„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Saudia sker niður flug Atlanta

Sádi-arab­íska flug­fé­lagið hefur aflýst öllu flugi á vegum Air Atlanta fram í maí, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs. Félögin sömdu í febr­úar um viða­mikið áætl­un­ar­flug til þriggja ára. Sá samn­ingur hljóð­aði upp á 40 millj­arða króna.

Saudia sker niður flug Atlanta
Mynd / EPA|

Sádi-arab­íska flug­fé­lagið Saudi Arabian Airlines, eða Saudia, hefur ákveðið að aflýsa öllu far­þega­flugi íslenska flug­fé­lags­ins Air Atlanta fram í maí, vegna kór­óna­veirunnar. Þetta herma heim­ildir Mannlífs. Atlanta hefur fjórtán Boeing 747-400-flug vélar til umráða en helm­ingur þeirra hefur verið í þjón­ustu Saudia. Um mikið högg er því að ræða fyrir félagið.

Magnús Ásgeirs­son, sölu­stjóri hjá Atlanta, vildi í sam­tali við Mannlíf ekki stað – festa þessar fregnir en við­ur­kenndi þó að Sádarnir væru „búnir að fækka flug ferðum“. „Þetta er allt í vinnslu en ég get ekki stað­fest þetta,“ sagði hann þegar á hann var gengið. Magnús sagði enn fremur að ýmsar sögur væru á kreiki en að staðan breytt­ist hratt þessa dag­anna. Hann vildi lítið tjá sig um málið en vís­aði á for­stjóra félags­ins, sem var í flugi.

Nýgerður 40 milljarða króna samningur

Aðeins eru rúmar tvær vikur síðan Morg­un­blaðið greindi frá því að Atlanta væri að ganga frá nýjum samn­ingi við Saudi Arabian Airlines um „blaut­leigu“ og áætl­un­ar­flug til þriggja ára. Blaut­leigu­samn­ingar fela í sér að Atlanta útvegar við­skipta­vini sínum þjón­ustu, í formi vélar og áhafnar, og heldur utan um rekstur vél­anna og við­hald. Fram kom að samn­ing­ur­inn væri met­inn á 40 millj­arða króna.

Flug­fé­lagið Saudi Arabian Airlines, eða Saudia, hefur ákveðið að aflýsa öllu far­þega­flugi íslenska flug­fé­lags­ins Air Atlanta fram í maí,

Samhliða var sagt frá því að Atlanta hefði samið við flug­véla­leigu­fyr­ir­tækið GECAS um lang­tíma­leigu á fimm breið­þotum af gerð­inni Boeing 777 og Airbus A330. Til stóð að þær vélar yrðu afhentar í maí og júní.

Haft var eftir for stjóran um, Baldvini Má Her­manns­syni, að samn­ing­ur­inn fæli í sér mikil tíma­mót fyrir félagið. Stórt skref væri stigið í þróun félags­ins með inn­leið­ingu nýrra flug­véla­teg­unda. Mannlíf hefur ekki upp­lýs­ingar um hvaða þýð­ingu ákvörðun Saudia hefur á nýgerðan samn­ing Atlanta við GECAS. Smitum af völdum kór­óna­veirunnar hefur fjölgað hratt síð­ustu daga á Íslandi.

Íslend­ingar hafa verið ofar­lega á lista þjóða þegar hlut­fall smit­aðra er skoðað en fram hefur komið að það helgist ekki síst að því að hér hefur eft­ir­lit verið meira og fleiri próf gerð en víða ann­ars staðar. Ekki er ljóst hvort þessi töl­fræði varð til þess að Saudia greip til þeirra ráð­staf­ana sem hér hefur verið sagt frá.

Miklar væringar í vændum

Óhætt er að segja að upp­nám hafi orðið á fimmtu­dag þegar Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti um 30 daga flug­bann frá Íslandi og öðrum löndum Schengen. Sér­fræð­ingar sem Mannlíf tal­aði við áður en Trump til­kynnti um ákvörðun sína sögðu aðeins tíma­spurs­mál hvenær Icelandair myndi þurfa á rík­is­að­stoð að halda, til að tryggja rekstur félags­ins.

Félagið hefur að stórum hluta byggt starf­semi sína á Amer­íkuflugi. Heim­ilda­maður sem gjör­þekkir flug­rekstur sagði við Mannlíf á fimmtu­dag að útlit væri fyrir mik­inn sam­drátt og í kjöl­far sam­ein­ingar flug­fé­laga á heims­vísu á næst­unni. Mörg flug­fé­lög myndu ekki lifa af það upp­nám sem nú skekur heims byggð­ina. Í slíku um hverfi fælist þó tæki­færi fyrir nýja aðila á flug­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnaghagsmál

Stýrivextir áfram 9,25 prósent – Lakari horfur í ferðaþjónustu ein af ástæðunum
Innlentefnaghagsmál

Stýri­vextir áfram 9,25 pró­sent – Lakari horfur í ferða­þjón­ustu ein af ástæð­unum

Stýri­vöxtum Seðla­banka Íslands verður haldið óbreyttum í 9,25 pró­sentum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans. Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri til­kynnti í morgun að Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hafi ákveðið að halda stýri­vöxtum áfram í 9,25 pró­sentum. Fram kemur í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar að verð­bólga hafi auk­ist eilítið frá síð­asta fundi hennar eftir að hafa minnkað fram eftir ári. „Und­ir­liggj­andi verð­bólga er enn...
Rebekka Guðleifsdóttir: „Hvenær gera Íslendingar alvöru uppreisn gegn þessu andskotans rugli?“
Innlentefnaghagsmál

Rebekka Guð­leifs­dóttir: „Hvenær gera Íslend­ingar alvöru upp­reisn gegn þessu and­skot­ans rugli?“

Ljós­mynd­ar­inn Rebekka Guð­leifs­dóttir skrif­aði gríð­ar­lega vin­sæla færslu á Facebook í gær en henni hefur verið deilt yfir 1100 sinnum. Í færsl­unni gagn­rýnir hún Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóra „og allt hitt ríka og fína sið­blinda fólkið“ sem kemur sér í valda­stöður á Íslandi. Færslan er löng og harð­orð og end­ur­speglar sístækk­andi óánægju í sam­fé­lag­inu vegna efna­hags­á­stands­ins á Íslandi en Seðla­banka­stjóri ákveð enn...
Skapandi leigjendur komi með tillögur að leiguverði
Innlentefnaghagsmál

Skapandi leigj­endur komi með til­lögur að leigu­verði

Þann 10. júní gefst áhuga­sömum kostur á að skoða hús­næði sem Reykja­vík­ur­borg leigir út fyrir skap­andi verk­efni. Húsnæðið er í Gufunesi, Bryggju­hverfi og í Skerja­firði og sam­tals er um rúm­lega 9.000 fer­metra að ræða. Á vef­síðu Reykja­vík­ur­borgar segir að við val á leigj­endum verði sér­stök áhersla lögð á skap­andi greinar og það að byggja upp og efla nýjar atvinnu­greinar og...
Þjóðin situr uppi með Icelandair
Innlent

Þjóðin situr uppi með Icelandair

Útlit er fyrir að íslenska þjóðin sitji uppi með Icelandair-flug­fé­lagið og það komi alfarið í hennar hlut að bjarga því frá falli. Nú þegar á almenn­ingur stóran hluta í flug­fé­lag­inu í gegnum eign­ar­hluti líf­eyr­is­sjóð­anna. Allt stefnir í að fólkið í land­inu eign­ist enn meira í gegnum skuld­breyt­ingu lána stóru rík­is­bank­anna sem nú þegar hafa lánað flug­fé­lag­inu í kringum 20 millj­arða...
Þrír sinna eftirliti með lánveitingum og skila skýrslu til Bjarna
Innlent

Þrír sinna eft­ir­liti með lán­veit­ingum og skila skýrslu til Bjarna

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd veit­ingar við­bót­ar­lána lána­stofn­ana með rík­is­á­byrgð. Í nefnd­inni eru þau Einar Páll Tamimi, for­maður, Kristrún Heim­is­dóttir og Ásta Dís Óla­dóttir. Eft­ir­lits­nefnd­inni er ætlað að hafa almennt eft­ir­lit með fram­kvæmd lán­veit­ing­anna til fyr­ir­tækja sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­tapi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Þetta kemur fram á...
Innlent

Mun taka langan tíma að vinna okkur úr þess­ari kreppu

„Kostn­að­ur­inn verður veru­legur. Það mun taka langan tíma að vinna okkur úr þess­ari kreppu.“ Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, á upp­lýs­inga­fundi núna fyrir hádegi þegar næstu aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna efna­hags­á­hrifa kór­ónu­veirunnar voru kynntar. Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt þrjár til­lögur um stuðn­ing við launa­fólk og fyr­ir­tæki. Markmið þeirra er að draga úr þeim skaða sem umfangs­miklar upp­sagnir og fjölda­gjald­þrot valda þannig...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins