„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lokaður inni í ellefu daga

Bændur efst á Jökuldal og í Hrafn­kels­dal kom­ast nú leiðar sinnar á ný eftir að veg­ur­inn var opn­aður eftir ell­efu daga ófærð. Vegg­ur­inn í göng­unum sem mynd­að­ist við mokst­ur­inn í Eiríks­staða­mjósundum er um fimm metra hár. Aðal­steinn Sig­urð­ar­son, bóndi á Vað­brekku, hefur ekki séð slíkt fann­fergi um ára­bil.

Lokaður inni í ellefu daga
Aðal­steinn og veggöngin í Eiríks­staða­mjósundum. Myndir/Aðal­steinn Sig­urð­ar­son|Úr Eiríks­staða­mjósundum. Mynd/Aðal­steinn Sig­urð­ar­son|Vegg­ur­inn í göng­unum sem mynd­að­ist við mokst­ur­inn er 5 metra hár öðrum megin og 2
Aðal­steinn Sig­urð­ar­son, bóndi á Vað­brekku á leið heim úr fjár­hús­unum í morgun. Mynd/AS

„Í þessi sex ár síðan ég byrj­aði að búa hefur verið frekar snjó­létt en ég man eftir svona árferði þegar ég var gutti og bjó hér í sveit­inni. Mest var fann­fergið árið 1995,“ segir Aðal­steinn sem rekur sauð­fjárbú á Vað­brekku með rúm­lega 400 kindur. Einnig hafa bændur á Aðalbóli og Brú verið inn­lyksa í ófærð­inni enda ekk­ert verið hægt að moka í tæpar tvær vikur. Að auki hefur verið óvenju kalt, rokkað frá -1°C upp í -16°C, þegar við heyrum í Aðal­steini eru -10°C.

Taka skal fram að enn hefur veg­ur­inn inn í Hrafn­kels­dal, þar sem bæirnir Aðalból og Vað­brekka eru stað­settir, ekki enn verið mok­aður en þar er hægt að kom­ast leiðar sinnar á stórum jeppum með því að hleypa vel úr dekkjum. Beðið er betra veð­urs til að hægt verði að moka.

Vegg­ur­inn í göng­unum sem mynd­að­ist við mokst­ur­inn er 5 metra hár öðrum megin og 2,5 metra hár hinum megin. Mynd/Aðal­steinn Sig­urð­ar­son

„Ég hef haft það fínt enda alltaf nóg af kjöti í frystikist­unni og langt frá því að maður sé mat­ar­laus. Ég fékk hins vegar allra nauð­syn­leg­ustu vistir fyrir nokkru áleiðis upp Dalinn og sótti þær á snjó­sleða,“ segir Aðal­steinn en taka skal fram að 90 kíló­metrar eru frá Vað­brekku til Egils­staða í næstu mat­vöru­verslun.

„Við tökum þessu með ró enda lítið annað hægt að gera, þó ég við­ur­kenni að þetta er farið að verða svo­lítið þreyt­andi. Til dæmis hefur ekk­ert verið hægt að hleypa fénu út og varla hægt að opna glugga á fjár­hús­unum sem eru ekki kjörað­stæður fyrir kind­urnar.“

Snjógöng í Eiríks­staða­mjósundum vorið 1975. Mynd/Sigríður Sig­urð­ar­dóttir

Árið 1975 var einnig mjög harður vetur og snjó­göngin í Eiríks­staða­mjósund­unum há. „Það er til mynd af gamla Willys-jepp­anum sem amma og afi áttu á þeim tíma í þessum göngum og gaman að bera mynd­ina saman við ástandið nú. Núna er efri kant­ur­inn á göng­unum um fimm metra hár og sá neðri í kringum tvo og hálfan metra.“

Aðal­steinn deilir lífi sínu í sveit­inni á Instagram undir not­enda­nafn­inu @allitarfur.

Uppfært 20. mars kl. 16.09: Skaf­renn­ingur og kóf hefur verið á Jökuldal í allan dag og veg­ur­inn því aftur orð­inn ófær.

View this post on Instagram

It’s been a hard winter so far …. and it is not over yet #winter #snow #landcruiser #landcruiser70 #vað­brekka #hardwinter #lotofsnow #cold

A post shared by Allit­arfur (@allitarfur) on Mar 20, 2020 at 5:29am PDT

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins