestum skjól gegn gömmum og nöprum vindum. Látum upp­ris­una eftir kreppu veirunnar markast af rétt­sýni, samúð og heið­ar­leika. Mennskan á að verða í önd­vegi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankar

Bendir á ofsagróða stóru bankanna: „Þetta er orðið verulega ógeðfellt og ógeðslegt“
Innlentbankar

Bendir á ofsa­gróða stóru bank­anna: „Þetta er orðið veru­lega ógeð­fellt og ógeðs­legt“

Björn Birg­is­son segir gróða stóru bank­anna vera á kostnað heim­ila lands­ins. Sam­fé­lags­rýn­ir­inn Björn Birg­is­son skrif­aði Facebook-færslu í gær sem vakið hefur athygli en þar talar hann um „okur­vexti“ bank­anna sem séu að „kné­setja heim­ilin“. Færslan byrj­aði á eft­ir­far­andi hátt: „Okur­vextir að kné­setja heim­ilin, en skila stóru bönkunum sífellt meiri ofsa­gróða. Stóru bank­arnir hafa grætt sem nemur 242 þús­undum á hvern...
Ragnar skýtur fast á bankana: „Þetta er allt að koma segir fjármálaráðherra!!“
Innlent

Ragnar skýtur fast á bank­ana: „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!!“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son skýtur föstum skotum á fjár­mála­ráð­herra og bank­ana í ljósi vaxta­hækk­ana Arion banka. Verka­lýðs­for­ing­inn Ragnar Þór Ing­ólfs­son er ekki ánægður með Arion banka frekar en margir aðrir eftir að bank­inn til­kynnti um 15 pró­sent vaxta­hækkun. „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!! Bank­arnir eru í óða önn að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins, í að ná niður...
Hæðist miskunarlaust að krónunni, Alþingi og Ásgeiri: „Krónan okkar getur flotið í kampavínsglasi“
Innlent

Hæðist miskun­ar­laust að krón­unni, Alþingi og Ásgeiri: „Krónan okkar getur flotið í kampa­víns­glasi“

Ólafur Haukur Sím­on­ar­son dregur íslensku krón­una, alþing­is­menn og Seðla­banka­stjór­ann sundur og saman í háði í færslu á Facebook. Um algjört rot­högg er að ræða. Leik­rita­skáldið og rit­höf­und­ur­inn Ólafur Haukur Sím­on­ar­son skrif­aði magn­aða færslu á Facebook í gær, sem vakið hefur verð­skuld­aða athugli. Í færsl­unni hæð­ist hann miskun­ar­laust að íslensku krón­unni og um leið þeim sem halda uppi vörnum fyrir henni....
Breki segir bankana ekki þurfa að hækka vexti í ljósi ofurhagnaðar: „Aðeins að róa sig, krakkar!“
Innlentbankar

Breki segir bank­ana ekki þurfa að hækka vexti í ljósi ofur­hagn­aðar: „Aðeins að róa sig, krakkar!“

„Bank­arnir munu vænt­an­lega ekki vera lengi að koma þessu út í breyti­legu vext­ina sína, sögu­lega séð. Ein­hverra hluta vegna hafa þeir verið miklu treg­ari þegar vextir hafa verið að lækka, þá tekur þetta marga mán­uði. Svo eru þeir mjög fljótir alltaf þegar vextir hækka að koma því út í verð­lagið,“ segir Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, í sam­tali við Mannlíf. 150.000...
Lilja ávítar bankana: Ber að létta undir með heimilum ef þeir vilja ekki eiga von á bankaskatti
Innlentbankar

Lilja ávítar bank­ana: Ber að létta undir með heim­ilum ef þeir vilja ekki eiga von á banka­skatti

Lilja Alfreðs­dóttir, við­skipta­ráð­herra, segir að bönk­unum beri að létta undir með heim­ilum lands­ins með því að greiða niður vexti. Þetta rök­styður hún með því að bank­arnir séu að skila miklum hagn­aði. „Bank­an­ir eru að skila of­ur­hagn­aði og hagn­aður þeirra verður meiri í kjöl­far stýri­vaxta­hækk­ana Seðla­banka Íslands. Ég tel að það eigi að nota þenn­an of­ur­hagnað til að greiða niður vexti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins