„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dropinn sem fyllti mælinn

Dropinn sem fyllti mælinn
Val­ger­dur Rún­ars­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Ósætti hefur ríkt innan veggja SÁÁ um nokk­urt skeið. Spjótin bein­ast að Arnþóri Jónssyni, for­manni SÁÁ, og Þórarni Tyrf­ings­syni, fyrr­ver­andi yfir­lækni og stjórn­anda á Vogi, og eru þeir sak­aðir um ein­elti í garð æðstu stjórn­enda á Vogi. Þrátt fyrir að Þórarinn hafi hætt klínísku starfi í maí 2017 og ekki unnið við með­ferð­ina á stofn­un­inni síðan þá gegnir hann enn hlut­verki innan sam­tak­anna, jafn­vel of stóru að mati ýmissa heim­ilda­manna Mannlífs og er hann sak­aður um að hafa að tjaldabaki unnið gegn núver­andi yfir­mönnum heil­brigð­is­sviðs­ins. Þá er Arnþór for­maður sagður ganga erinda yfir­lækn­is­ins fyrr­ver­andi innan fram­kvæmda­stjórnar SÁÁ.

„Kannski átti stjórnin ekki von á því að ég myndi stíga niður fæti. Kannski er þetta gert í þeirri von að ég segði upp. Afleið­ing­arnar af þessu hafa verið rosa­lega miklar og ég finn alls staðar skiln­ing á þeim sjón­ar­miðum sem ég er að setja fram,“ segir Val­gerður Á. Rún­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga hjá SÁÁ.

Þau sjón­ar­mið segir hún fyrst og fremst snúa að því að aðskilja þurfi stjórnun félaga­sam­tak­anna og stjórnun heil­brigð­is­stofn­anna sem sam­tök­unum tengj­ast.

„Ég vona að stjórn sam­tak­anna horf­ist í augu við það og beri gæfu til að leysa úr þess­ari alvar­legu stöðu. Það hlýtur bara að ger­ast. Fyrir mér er með­ferðin aðal­at­riðið og hverjir taka ákvarð­anir um fag­legan rekstur á sjúkra­stofn­unum. Þær ákvarð­anir eiga ekki að vera í höndum stjórnar félaga­sam­taka.“

Rangt mat

Val­gerður telur að stjórnin meti það rangt að fjár­stuðn­ingur fáist ekki frá yfir­völdum eftir að fjár­öfl­un­ar­leiðir sam­tak­anna brugð­ust vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Hún við­ur­kennir að hún hafi um nokk­urt skeið glímt við mót­byr frá ákveðnum aðilum tengdum SÁÁ.

„Auðvitað hefur stjórnin gefið þær skýr­ingar að þetta snú­ist um pen­inga en ég held að það sé bara ekki rétt mat hjá henni. Starf­semin þarna er svo miklu meira virði en svo að stjórn­völd vilji ekki aðstoða og passa upp á að þetta fari allt saman vel,“ segir Val­gerður.

„Þetta er til­finn­inga­ríkt allt saman. Það eru margir sem eiga sam­tök­unum líf sitt að launa og ég er ein af þeim.“

„Ég er dálítið for­vitin að kom­ast að því hvaða hópur það er nákvæm­lega sem styður stjórn­ar­for­mann­inn á þess­ari veg­ferð. Þetta sem gerð­ist núna nýverið var drop­inn sem fyllti mæl­inn. Þetta er til­finn­inga­ríkt allt saman. Það eru margir sem eiga sam­tök­unum líf sitt að launa og ég er ein af þeim. En það má ekki blanda til­finn­ingum inn í þetta.“

Hættir að öllu óbreyttu

Val­gerður er hörð á því að standa við upp­sögn sína verði hlut­verki fram­kvæmda­stjórnar SÁÁ og sér í lagi hlut­verki stjórn­ar­for­manns sam­tak­anna ekki aðskilið frá fag­legum rekstri sjúkra­stofn­anna. Hún telur eðli­legt að núver­andi for­maður og stjórn stígi til hliðar enda sé mörgum brugðið við hversu ein­kenni­lega hafi verið staðið að málum.

Í nýjasta Mannlífi er fjallað nánar um stöð­una sem er komin upp hjá SÁÁ.

„Það virð­ist nokkuð skýrt hvernig stjórnin vill hafa hlut­ina og kannski getur hún bara haft þetta svona. Ég get ekki hugsað mér að vera í þessu umhverfi áfram. Stjórnin verður þá bara að gera þetta með öðru fólki og það kemur auð­vitað alltaf maður í manns stað,“ segir Val­gerður og leggur þunga áherslu á að með­ferð­ar­þjón­usta SÁÁ snú­ist ekki um hana sjálfa.

„Það eru ein­hverjir þar sem vilja stýra öllu því hvað ger­ist inni á gólf­inu.“

Hún hefur miklar áhyggjur af því að aðgerðir stjórn­ar­innar og umræðan sem af þeim skap­ast sverti hið góða starf sem unnið hefur verið undir merkjum sam­tak­anna. „Ég hef bara áhyggjur af með­ferð­inni, það þarf ann­ars konar stjórn yfir heil­brigð­is­rekstr­inum og hún verður að vera alveg laus við inn­grip fram­kvæmda­stjórnar félaga­sam­taka, m.a. um starfs­manna­mál. Ég hef áhyggjur af því að núver­andi stjórn sam­tak­anna geri sér ekki grein fyrir að þetta er ekki í lagi og ætli bara að láta þetta ganga eftir. Það eru ein­hverjir þar sem vilja stýra öllu því hvað ger­ist inni á gólf­inu.“

Ekki fórnarlamb

Helst af öllu segir Val­gerður auð­vitað vilja halda áfram starfi sínu hjá SÁÁ. Hún lítur ekki á sig sem fórn­ar­lamb og hefur ekki áhyggjur af sjálfri sér.

„Ég vil auð­vitað áfram leiða þetta starf, þetta er svo gríð­ar­lega mik­il­væg starf­semi sem má ekki verða fyrir þessu hnjaski sem gjörn­ingar fram­kvæmda­stjórn­ar­innar valda. Mér finnst svo glatað þegar þetta fer að snú­ast um ein­hverja ein­stak­linga. Ég þoli alls konar skít og hef synt fram hjá honum lengi. En ég er ekki póli­tíkus og kann ekki þennan leik. Kannski er þetta brölt bara kolólög­legt allt saman en ég hafði ekki hugsað mér að láta lög­fræð­inga skoða það, mér finnst það ekki spenn­andi kostur. Ég lít ekki á mig sem fórn­ar­lamb og hef engar áhyggjur af sjálfri mér.“

Nánar um málið í helgarblaðinu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins